Morgunblaðið - 02.05.2016, Side 18

Morgunblaðið - 02.05.2016, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016 ✝ Guðlaug Pét-ursdóttir fædd- ist í Reykjavík 17. desember 1956. Hún lést í faðmi fjöl- skyldu sinnar á heimili sínu að Kleppsvegi 40 22. apríl 2016. Foreldar hennar eru Þórunn Sigurð- ardóttir hjúkr- unarritari frá Reykjavík, f. 21. mars 1929, og Pétur Ágúst Þorgeirsson múrarameistari frá Akureyri, f. 2. janúar 1928, d. 24. apríl 2003. Systkini Guðlaugar eru Sigríð- ur, f. 1952, maki Jónas Már Ragnarsson, f. 1951. Þorgerður, f. 1954, maki Öyvind Glömmi, f. 1952. Gísli, f. 1959. Rúna, f. 1965, maki Egill Lárusson, f. 1964. Barn Guðlaugar og Guðjóns Þórs Péturs- sonar er Pétur Þór, f. 6. september 1976, hann er kvæntur Sig- ríði Þóru Þorsteins- dóttur, f. 2. ágúst 1980, barn þeirra er Natalía, f. 2014. Barn Péturs og Kristínar Báru Bryndísardóttur er Pétur Arnar, f. 2003. Börn Guðlaugar og Finns Gíslasonar, f. 21. apríl 1949, d. 27. janúar 2005, eru a) Gísli, f. 22. nóvember 1987, sam- býliskona hans er Kolbrún Gígja Björnsdóttir, f. 6. desember 1992, dóttir þeirra er óskírð Gísladóttir, f. 2016. Barn Gísla og Hildar Torfadóttur er Amelía Rós, f. 2012, c) Elísa, f. 17. september 1989, barnsfaðir hennar er Andri Þór Guðlaugsson, f. 5 mars 1990, dóttir þeirra er Gabríela, f. 2013. Þann 17. desember 2010 giftt- ist Guðlaug Bjarna Júlíusi Ein- arssyni vélstjóra frá Reykjavík, f. 22. apríl 1953. Guðlaug ólst upp með stór- fjölskyldu sinni á Flókagötu 23 í Reykjavík og kláraði Húsmæðra- skóla Reykjavíkur 1974. Hún byrjaði sinn starfsferil í Tré- smiðjunni Víði, en lengst af vann hún við verslunarrekstur þ.á m. í tískuvöruversluninni Quadro á Laugavegi. Eftir að yngstu börn hennar fæddust sinnti hún bæði verslunar- og húsmæðrastörfum. Nú í seinni tíð áttu barnabörnin hug hennar allan . Útför Guðlaugar verður gerð frá Fríkirkjunni í dag, 2. maí 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku besta mamma mín, ég er svo stoltur af því að fá að vera son- ur þinn, erfiðasta barnið sem gerði mig svo sérstakan eins og þú sagð- ir, ég hafi verið erfiðasta fæðingin og ekki fór það nú batnandi. En ég fór í flugvirkjanámið með þinni hjálp og þínum stuðningi. Eitt- hvað sem ég hefði aldrei getað nema með þig mér við hlið. Svo komstu út til Grikklands í útskrift- ina mína og þú varst svo glöð yfir því sem okkur tókst, það eina skipti mig máli. Ég er þér ævin- lega þakklátur fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og stelpuna okkar. Amelía mun alltaf elska þig og sakna, ég á endalaust af sögum til að segja henni frá bestu mömmu/ömmu í heimi og tala ekki um klárustu. Þú varst alltaf með svör við öllu og ef maður þurfti að vita eða finna eitthvað þá voru all- ar líkur á að þú vissir svarið. Elsku mamma mín, ég mun aldrei gleyma þegar við áttum ekkert að borða og ekki til dropi af djús, en einhvern veginn tókst þér að búa til besta mat sem maður gat feng- ið, úr nánast engu – ótrúleg. Ég mun aldrei gleyma hversu góður kokkur og eldabuska þú varst, eins og ég sagði alltaf, þú ert með hreinsi- og eldunar„sjúkdóm“. Það verður allt að vera fullkomið og fínt í kringum þig, eins og allt sem þú gerðir. Ég er svo þakk- látur fyrir þann tíma sem við átt- um