Morgunblaðið - 02.05.2016, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016
Við getum skipulagt árshátíðir fyrir stóra sem smáa hópa.
Gistihúsið Hrauneyjar er í aðeins 150 km. fjarlægð frá Reykjavík.
Árshátíð á hálendi Íslands
Vertu upplýstur!
blattafram.is
Á HVERJUM DEGI
STUÐLUM VIÐ MÖRG
AÐ KYNFERÐISOFBELDI
MEÐ ÞVÍ AÐ LÍTA
Í HINA ÁTTINA.
Í HVAÐA ÁTT HORFIRU?
Rafmagnshjól.is • Fiskislóð 45 • Sími 534 6600
Hollensk
rafmagnshjól
vönduð og margverðlaunuð
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ef núverandi ríkisstjórn ber til
þess gæfu að auka fjárveitingar til
heilbrigðismála í ár mun það auka
traust á stjórnmálunum öllum,“
sagði Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, þegar
hann afhenti Sigurði Inga Jóhanns-
syni forsætisráðherra lista með
nöfnum alls 86.729 manns sem tóku
þátt í undirskriftasöfnunni Endur-
reisum heilbrigðiskerfið.
Greiðsluþátttaka úr 18% í 9%
Söfnun undirskrifta hefur staðið
yfir síðustu mánuði og var eftir-
tekjan kynnt á laugardag í húsi ÍE.
Ráðherrar og fulltrúar allra
stjórnmálaflokka sem fulltrúa eiga
á Alþingi voru á samkomunni og
fluttu þar stutt ávörp og reifuðu
viðhorf sín til heilbrigðismála. Það
gerði Kári Stefánsson líka og lagði
þar til að kostnaðarþátttaka al-
mennings fyrir heilbrigðisþjónustu
yrði lækkuð stórlega.
„Kostnaðarþátttaka fólksins er
18% af heildarkostnaði, sem er lík-
lega 140-150 milljarðar króna.
Fólkið í landinu greiðir því 30 millj-
arða króna og mín tillaga er að þið,
stjórnmálamenn, takið saman
höndum og byrjið að skera niður
greiðsluþátttöku úr 18% í 9% á
þessu ári,“ sagði Kári Stefánsson.
Vísaði hann þarna til fregna um
góða afkomu ríkissjóðs, sem for-
ystumenn ríkisstjórnarinnar segja
að gefi svigrúm til að hefjast handa
um ýmsar framkvæmdir og auka
framlög til velferðarmála í víðasta
skilningi þess orðs.
Geta pakkað saman og farið
Segja má að tillaga Kára Stefáns-
sonar um að lækka gjöldin sem al-
menningur greiðir fyrir heilbrigðis-
þjónustu hafi rímað við sjónarmið
stjórnarandstöðu á áðurnefndri
samkomu. „Þetta er tilfinninga-
þrungið ákall um að við stöndum
saman um mikil verðmæti sem við
eigum í félagslegu opinberu heil-
brigðiskerfi,“ sagði Árni Páll Árna-
son, formaður Samfylkingar.
„Gjaldfrelsi í heilbrigðisþjónustu er
það sem við skulum stefna að.“
Aðrir úr stjórnarandstöðu töluðu á
svipuðum nótum. „Þeir stjórnmála-
menn sem ekki ætla að taka mark á
þessari könnun geta pakkað saman
og farið,“ sagði Páll Valur Björns-
son, þingmaður Bjartar framtíðar.
„Hér sjáum við í verki vilja þjóðar,“
sagði Birgitta Jónsdóttir, kapteinn
Pírata, og Svandís Svavarsdóttir
frá VG tók í sama streng. Byrja
ætti á því að heilbrigðisþjónusta
fyrir börn og öryrkja væri endur-
gjaldslaus. Þá ætti að mæta kostn-
aði fólks vegna sálfræðiþjónustu og
tannlækninga. „Næstu kosningar
verða um samfélagssáttmálann,“
sagði Svandís.
En hverju svarar ríkisstjórnin
um mikinn fjölda undirskrifta og
þungann sem í því felst? Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra
segir að ríkisstjórnin sé tilbúin að
stefna í þá átt að greiðsluþátttaka
almennings verði lækkuð. Þá nefndi
hann að ein krafan í undirskrifta-
söfnunni væri sú að 11% af vergri
landsframleiðslu skyldu fara í heil-
brigðismál. Um það segir fjármála-
ráðherra að varast beri í þessari
umræða að festa sig um of í hlutfalli
af landsframleiðslu. Horfa eigi á
gæði, öryggi og aðgengi að heil-
brigðisþjónustu fremur en hag-
ræna kvarða. „Það sem sameinar
okkur er svo miklu meira en það
sem sundrar. Í dag höfum við eitt-
hvað til að sameinast um,“ sagði
Bjarni.
