Morgunblaðið - 02.05.2016, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.05.2016, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Um hálft árer liðið fráþví að Zika-veiran bloss- aði upp í Brasilíu og öðrum ríkjum Suður-Ameríku. Útbreiðslu veirunnar, sem moskítóflugur dreifa, fylgdi ný og óhugn- anleg þróun: fjölgun fóst- urskaða, sem einkum fólst í því að börn fæddust með minna höfuð en eðlilegt getur talist. Þau börn sem verst urðu úti létust innan skamms, en þau sem eftir lifa mega eiga von á því að búa við skertan þroska það sem eftir er ævinnar. Nýjar rannsóknir benda til þess að afleiðingar veirunnar séu jafnvel enn skelfilegri en talið hafði verið, þar sem heili ungbarnanna sé beinlínis eyði- lagður af veirunni. Grunn- starfsemi hans, þar á meðal hugsun og sjón, sé skert. Þá sé veruleg hætta á að börnin muni aldrei geta talað eða gengið. Það sem gerir sjúkdóminn ekki síst skelfilegan er að áhrif hans koma vart í ljós fyrr en um of seinan, þegar börnin fara að fæðast. Heilbrigðis- starfsfólk í Suður-Ameríku býr sig nú undir að takast á við eftirköstin sem munu fylgja umönnun þeirra. Enn hefur ekki tekist að þróa bóluefni gegn Zika- veirunni og hefur athygli manna því beinst að leiðum til þess að hindra út- breiðslu hennar, einkum með því að ráðast gegn þeim moskítóflugum sem hafa borið hana. Það gæti þó verið hæg- ara sagt en gert, þar sem nýj- ustu fregnir herma að veiran hafi nú fundist í öðru afbrigði moskítóflugunnar en áður, og að það geti farið nokkuð norð- ar á bóginn en hin. Bandaríkjamenn búa sig nú undir komu veirunnar og er talið að hún kunni að hafa mik- il áhrif þar í sumar, einkum í Suðurríkjunum. Heilbrigðis- starfsmenn vestra telja þó ólíklegt að faraldurinn verði jafn illvígur þar og hann hefur verið í Brasilíu, þar sem að- stæður á bandarískum heim- ilum séu allt aðrar og betri en sunnar á hnettinum. Engu að síður sé veiran mikið áhyggju- efni. Það flækir óneitanlega myndina að Ólympíuleikar verða haldnir í sumar Brasilíu, landinu sem hefur helst orðið fyrir barðinu á faraldrinum. Gert er ráð fyrir að fjöldi ferðamanna frá öllum heims- hornum, auk íþróttamannanna sjálfra, ferðist til landsins vegna leikanna. Það verður áskorun fyrir brasilísk stjórn- völd, sem og alþjóðlegar heil- brigðisstofnanir, að tryggja það að faraldurinn fari ekki úr böndum í sumar. Huga þarf að frekari vörnum gegn Zika-veirunni} Óhugnanlegur faraldur Forseti lýðveld-isins og mark- tækir stjórn- málamenn hafa sagt að eðlilegt sé að „bregðast við“ kröfum mæti hópur á Austur- völl og hlýði þar á stóryrtar ræður, oft útbelgdar af fullyrð- ingum sem eiga litla eða enga stoð. Þetta er óvenjuleg af- staða. Það ber að hlusta, en efnið hlýtur að ráða viðbrögð- unum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var úthrópuð þegar hún hafði þrek til að benda á að mótmæl- endur væru ekki þjóðin, þótt þeir töluðu umboðslaust í nafni hennar. Sjálfsagt er að horfa til hræringa í þjóðfélaginu við stefnumótun og stjórnun lands. En það sýnir alvarlega skort á lágmarksfestu að lúta offorsi, og er lýðræðislegt hættuspil. Því er gefið undir fótinn að nái hávaðamenn 5.000 manns á Austurvöll, sem er fjöldinn sem völlurinn rúmar, og fimm- hundruð þeirra grýti Alþingis- húsið eða takmarki málfrelsi þingmanna með hávaða, þá fái þeir beygt löglega kjörna ríkis- stjórn í duftið. Ríkisstjórnin hefur hundrað þúsund kjósendur á bak við sig, fólk sem umgengst lýðræðið af virðingu. Um helgina þyrptust tug- þúsundir mótmælenda í mið- borg Parísar og sökuðu Hol- lande forseta um svik við hugsjónir vinstrimanna. Stærst þeirra var að sam- þykkja lög sem auðvelda fyrir- tækjum að ráða og reka starfs- menn. Tilgangur laganna er að bæta aðgengi ungs fólks að vinnumarkaðnum, en nærri 30 