Morgunblaðið - 02.05.2016, Side 6

Morgunblaðið - 02.05.2016, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016 Laugavegi 99 – Sími 777 2281 (gengið inn frá Snorrabraut) aff.is Concept store 10-50% afsláttur á völdum vörum til 7. maí Rýmum fyrir nýjum vörum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Alls 24 túristaverslanir á Lauga- veginum gæti verið vísbending um hættu á fullmikilli einsleitni á kostnað sjarmans,“ segir Jakob Frímann Magnússon, fram- kvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar. Tími göngugatna í mið- borg Reykjavíkur hefst í dag. Pósthússtræti við Kirkjustræti verður göngugata fram til 1. október en opið fyrir bílaumferð í morgunsárið. Hafnarstræti verð- ur fyrir gangandi að austan frá Pósthússtræti en umferð heimiluð í vesturenda. Laugavegur, frá Vatnsstíg að gatnamótum Banka- strætis og Þingholtsstrætis, og Skólavörðustígur frá Bergstaða- stræti að Bankastræti verða göngugötur fram á haust. Þá verður neðsti hluti Bergstaða- strætis göngugata. Aðlaðandi og áhugaverðar Með sumargötum á að auðga mannlíf og bæta aðgengi gang- andi og hjólandi fólks, segir í frétt frá Reykjavíkurborg. Þar kemur einnig fram að skv. könnun séu um ¾ aðspurðra jákvæðir fyrir framtakinu, sem á sér nokkurra ára sögu. En hvernig líkar kaup- mönnum og öðrum sem eru með rekstur í miðborginni þetta? „Sumir eru sáttir en aðrir ekki – nú einkum þeir sem starfa á neðri hluta Skólavörðustígs. Hvað sem því líður verður að kappkosta að gera þessar götur aðlaðandi og áhugaverðar og að þar séu ýmsir viðburðir,“ segir Jakob Frímann. En er orðið of mikið af ferðamannabúðum, hót- elum og slíku við Laugaveg? „Sumir ganga svo langt að segja að útlendingar hafi hernumið Ís- land og þá ekki síst miðborgina, sem fær til sín 95% allra þeirra sem landið sækja heim. Það er ekki óeðlilegt að reynt sé að höfða til þessa mikla fjölda og að leitast sé við að hámarka arðsemi versl- unar við Laugaveg en við nálg- umst þó óðfluga þolmörkin,“ segir Jakob Frímann og heldur áfram: „Sömuleiðis er pirrings farið að gæta hjá venjulegu miðborgar- fólki. Það kvartar yfir því að fá ekki lengur inni á veitingahús- unum sínum eða kaffihúsum. Þetta sé ekki lengur gamla góða Reykjavík heldur þjónustu- miðstöð fyrir útlendinga. Hinir eru þó að líkindum fleiri sem fagna þessu og eygja þau jákvæðu hagrænu áhrif sem þessu fylgja.“ Um þessar mundir eru víða framkvæmdir í miðboginni, enda kallar gestafjöldinn þar á upp- byggingu. Jakob Frímann segir þetta vissulega reyna á þanþol rifja og tauga þeirra sem búa og starfa í miðborginni. Uppbygg- ingin verði þó til bóta þegar til lengri tíma er litið. Annars sé þró- unarstarf á svæðinu í sífelldri deiglu og endurmótun – og í dag sé iðandi mannlíf með list- viðburðum einkenni 101 Reykja- víkur. Í því efni koma gamla höfn- in og Grandinn sterkt inn. „Kostir miðborgarinnar eru fjölmargir, svo sem nálægð og að- gengi að lykilstöðum, þjónustu í víðasta skilningi og verslun á þægilega afmörkuðu svæði miðað við stórborgir nágrannalanda. Reykjavík er sannarlega gleði- og viðburðaborg á heimsmæli- kvarða, að sumu leyti sambærileg við London og New York.“ Við finnum vaxtarverki Jakob Frímann hefur verið framkvæmdastjóri Miðborgar- innar okkar frá 2008, en þessi starfsemi er undir sviði eigna- og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkur- borg. Hann segir starfið fjöl- breytt og áhugavert. „Þetta á ekki síst við nú, á tímum upp- byggingar og þróunar, sem má rekja til áhuga borgaryfirvalda á miðborgarþróun og jafnframt hraðs vaxtar ferðaþjónustu. Við finnum vaxtarverki sem fylgja framkvæmdum á svæðinu. Nú sér hins vegar fyrir lok margra þeirra og því er full ástæða til að horfa björtum augum til þéttari, betri og nútímalegri miðborgar.“ Jakob Frímann Magnússon er framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Laugavegurinn „Reykjavík er sannarlega gleði- og viðburðaborg,“ segir Jakob Frímann í viðtalinu. Borg á heimsmælikvarða fer að nálgast þolmörkin  Jakob Frímann Magnússon er fæddur 1953. Hann er einn stofnenda Stuðmanna og hefur mikið sinnt störfum á sviði menningarmála hvers konar, m.a. í utanríkisþjónustunni. Framkvæmdastjóri miðborgar- mála og Miðborgarinnar okkar frá 2008.  Kvæntur Birnu Rún Gísla- dóttur, viðskiptafræðingi hjá Arion banka, og eiga þau dæt- urnar Katrínu Borg og Jarúnu Júlíu. Er MBA frá HR. Hver er hann? Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Landsmenn geta kosið forseta þótt ekki liggi fyrir hverjir verða í fram- boði. Atkvæðagreiðsla utan kjörfund- ar hófst á laugardag. Fimmta kjörtímabili Ólafs Ragn- ars Grímssonar í embætti forseta Ís- lands lýkur 31. júní. Forsetakosning- ar eru boðaðar laugardaginn 25. júní. Framboðsfrestur rennur út fimm vik- um fyrir kjördag. Stór hópur fólks hefur lýst yfir áhuga á embættinu og er að undirbúa framboð. Eðli málsins samkvæmt er þó enginn orðinn form- legur frambjóð- andi því kjör- stjórnir taka ekki við meðmælenda- listum fyrr en líð- ur á mánuðinn og þá er eftir að yfir- fara þá. Fyrstu skoðanakannanir gefa til kynna mikinn stuðning við núverandi for- seta, Ólaf Ragnar Grímsson. Næst á eftir honum koma Andri Snær Magnason og Halla Tómasdóttir. Þess ber að geta að margir segjast enn óákveðnir eða hafa hug á að skila auðu. Guðni Th. Jóhannesson mun til- kynna næstkomandi fimmtudag hvort hann býður sig fram eða ekki. Guðrún Nordal tilkynnti í gær að hún yrði ekki í framboði. Það mun síðan liggja fyrir föstu- daginn 27. maí hverjir verða raun- verulega í kjöri, en þá áformar innan- ríkisráðuneytið að auglýsa nöfnin. Kveðið er á um það í kosningalög- um að kosningu utan kjörfundar skuli hefja svo fljótt sem kostur er, þó eigi fyrr en átta vikum fyrir kjördag. Samkvæmt þessu hófst utankjör- fundaratkvæðagreiðsla á skrifstofum sýslumanna landsins sl. laugardag. Kjósendur sem vilja greiða atkvæði utan kjörfundar fá ekki neinn nafna- lista og verða sjálfir að rita á kjör- seðilinn fullt nafn þess frambjóðanda sem þeir vilja. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta fyrst um sinn greitt atkvæði á skrif- stofum sýslumannsins í Reykjavík og Hafnarfirði, bæði á virkum dögum og um helgar. Frá og með 9. júní verður einungis hægt að greiða atkvæði í Perlunni. Er það í fyrsta skipti sem kosningamiðstöðin verður þar, en í mörg ár hefur hún verið í Laugar- dalshöllinni. Kosning hafin án frambjóðenda  Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafin  Mánuður eftir af framboðsfresti Kosningar Kjör- kassi fluttur. Borgarráð sam- þykkti á fimmtu- dag að veita Hjörleifi Stef- ánssyni arkitekt styrk að fjárhæð 500.000 krónur vegna torf- listaverks í Hljómskálagarð- inum. Í bréfi frá stjórnanda Listahátíðar í Reykjavík sem einnig var lagt fram á fundi borgarráðs var staðfest að verkið yrði hluti af dagskrá hátíðarinnar. Heimildir Morgunblaðsins herma að óvissa sé upp komin varðandi verkið og þátt þess í Listahátíðinni. Óvissa um torf- listaverk styrkt af Reykjavíkurborg Hljómskálagarður Hallarekstur sem fáar leiðir eru fær- ar út úr er helsta ástæða þess að Al- þýðusamband Íslands hefur ákveðið að selja Ásmundarsal við Freyjugötu í Reykjavík, þar sem listasafn sam- takanna er til húsa. Starfsemi þess í núverandi mynd verður hætt í byrj- un október næst- komandi. „Rekst- ur Ásmundarsals hefur verið að þyngjast veru- lega undanfarin ár eftir að Alþingi ákvað að draga verulega úr fjár- veitingum til Listasafns ASÍ. Hvorki Safna- sjóður né Reykja- víkurborg vilja gera svokallaða rekstrarsamninga, heldur veita styrki í einstaka viðburði,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Fyrir helgina auglýsti fasteigna- salan Valhöll eftir tilboðum í Ás- mundarsal, sem er í eigu listasafns- ins. Óskað er eftir tilboðum í húsið og því ekki ljóst hvað fæst fyrir það. Ljóst má þó vera að verðmætið hleypur á mörgum tugum milljóna króna, enda er þetta hús með merka sögu og á besta stað í borginni. Þeir fjármunir sem fást af sölu þess, ef viðunandi tilboð fást, verða nýttir af safninu. Húsið er byggt árið 1934 og upphaflega vinnustofa Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara, og af því er nafnið dregið. Húsið, sem er 320 fermetrar, er í funkis-stíl og í því tveir rúmgóðir sýningarsalir. Um alllangt skeið hefur Listasafn ASÍ átt húsið. Safnkostur þess er að stofni 120 verk sem Ragnar Jónsson útgefandi, sem jafnan var kenndur við smjörlíkisgerðina Smára, færði samtökunum að gjöf árið 1961. Þarna má finna verk eftir marga af helstu listamönnum þjóðarinnar fyrr á tíð en aukið hefur verið við safnið jafnt og þétt í áranna rás – svo að verk seinni tíma manna eru þar einn- ig. „Kröfur til sýningarhalds eru að aukast. Slíkt leiðir af sér aukinn kostnað sem við sjáum ekki neinar forsendur til að geta mætt,“ segir Gylfi Arnbjörnsson. Hann bætir við að þótt fasteignarekstri og sýningar- haldi á vegum safnsins verði hætt verði verk þess áfram sýnd, rétt eins og Ragnar í Smára skilyrti. „Hvernig verkin sem eru í eigu safnsins verði fólki aðgengileg liggur ekki fyrir. Rekstrarstjórn safnsins hefur sett í gang hugmyndavinnu um það og mun kynna niðurstöðu sína síðar,“ segir forseti ASÍ. sbs@mbl.is Forsendur safn- rekstrar brostnar  Ásmundarsalur ASÍ er kominn í sölu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Freyjugata Ásmundarsafn er sér- stakt hús á Skólavörðuholtinu. Gylfi Arnbjörnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.