Allt þarf að vera í jafnvægi
En er mögulegt að þau 18% af
heildarkostnaði við heilbrigðis-
þjónustu í landinu sem almenn-
ingur greiðir í dag með beinum
gjöldum fari niður í 9%, eins og
Kári Stefánsson leggur til? „Þetta
er freistnivandi,“ segir Sigurður
Ingi Jóhannsson forsætisráðherra,
sem vildi ekki þessari spurningu
beint.
„Framtíðaráætlun í ríkisfjár-
málum sem við vorum að setja fram
fyrir helgina er með jafnvægi milli
útgjalda og eðlilegs afgangs, án
þess að skapa þenslu. Sem betur fer
eru miklir fjármunir settir til heil-
brigðiskerfisins. Margir falla í þá
freistni nú þegar vel árar að vilja fá
meira til sín – skiljanlega – en þetta
allt þarf að vera í jafnvægi,“ sagði
forsætisráðherra við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áskorun Kári Stefánsson afhendir Sigurði Inga Jóhannssyni lista undirskrifta með nöfnum alls 86.729 sem vilja sjá úrbætur í heilbrigðismálum.
Tilfinningaþrungið ákall
86.729 manns tóku þátt í undirskriftasöfnun Gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta
sé markmið Minni kostnaðarþátttaka er freistnivandi, segir forsætisráðherra
Laust eftir klukk-
an hálf sex í gær-
morgun var lög-
reglan á
Norðurlandi
eystra kölluð til
vegna tilkynn-
ingar um heimilis-
ofbeldi í húsi á
Akureyri. Sá sem
tilkynnti málið
skýrði frá því að
meintur gerandi hótaði að beita skot-
vopni. Í kjölfarið lokaði lögreglan
þremur götum í nágrenninu og vopn-
uðust vakthafandi lögreglumenn lög-
reglunnar á Akureyri skotvopnum.
Gerðar voru viðeigandi ráðstafanir og
sérsveit Ríkislögreglustjóra var köll-
uð út.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Akureyri hleypti meintur
gerandi ekki af skotvopni og kom
vopnlaus út úr íbúðinni skömmu eftir
að þessar aðgerðir hófust og var hann
þá handtekinn. Við leit í íbúðinni
fundust tvær haglabyssur og nokkurt
magn skotfæra. Viðkomandi var und-
ir áhrifum áfengis, en hann var vist-
aður í fangageymslu og verður yfir-
heyrður þegar af honum er runnið.
Lögreglan
á Akureyri
vopnaðist
Ölvaður með skot-
vopn handtekinn
Akureyri Lögregla
var með viðbúnað.
Ekkert bendir til
þess að þyrluslys-
ið í Noregi á
föstudaginn hafi
rekstrarleg áhrif
á þyrluútgerð
Landhelgisgæsl-
unnar. Þetta
kemur fram í
fréttatilkynningu
frá Gæslunni.
„Tilfinningalega
snertir þessi atburður við okkur hjá
Landhelgisgæslunni þar sem við
höfum átt náið og gott samstarf með
Norðmönnum í tengslum við þyrlu-
reksturinn. Hugur okkar er hjá
þeim á þessari stundu og sendir
Landhelgisgæslan innilegar sam-
úðarkveðjur,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Þyrlan sem fórst í Noregi var af
gerðinni EC225. Hún hrapaði til
jarðar með þeim afleiðingum að
þrettán manns fórust. „Þyrlur
Landhelgisgæslunnar eru eldri út-
gáfa umræddrar þyrlu og um margt
mjög ólíkar,“ segir í tilkynningunni.
Þyrluslys í
Noregi hefur
ekki áhrif hér
Slysið Ekki áhrif
hér á landi.
Meginbrestirnir í kerfinu eru þrír, segir Kristján Þór
Júlíusson heilbrigðisráðherra. Heilsugæslan er ekki
nægilega sterk, aðstaða á Landspítala er ekki boð-
leg og í þriðja lagi er sérhæfð þjónusta úti á landi
langt frá viðunandi.
En er raunhæft að lækka kostnaðarþáttöku al-
mennings eins og Kári Stefánsson leggur til? „Það
eru til tugir greiðslukerfa fyrir þjónustu og ef því á
að breyta þarf að gera upp við sig hvert af þessum
kerfum við ætlum að fara í. Ég er að streitast við að
einfalda þetta og búa til eitt greiðsluþátttökukerfi.
Þegar það er komið getum við skoðað lækkun.“
Þrír meginbrestir í kerfinu
HEILSUGÆSLA, LANDSPÍTALI OG SÉRFRÆÐINGAR
Kristján Þór
Júlíusson
Talsvert annríki var hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu í fyrri-
nótt. Einkum var það vegna fólks
undir áhrifum áfengis eða fíkni-
efna. Þannig var t.d. tilkynnt um
karlmann um miðnætti sem var
með vandræði á skemmtistað í Mos-
fellsbæ. Hafði hann skemmt hurð
og sitthvað fleira. Var hann hand-
tekinn og vistaður í fangaklefa.
Skemmdi hurð
á skemmtistað