Morgunblaðið - 02.05.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 02.05.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016 fjölslípi-/fræsisett MFW 228 beltaslípivél BT 75 handfræsari OBF 1200 bandsög - tré HBS 245HQ rennibekkur D460FXL 11.662,- 19.568,- 15.615,- 75.390,- 68.982,- IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is V O Hlutabréf vestanhafs voru á niður- leið á föstudag en S&P 500 og Dow Jones vísitölurnar hækkuðu samt heilt yfir í aprílmánuði. S&P 500 hækkaði um 0,27% í mánuðinum, Dow Jones um 0,5% en Nasdaq- vísitalan lækkaði um 1,94%. Meðal helstu áhrifavalda var 14% lækkun Apple í mánuðinum, aðallega vegna sölu Carl Icahn á hlut sínum í tæknirisanum. Micro- soft lækkaði einnig töluvert, um 10%, og Alphabet um 7 %, að því er FT greinir frá. Á móti lækkuðu verði tæknifyrirtækja kom hækk- un í orkugeira sem hélst í hendur við hækkað heimsmarkaðsverð á olíu. Að sögn Market Watch nam hækkun olíu um 20% yfir apríl- mánuð. Á föstudag kostaði WTI- hráolía 45,92 dali á fatið og Brent- olía 48,13 dali. Hækkunin er þvert á væntingar sumra markaðs- greinenda, sem spáðu því um miðj- an mánuðinn að fatið færi niður í 30 dali eftir að samráðsfundi olíu- ríkja í Doha lauk án samkomulags. Silfur hækkaði um 15,2% í apríl og kostar núna 17,8 dali á únsuna. Hefur silfurverð ekki verið hærra í 11 mánuði. Á meðan hækkaði gull um 4,4% í mánuðinum. Kostar gullúnsan nú um 1.294 dali. Frá áramótum hefur silfur hækkað um 27% og gull um 20%. ai@mbl.is Hlutabréf standa í stað en olía og silfur hækka  Lækkun Apple dró markaðinn niður AFP Sveiflur Tæknifyrirtæki fóru niður en orkufyrirtæki upp í aprílmánuði. gjald sem nemur 2% af virði eigna í sinni umsjá og taki að auki í sinn hlut 20% af öllum hagnaði sem fjárfest- ingarnar skila. Buffett sagði þetta þóknanakerfi „óskiljanlegt“. Mikil gosdrykkja ekki framleiðendum að kenna Berkshire á hlut í nokkrum mat- vælaframleiðendum, þar á meðal rösklega 9% hlut í Coca-Cola. Barst offituvandinn í tal og einn gesta vís- aði í nýlega rannsókn sem gerð var við Tufts-háskóla og tengir gos- drykkju við 184.000 dauðsföll árlega á heimsvísu. Buffett sagði ekki rétt að leggja ábyrgðina á offitu og sykursýki á herðar gosdrykkjafram- leiðenda og undir hverjum og einum væri komið að stilla neyslu sinni í hóf. Sjálfur er Buffett þekktur fyrir að drekka mikið af kirsuberjakóki. Buffett hefur áður þurft að svara gagnrýni vegna starfsemi Coca-Cola en hefur gjarnan snúið því upp í grín FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Árlegur hluthafafundur Berkshire Hathaway var haldinn í Omaha á laugardag. Alls ferðuðust um 40.000 manns til Nebraska til að sitja fund- inn og að vanda fylgdust fjölmiðlar vel með því sem stjórnarformaður- inn, stjörnufjárfestirinn og auðkýf- ingurinn Warren Buffett hefði að segja. Athygli vakti að Buffett skaut föstum skotum að vogunarsjóðum. „Fólk á Wall Street hefur grætt mun meira á góðri sölumennsku en á góð- um fjárfestingum,“ sagði hann við gesti fundarins. Hann sagði eðlilegt að fjárfestar væru óánægðir með þær háu þóknanir sem vogunarsjóðir rukkuðu þegar frammistaða þeirra væri engu betri en hjá vísitölusjóð- um, að því er Bloomberg greinir frá. Algengt er að vogunarsjóðir taki og bent á að hann sé sennilega sjálf- ur kók að einum fjórða hluta. Financial Times segir Buffett hafa verið varkáran í svörum í þá sjö tíma sem spurningahluti fundarins