saman, seinustu jól voru þau bestu sem ég hefði getað hugsað mér og að sjá hvað þú varst glöð og hamingjusöm með allt, viljug til að sigra þessa viðbjóðslegu veiki, en því miður var ekkert hægt að gera nema bíða og vona. Þú ert sterkasta kona sem ég hef nokk- urn tímann hitt. Daginn eftir að þú fórst kom litla stelpan okkar í heiminn, sem við höfðum beðið svo lengi eftir og hlökkuðum til að hitta, en hún kom heldur betur á góðum tíma inn í okkar líf og ég mun alltaf horfa á hana litlu Dollu mína og brosa, því þú passaðir að hún kæmi á þeim tíma sem ég þurfti mest á henni að halda. Ert best, ég hlakka til að hitta þig og pabba. En nú er ég að fara að passa litlu stelpurnar okkar og gera það besta úr þessu eins og við töluðum um, elsku mamma mín. Ég hugsa um þig alla daga og hlæ og græt til skiptis. Þú ert og verð- ur alltaf númer eitt, elsku mamma mín. Hvíldu í friði og haltu áfram að vera þú, elsku mamma mín. Þinn sonur, Gísli. Guðlaug Pétursdóttir  Fleiri minningargreinar um Guðlaugu Pétursdóttur bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. ✝ Stefán HjörturHrólfsson fædd- ist á Ábæ í Austurdal 1. júlí 1927. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 18. apríl 2016. Foreldrar hans voru Valgerður Kristjánsdóttir, f. 25. maí 1988, d. 8. janúar 1960, og Hrólfur Þor- steinsson, f. 21. maí 1886, d. 14. október 1966. Systkini hans voru Friðfinna, fædd 1909, látin, Ingibjörg Steinvör, fædd 1910, látin, Jórunn Jónheiður, fædd 1914, látin, Kristbjörg, fædd 1917, látin, Kristján, fæddur 1921, látin, Anna Margrét, fædd 1930, hún býr á Sauðárkróki. Eiginkona Stefáns var Hildi- gunnur Þorsteinsdóttir, fædd á Efri-Vindheimum 24. desember 1930, d. 22. desember 2002. Foreldrar henn- ar voru Marselína Hansdóttir, f. 27. ágúst 1899, d. 3. ágúst 1987, og Þorsteinn Steinþórsson, f. 19. júní 1884, d. 4. júlí 1945. Stefán og Hildi- gunnur giftu sig 24. desember 1954. Þau áttu eina dóttur: Val- gerði, f. 14. nóvember 1956, hún starfar á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Maki Jón M. Magn- ússon, f. 2. ágúst 1944. Eiga þau þrjár dætur. Þær eru: 1) Hildi- gunnur Rut, f. 15. júní 1978, fram- kvæmdastjóri og á hún tvö börn, Söru Maríu, nema og fimleika- þjálfara, f. 16. febrúar 2001, og Jón Óla nema, f. 23. ágúst 2005. 2) Kolbrún, f. 2. október 1981, dag- foreldri. Hún á tvær dætur, Hildi- gunni Hólm nema, f. 3. nóvember 2007, og Máneyju Hólm, f. 2. mars 2010. 3) Stefaníu Hrönn, f. 30. desember 1982, viðskiptafræðing, hún á eina dóttur Önju Rán, f. 17. júlí 2010. Stefán fæddist í Ábæ í Aust- urdal og bjó þar til tveggja ára aldurs en þá flutti fjölskyldan á Stekkjaflatir. Þar bjó Stefán þar til hann keypti Kelduland árið 1954. Sú jörð hafði þá verið í eyði í yfir 20 ár. Hann byggði hana alla upp og ræktaði upp tún. Hann og Hildigunnur bjuggu á Keldulandi allt til haustsins 2002 en þá flytja þau til Akureyrar. Stefán var þó flest sumur eftir það á Keldulandi í heyskap. Stefán var gangnafor- ingi í mörg ár í Austurdal. Útför Stefáns fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 2. maí 2016, klukkan 13.30. Meira: mbl.is/minningar Það var á sumardegi fyrir rúm- um 30 árum að leiðir okkar Stef- áns lágu saman í fyrsta sinn. Mér fannst þetta hálf skrítinn karl