prósent þeirra eru án vinnu. Samtök sem kenna sig við herópið „rísið upp við rökkur- tíð“ (La Nuit Debout) standa á bak við mótmælin. Þau voru friðsamleg þar til óeirðaseggir tóku sviðið eins og iðulega ger- ist. Þegar þeir hunsuðu fyrir- mæli skaut óeirðalögregla táragasi. Í átökunum særðust 27 lögreglumenn og allmargir mótmælendur og missti einn þeirra sjón á auga. Þetta er hörmulegt, en á Hollande að hverfa frá umbótum sínum? Það er víða beitt valdi gegn lýðræðinu} Skal hampa hávaðamönnum? S taðan er 2-1 fyrir Þór Akureyri í átta liða úrslitum bikarsins. Níu og hálfs árs gamall patti og faðir hans sitja áhyggjufullir við útvarpið þegar sá yngri fær þá hugmynd að kannski muni gengið snúast við ef hann setji á sig sömu húfuna og hann er alltaf með á KR-vellinum. Eitt leiðir af öðru og fyrr en varir sitja tveir full- dúðaðir KR-ingar í eldhúsinu sínu í Reykjavík og hlusta á útsendinguna frá Akureyri. Leikur- inn fer 4-2 fyrir Þór. Fyrsti leikur Íslandsmótsins 1992. Nýliðarnir koma í heimsókn. Sá yngri man ekkert eftir þessu liði í gulu og svörtu búningunum en pabb- inn segir að hann hafi alltaf verið logandi hræddur við úrslitin þegar þessi lið mættust í gamla daga. KR kemst tvisvar yfir, nýliðarnir jafna tvisvar. Heilt yfir fínn leikur en úrslitin svekkjandi. Lokaumferð sama árs. Nýliðarnir eru orðnir Íslands- meistarar og KR tryggir sér annað sætið með 9-1 sigri á erkifjendunum. „Sáuð þið markið?!“ hrópar Arnar Björns- son þegar Atli smyr honum í vinkilinn. Leikurinn er tekinn upp á vídeó og spilaður oft næstu árin, sérstaklega þegar illa gengur hjá þeim svarthvítu. Skagamenn koma enn og aftur í heimsókn. KR lendir 2-1 undir. Þrenna frá Mihajlo Bibercic tryggir KR-ingum sigur á Íslandsmeistarakandídötunum og heldur þeim enn inni í mótinu. Leikurinn snýst við um það leyti sem feðgarnir knáu koma sér fyrir á sínum stað við grindverkið gegnt stúkunni. Þegar þriðja markið er skorað standa þeir sem fastast á „lukkustaðnum“ sínum þar til flautað er af. Tuttugu árum síðar standa þeir þar enn þegar KR sækir út að Meistaravöllum. Hvalfjörður. Heimleið ári síðar. Grafarþögn ríkir í bílnum alla leiðina. Allt í einu gellur í föðurnum: „Að minnsta kosti þarf maður ekki að fara á Eiðistorg í kvöld.“ KR-völlur, 1998. Um sexþúsund manns mæta á hreinan úrslitaleik um titilinn. Eyja- menn komast yfir snemma leiks. KR-ingar skora en Eyjólfur flautar markið af og dæmir vítaspyrnu. Boltinn hjá Gumma er líklegast ekki enn lentur. Happasokkar sonarins eru lagðir á hilluna, fram til næsta vors. Ári síðar, á afmælisdegi Michaels Jackson, mætast sömu lið aftur. Að þessu sinni hafa KR-ingar 3-0 sigur og Stjáni ver víti. Fyrsti Íslandsmeistaratitillinn í 31 ár blasir við. Dagurinn í dag. KR tekur á móti Víkingum í fyrsta leik. Væntingum hefur verið stillt í hóf að þessu sinni. Tveir hjátrúarfullir feðgar ræða hvort þeir ætli á völlinn. Að þessu sinni er sá yngri orðinn faðir líka. Sonurinn er of ungur til þess að geta farið með en hann mun fyrr en varir fá að kynnast öllu þessu, hjátrúnni, lukkustöðunum á KR- vellinum, happasokkunum og umræðum um hvort það boði ógæfu að fara á útileiki eða ekki. Einhverjir kynnu að kalla þetta allt saman brjálæði. Ég hefði hins vegar alls ekki fyrir mitt litla líf viljað missa af neinu, hvorki gleðinni né tárunum. Áfram KR! Svarthvít minningabrot Stefán Gunnar Sveinsson Pistill STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Ný gögn um matarsóun íEvrópu sýna að hverEvrópubúi hendir aðmeðallagi um 173 kg af mat á ári, sem er mun meira en áætlað var. Samanlagt er um 88 milljónum tonna af mat hent ár- lega, að andvirði um 143 milljarðar evra. Þetta þýðir að um 20% af þeim mat sem er framleiddur innan Evrópu enda í ruslinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Er þar vísað til til FUSIONS- verkefnisins (Food Use for Social Innovation by Optimizing Waste Prevention Strategies), sem er samstarfsverkefni styrkt af Evr- ópusambandinu með það að mark- miði að sporna gegn matarsóun. Þar kemur jafnframt fram að gögn úr rannsókn á matarsóun í Evrópu komi einungis frá fjórðungi landa Evrópusambandsins. 