stóð yfir. Er talið að hann hafi viljað forð- ast hvers kyns fjölmiðlafár sem smit- ast gæti yfir í stjórnmálaumræðuna, en Buffett er yfirlýstur stuðnings- maður framboðs Hillary Clinton. Hluthafafundurinn felldi, með miklum meirihluta atkvæða, tillögu þess efnis að Berkshire ynni skýrslu um þau áhrif sem loftslagsbreyting- ar gætu haft á tryggingarekstur samsteypunnar. Umhverfisverndar- sinnar í hópi hluthafa hafa þrýst á Buffett að lýsa yfir stuðningi við breytingar á lögum sem fælu í sér gjald á losun koltvísýrings. Buffett hefur fullyrt að loftslagsbreytingar hafi ekki haft áhrif á tryggingabóta- greiðslur fyrirtækisins og laga megi iðgjöld að hækkuðum bótagreiðslum ef þess reynist þörf. Hagnaður af rekstri Berkshire Hathaway dróst saman um 12% á fyrsta fjórðungi ársins og nam sam- tals 3,7 milljörðum dala. Var það einkum tvennt sem skemmdi fyrir á fyrstu þremur mánuðum ársins: ann- ars vegar kostnaður í trygginga- starfsemi Berkshire vegna hagléla í Texas og hins vegar minnkað magn flutninga hjá BNSF-lestafyrirtæk- inu. Buffett gagnrýnir vogunarsjóði  Á aðalfundi Berkshire var meðal annars rætt um offitu, gosdrykki og loftslagsbreytingar Reuters Þamb Warren Buffett sló á létta strengi með hluthöfum þegar hann var spurður um nýlega rannsókn á skaðsemi gosdrykkja. Mynd úr safni. ● Flugvélaframleiðandinn Bombardier birti uppgjör fyrsta ársfjórðungs í lok síðustu viku. Tekjur námu 3,9 millj- örðum dala en voru 4,4 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Meðal flugfélaga sem nota vélar frá Bombardier er Flugfélag Íslands sem rekur tvær Q400 vélar og tvær Q200 vélar. Rekstur Bombardier virðist á réttri leið en tilkynnt var um stóra pönt- un flugfélagsins Delta á allt að 125 vél- um af gerðinni CS 100. Segir Alain Bellemare, forstjóri Bombardier, að reksturinn sé á áætlun. ai@mbl.is AFP Delta með stóra pönt- un hjá Bombardier Landsbankinn auglýsir í dag til sölu allan eignarhlut sinn í fjárfest- ingarfélaginu Eyri Invest. Er um að ræða 23,3% alls hlutafjár í félag- inu. Í auglýsingunni kemur fram að Eyrir Invest á 29,3% hlut í Marel hf. og 33,7% hlut í fjárfestingar- félaginu Eyrir Sprotar slhf. sem fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum. Var eiginfjárhlutfall Eyris 54,5% um síðustu áramót. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir það hafa verið stefnu bankans að minnka stöður í óskráðum hlutabréfum og hafi áður komið fram að bankinn hefði í hyggju að selja hlut sinn í Eyri In- vest. „Eignasafn Eyris hefur ein- faldast töluvert á undanförnum Landsbankinn selur 23,3% í Eyri Stefnan Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.  Fjárfestingarfélagið á nærri 30% hlut í Marel  Erlendar eignir verið seldar  Þrýstingur frá FME um að bankinn selji hlut sinn í félögum í óskyldum rekstri misserum þar sem erlendar eignir félagsins hafa verið seldar,“ segir hann. „Stærsta eign Eyris er 29,3% hlutur í Marel en það félag er nýbúið að birta afkomutölur fyrsta ársfjórðungs og því nýjar upplýs- ingar um það félag nú aðgengilegar fjárfestum. Fjármálaeftirlitið hefur einnig verið að þrýsta á bankann um að selja hlut sinn í félögum í óskyldum rekstri. Í ljósi alls þessa töldum við að núna væri gott að auglýsa þessa eign til sölu.“ ai@mbl.is Umsvif » Eyrir Invest var stofnað árið 2000. » Félagið hefur m.a. fjárfest í Össuri, Fokker og Stork. Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.