en man að hann var sérlega glaðleg- ur. Enda var það eitt af persónu- einkennum Stebba að gleðin var ríkjandi og stutt í hláturinn. Hann var vinmargur og skilur eftir hafsjó minninga í hugum þeirra sem áttu samleið með honum. Hann lifði af því sem að landið gaf var bóndi og mikill hestamað- ur. Hann hugsaði vel um hrossin sín og lagði áherslu á eiga sterka og fallega hesta sem færu vel með knapann. Hann ræktaði hross alla sína tíð, en þau fóru sjaldnast fyrir kynbótadóm, þar sem hann sá lít- inn kost við það að ríða á ættbók- inni. Hann átti marga úrvals hesta, einn þeirra var Öðlingur sem lengi var aðal reiðhesturinn hans. Ég sé í anda þá félaga á fal- legu tölti á framandi slóðum. Hann stundaði hestakaup af mik- illi list og hafði gaman af. Það var ætíð gott að koma að Keldulandi til þeirra hjóna, hans og Hildigunnar, til að taka þátt í bústörfum, undirbúa hestaferðir eða bara til að spjalla í eldhúsinu. Þau voru höfðingjar heim að sækja og Stebbi alltaf tilbúinn að lána ferðahesta. Það var sérstak- lega gaman að ferðast á hestum með Stebba. Hann var mikið nátt- úrubarn og var umhugað um að aðrir lærðu að meta náttúruna. Ekki síst fegurð Austurdalsins sem var honum svo kær. Ég leggst í grasið og loka augunum, heyri lind á heiðinni, djúpt undir jörð og sól streymir hún hljóðlát, geymir hún landið, líf hvers lítils blóms og dýrs og manns sem það ól. (Snorri Hjartarson.) Að lokum vil ég þakka Stefáni, vini mínum, samfylgdina, hann var vissulega einn af þeim sem gerði lífið litríkara. Einnig sendi ég Val- gerði, dóttur hans, og öðrum að- standendum samúðarkveðjur. Anna Hlín Bjarnadóttir. Stefán Hjörtur Hrólfsson  Fleiri minningargreinar um Stefán Hjört Hrólfs- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Jón BjarniHelgason fædd- ist í Vík í Mýrdal 18. febrúar 1947. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 24. apríl 2016. Foreldrar hans voru Helgi Helgason smiður, f. 30. júní 1911, d. 26. október 1985, og Jóhanna Halldórsdóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1909, d. 15. febrúar 1969. Systkini Jóns eru: Halldór Hörð- ur, Helgi Grétar, Valgeir Ólafur, Bára, Sævar og Guðjón. Jón kvæntist 6. mars 1971 Valdísi Tómasdóttur. Foreldrar hennar eru Björg Ólafsdóttir hús- freyja og Tómas Oddsson sjómaður. Börn Jóns eru: Ísak Leifsson, Anton Karl Þorsteinsson, Ævar Örn og Björg. Barnabörnin eru vel á annan tuginn. Jón fluttist frá Vík til Njarðvíkur þegar hann var tveggja ára og bjó þar til ársins 1996, þegar leiðin lá til Reykjavík- ur. Jón lærði málaraiðn en hann starfaði í fríhöfninni í yfir 30 ár. Hann æfði og keppti í körfubolta með UMFN til margra ára en seinna starfaði hann mikið fyrir sundíþróttina, fyrst með UMFN Jón var helsti hvatamaður stofn- unar Sundfélags Suðurnesja, þar sem hann var formaður. Hann var einnig gjaldkeri og varaformaður Sundsambands Íslands, SSÍ, og fór í margar ferðir sem farar- stjóri með landsliðinu í sundi. Þá sat hann í bæjarstjórn Njarðvík- ur. Eftir að Jón flutti til Reykja- víkur söng hann með Karlakór Reykjavíkur, Óperukórnum og Kirkjukór Kópavogs. Jón verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 2. maí 2016, klukkan 13. Elsku frændi. Þú ert farinn. Svo skyndilega, og kemur ekki aftur. Þú sem varst