1.000 heimili í úrtaki Ísland hefur nú verið styrkt til þess að taka saman gögn um matar- sóun á Íslandi. Guðmundur Bjarki Ingvarsson, sérfræðingur í neyt- endateymi hjá Umhverfisstofnun, er einn starfsmanna sem standa að gagnasöfnun þessa dagana. Til þess voru þúsund heimili og um 700 fyrirtæki, valin með slembiúrtaki, fengin til þess að mæla matarsóun. „Heimilin hafa verið að skrá núna í apríl og fyrirtækin munu flest skrá niðurstöður sínar í maí,“ segir Guð- mundur. Spurður hvort ástæða sé til þess að ætla að matarsóun sé meiri eða minni á Íslandi en annars staðar í Evrópu segir Guðmundur svo ekki vera. Ekki hefur áður ver- ið gerð eins umfangsmikil rannsókn á matarsóun á Íslandi. 48 kíló á hverju heimili Landvernd og Reykjavíkur- borg í stóðu í fyrra að lítilli rann- sókn á matarsóun á heimilum. Niðurstöður forrannsóknarinnar benda til að heildarmatarsóun hvers einstaklings sé a.m.k. 48 kg á ári, sem jafngildir tæpum 150 þús- und krónum fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Hafa ber í huga að ólíkt þeirri rannsókn er nú verið að mæla alla virðiskeðjuna; allt frá framleiðslu til heildsala, birgja og verslana auk heimila og stóreld- húsa. Umhverfisstofnun fékk styrk frá Hagstofu Evrópusambandsins til að gera rannsóknina. Guð- mundur segir ekki alla sammála um það hvernig meta eigi matarsóun en í íslensku rannsóknini er notast við aðferð sem Hagstofa ESB legg- ur til. Að sögn Guðmundar mun rannsókninni ljúka í maí og í fram- haldinu hefst úrvinnsla gagnanna. „Matarsóun er mikið í umræðunni og ESB er búið að setja sér mark- mið um að draga úr matarsóun um helming. Markmiðið nær til allra í keðjunni um að matvælin nýtist betur,“ segir Guðmundur. Í þessu samhengi bendir hann á að bein tengsl séu á milli matarsóunar og loftslagsmála, þar sem nokkuð stór- an hluta af losun gróðurhúsa- lofttegunda megi rekja til mat- vælaframleiðslu og matarsóunar. Er glíman við matarsóun hluti af markmiðum Íslands um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Spurður hvort frekar megi tengja matarsóun heimilum en fyrir- tækjum segir Guðmundur að al- mennt sé heldur meiri sóun á heim- ilum en hjá fyrirtækjunum. „Það eru því hagsmunir allra, bæði fyrir- tækja og heimila, að huga að þessu til að draga úr rekstarkostnaði,“ segir Guðmundur. Komið er að Íslandi að mæla matarsóun Morgunblaðið/Kristinn Matur Talsvert af matvöru í verslunum selst ekki og fer því beint í ruslið. Enn stærri hluti matvöru fer þó í ruslið hjá heimilum landsins. Nú má finna ýmsar upplýsingar um matarsóun á vefsíðunni matarsoun.is sem sett hefur verið á laggirnar fyrir tilstilli Umhverfisstofnunar. Á henni má m.a. finna fróðleik um matarsóun og tengsl við loft- lagsbreytingar, uppskriftir þar sem áhersla er lögð á að nýta allan mat og ráðleggingar til fólks um hvernig draga megi úr sóuninni. „Eins má geta þess að nýlega var gefin út stefna um- hverfis- og auðlindaráðherra um úrgangsforvarnir undir yfir- skriftinni „Saman gegn sóun“. Þar er matarsóunin áherslu- flokkur árið 2016–2017,“ segir Guðmundur. Samkvæmt rann- sóknum í Bretlandi hefur átak gegn matarsóun skilað rúmlega 20% minni sóun þar í landi. Ef dregið yrði úr matarsóun um 20% væri t.d. 1.150 tonnum minna hent af mat sem þýddi um 900 milljóna sparnað sam- anlagt fyrir íbúa Reykjavíkur. Matarsoun.is komin í loftið NÝ HEIMASÍÐA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.