Morgunblaðið - 02.05.2016, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 02.05.2016, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016 Hjólavagnar Fást í verslun okkar að Bíldshöfða 10 Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is/hjolavagnar | stilling@stilling.is Einnig úrval af pappadiskum, glösum og servéttum Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • okkarbakari.is • facebook.com/okkarbakari FLOTTU AFMÆLISTERTURNAR FÁST HJÁ OKKUR Skoðið úrvalið á okkarbakari.is Upp úr sauð á milli mótmælenda og lögreglunnar í París í miðjum hátíðarhöldum í tilefni af degi verka- lýðsins og beitti lögreglan táragasi. Allt að 17.000 reiðir mótmælendur gengu um götur Parísar vegna fyrirhugaðra breytinga á vinnulöggjöfinni og réðust margir þeirra að lögreglunni með grjóti og flöskum. AFP Reiðialda gekk yfir á degi verkalýðsins Þýski stjórnmálaflokkurinn Val- kostur fyrir Þýskaland (AfD) tók upp stefnuskrá á flokksþingi sínu í gær þar sem kallað er eftir ströng- um reglum um innflytjendur og þá sem aðhyllast íslam. Fulltrúar á flokksþinginu sam- þykktu að banna bænaturna, bænakall og andlitsblæjur sem hylja andlitið, með þeim rökum að íslam væri „ekki hluti af Þýska- landi“. Einn fulltrúanna kallaði eft- ir frekara samtali við hópa músl- ima en hann uppskar fyrirlitningu samflokksmanna sinna fyrir. Þetta kemur fram í frétt hjá BBC. Skoð- anakannanir sýna að flokkurinn sé sá þriðji stærsti í Þýskalandi. Upphaf flokksþingsins, sem haldið var í Stuttgart, einkenndist af átökum, en hundruð mótmæl- enda af vinstrivængnum, sem lok- uðu vegum, brenndu hjólbarða og köstuðu flugeldum, voru tekin höndum. Íslam „ekki hluti af Þýskalandi“  Samþykkir stefnu gegn innflytjendum „Við erum algerlega andsnúin gyð- ingahatri óháð því hvernig það er sett fram innan Verkamanna- flokksins,“ sagði Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, en tveimur þingmönn- um flokksins var vikið tímabundið úr flokknum í kjölfar ummæla um gyðingahatur. Ken Livingstone, fyrrverandi borgarstjóri Lundúna, hélt því fram í viðtali við BBC á föstudag að Hitler hefði stutt síonisma, „áður en hann varð brjálaður og myrti sex milljónir gyðinga“. Þetta sagði hann til varnar Naz Shah, þingmanni flokksins, sem hafði verið rekinn tímabundið fyrir að láta sér líka við stöðufærslu á Facebook þar sem lagt var til að Ísraelum yrði vísað úr landi. Rannsókn á gyðingahatri Að halda því fram að Verka- mannaflokkurinn eigi við gyðinga- hatur að stríða er ekkert annað en „rógsherferð“ gegn flokknum, sagði Diane Abbott, einn nánasti samherji Corbyns, við BBC. Sagði hún Verkamannaflokkinn hafa boðið kynþáttahatri birginn „löngu áður en það varð vinsælt“. Corbyn tilkynnti að kynþáttahatur yrði rannsakað innan flokksins, en hann hefur verið gagnrýndur fyrir að loka augunum fyrir undirliggj- andi gyðingahatri í flokknum. Spurð hvers vegna væri verið að rannsaka gyðingahatur í flokknum ef það væri ekki vandamál sagði Abbott það spurningu um að gera reglur og ferli skýr. „Það væri skrýtið ef þetta hefði engin áhrif en að gyðingahatur sé viðvarandi vandamál hjá flokknum stenst enga skoðun,“ sagði hún. lauf- ey@mbl.is Gyðingahatur skekur Verkamannaflokkinn  Ekkert annað en „rógsherferð“ AFP Vandi Corbyn stendur í ströngu. Heimsveldin leggja nú mikið kapp á að finna leið til að stöðva blóðbaðið í Aleppo-borg í Sýrlandi, en John Kerry, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, hóf að þrýsta á um frið í Genf í gær. Viðurkenndu fulltrúar Bandaríkjanna að mikið ylti á stuðningi Rússa við málið, en þeir hafa hafnað því hingað til að stöðva bandamann sinn, Bashar al-Assad, forseta Sýrlands. „Við eigum enn í beinum samræðum við Rússa,“ sagði Kerry. Friðaráætlun Samein- uðu þjóðanna, sem nýtur stuðnings stjórnvalda í Washington og Moskvu, hangir á bláþræði eftir vikulöng átök sem hafa kostað hundruð manna lífið. Leita leiða til að stöðva blóðbaðið SÝRLAND Barack Obama Bandaríkjaforseti sló á afar létta strengi í ræðu sinni á árlegum kvöldverði með fréttariturum í fyrrakvöld. Gerði hann m.a. grín að auknum vinsældum sínum en hann hefði ekki verið „svona hátt upp síðan ég var að velja mér að- alfag“. Vísar hann þar til kannabis- reykinga sinna í háskóla. Þá tók hann einnig fyrir bæði Bernie Sand- ers og Donald Trump. Sló á létta strengi með fréttariturum Barack Obama BANDARÍKIN Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, hét því á mótmælafundi í gærdag að berjast til „síðasta blóðdropa“, en komandi vika gæti orðið hennar síðasta í embætti ef hún verður ákærð fyrir embættisbrot. Hátíðarhöld í tilefni af degi verkalýðsins í Brasilíu voru mörk- uð reiði vegna ákærunnar á hendur Rousseff, sem hefur sagt að kæran sé uppspuni andstæðinga hennar. Rousseff berst til „síðasta blóðdropa“ BRASILÍA Þúsundir mótmælenda ruddust inn á Græna svæðið í höfuðborginni Bagdad í Írak á laugardaginn var, en margir þeirra fóru þaðan í gær. Brotthvarf þeirra kom til af virð- ingu við fórnarlömb sprengjuárás- ar í borginni Samawa í suðurhluta landsins í gær þar sem 33 létu lífið og tugir særðust. Samtökin Ríki íslams lýstu árásinni á hendur sér. Mikil ólga hefur einkennt ástandið í Bagdad síðustu daga og æstir mótmælendur rifu niður múrsteinsveggi í kringum Græna svæðið á laugardag, en þar eru helstu stjórnarbyggingar landsins. Mótmælendurnir héldu þaðan inn í þinghúsið og mótmæltu aðgerða- leysi þingsins. Sæki mótmælendur til saka Forsætisráðherra Íraks, Haider al-Abadi, hafði fyrirskipað að þeir sem staðið hefðu að árásum og skemmdarverkum í borginni skyldu sóttir til saka. Öryggis- verðir gripu þó ekki til aðgerða gegn mótmælendum á Græna svæðinu í gær. Mótmælendur réðust á að minnsta kosti einn þingmann, bíla þingmanna og skrifstofur þeirra. Hætta mótmælum vegna sprengjuárásar  33 létu lífið í sprengjuárás í Samawa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.