alltaf svo hress og kátur. Það er í mér mikill söknuður en ég veit að það hefur verið tekið vel á móti þér hinum megin af mömmu og bræðrum þínum, honum pabba, Sævari, Guðjóni og Grétari, for- eldrum þínum og ekki síst Jóhönnu systur minni. Það hafa orðið fagn- aðarfundir hjá ykkur en að sama skapi verður þín sárt saknað meðal okkar sem eftir erum. Takk fyrir allar ferðirnar sem við fórum saman í gamla daga í hjólhýsið á Laugarvatni og takk fyrir ferðirnar í Víkina sem þið Guðjón fóruð með pabba, eftir að mamma dó. Ykkur bræðrum þótti nú aldeilis gaman að vera saman í Víkinni, sem var ykkur afar kær staður, enda komuð þið alltaf end- urnærðir heim eftir dvöl þar. Þú reyndist okkur vel þegar við systkinin misstum mömmu okkar, Jóhönnu systur og pabba, varst til staðar þegar á þurfti að halda. Ómældar þakkir frá okkur í fjöl- skyldunni fyrir það. Að leiðarlokum, elsku frændi, er það fyrst og fremst þakklæti sem kemur upp í hugann, þakk- læti fyrir það viðmót og hlýju sem þú sýndir mér og fölskyldu minni meðan á samfylgd okkar stóð og takk fyrir alla þá hlýju sem þú sýndir alltaf börnunum mínum. Valdís, Ísak, Ævar, Björg, Ant- on og barnabörn. Ykkar missir er mikill. Við fjölskyldan vottum ykkur dýpstu samúð. Elsku frændi, minning þín lifir. Kveðja og takk fyrir allt. Guðrún Bergmann Valgeirsd. Jón Bjarni Helgason  Fleiri minningargreinar um Jón Bjarna Helgason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Karl SigurgeirÓskarsson fædd- ist á bænum Dal við Múlaveg 23. maí 1942. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold 23. apríl 2016. Foreldrar hans voru Óskar Jacob- sen, fæddur 29. jan- úar 1923, dáinn 20. október 1999, og Guðrún Áslaug Magnúsdóttir, fædd 11. mars 1924, d. 10. sept- ember 2014. Systkini Karls voru Þórarinn Kolbeinn, f. 9.7. 1944, Magnús Friðrik, f. 17.9. 1948, d. 16.2. 1990, Sigrún Svanfríður, f. 3.2. 1950, Esther Rut, f. 22.4. 1951, Óskar Helgi, f. 20.6. 1953, Gunnar Þór, f. 23.5. 1955, d. 25. janúar 2015, Fríða, f. 6.2. 1957, d. 19.5. 2015, Elsa Inga, f. 3.8. 1960, Hjörtur, f. 2.10. 1961, og Helga, f. 8.12. 1962. Karl giftist Brynju Ásgeirsdóttur 1969 en Brynja lést í Gautaborg 1981 en Karl og Brynja dvöldu 13 ár í Gautaborg í Svíþjóð. Karl og Brynja eignuðust einn son, Anton Karlsson, f. 6. maí 1972, og fyrir átti Brynja Hildi Fríðu Þórhallsdóttur, f. 25. októ- ber 1968. Anton Karlsson er í sam- búð með Jóhönnu Óskarsdóttur, f. 9. júní 1977, og eiga þau tvær dæt- ur Viktoríu, f. 2003, og Brynju, f. 2008. Karl giftist Chaluai Yuc- hangkoon 1995 þau skildu 2005. Karl bjó fyrstu árin með for- eldrum sínum á Kampi og síðan Höfðaborg til ársins 1961 en þá fluttu þau í Útskála við Suður- landsbraut og gekk Karl í Lauga- nesskóla. Síðustu árin bjó Karl í Vogum við Vatnsleysuströnd. Útför Karls fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 2. maí 2016, klukkan 13. Elsku faðir minn, mikið er erf- itt að kveðja þig þar sem þú hefur verið stoð mín og stytta alla tíð. Þú varst alltaf til staðar og klett- ur minn í gegnum lífið. Þú varst alltaf boðinn og búinn fyrir barnabörn þín sem og aðra. Mín- ar fyrstu minningar eru frá bú- setuárum okkar í Svíþjóð, það er mér minnisstætt þegar ég beið alltaf eftir þér á bílaplaninu fyrir framan hús okkar að loknum vinnudegi og hljóp í fang þitt og þú tókst á móti mér með bros á vör. Þú varst ekki bara faðir minn heldur minn besti félagi. Eftir erfiðan móðurmissi ungur að aldri gekkst þú mér í föður- og móðurstað og veittir mér alla þá hlýju sem barn á slíkri stundu getur óskað sér. En nú er komið að kveðjustund elsku pabbi, mér er þakklæti efst í huga þegar ég hugsa aftur. Sem unglingur leið mér ávallt best í faðmi þínum og eyddum við ávallt miklum tíma saman við veiðar, bílastúss og jafnvel bara í bíltúr um höfnina sem og aðra staði og þú miðlaðir visku þinni frá föður til sonar. Þú keyrðir langt undir löglegum hraða á meðan á þessum sam- ræðum stóð, svo hægt að jafnvel löggjafinn sá ástæðu til að hafa af okkur afskipti í umferðinni, þessi samvera okkar feðgana var svo góð og eftirminnileg. Eftir því sem árin liðu fórum við svo oft saman til útlanda og vildum við fjölskyldan helst ekki fara nema þú sæir þér fært að koma með og gaman var að fylgj- ast með þér hvað þú varst trygg- ur og góður afi og faðir í þessum ferðum. Þú vaknaðir fyrir allar aldir til að fá að eyða tíma með barnabörnum þínum og naust þín best í göngutúrum með þeim. Þeim minningum munu þær búa yfir og njóta um ókomna tíð. Þú naust þín sem vinnandi maður og varst alltaf að, annan eins dugnað hef ég og aðrir sem til þín þekktu sjaldan eða aldrei séð. Þú mæltir þau fleygu orð: „Maðurinn var skapaður til að vinna.“ Og það má með sanni segja. Ekki leið á löngu eftir að vinnuferli þínum lauk að þú varðst fyrir miklum skaða sem varð þess valdandi að síðustu ár þín varst þú rúmliggj- andi á sjúkrastofnun og er ég þakklátur fyrir þann stuðning sem ég gat þá veitt þér. Oft hélt ég að þú værir að fara að kveðja en annað átti eftir að koma í ljós. Þú varst sannkallað hraustmenni af Guðs náð en nú er komið að því að þú fáir að hvíla í friði. Þú varst gull af manni og mátt- ir hvergi heyra um minni máttar, hvort sem um var að ræða dýr eða menn, svo mikil var góð- mennskan að á tímabili hirtir þú um þrjá hunda, kött, tvo hrafna og dyrnar alltaf opnar hverjum sem var. Þannig varst þú, pabbi, í hnotskurn. Þú ert mín mesta fyr- irmynd og er ég endalaust stoltur af þér. Ég mun ætíð halda á lofti kærum minningum um þig, hetj- una mína. Þá er komið að kveðjustund, minn kæri faðir, þú ert og verður alltaf hluti af fjölskyldu okkar og þín verður sárt saknað, minn elsku faðir. Takk pabbi. Þinn sonur, Anton. Karl Sigurgeir Óskarsson  Fleiri minningargreinar um Karl Sigurgeir Ósk- arsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN KRISTJÁNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 29. apríl síðastliðinn. Útför auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, . Sigrún Ragnarsdóttir, Jörgen Albrechtsen, Skúli Ragnarsson, Efemía Gísladóttir, Guðrún Helga Steingrímsdóttir, Snorri Ágústsson. Móðir okkar, BETSÝ GÍSLÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR, Stella á Aðalbóli, Vestmannaeyjum, lést föstudaginn 22. apríl á Hrafnistu. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 3. maí kl. 15. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Líkn, Vestmannaeyjum. . Viktoría Karlsdóttir, Gísli H. Jónasson, Kolbrún Stella Karlsdóttir, Birgir Jóhannsson, Kristmann Karlsson, Kristín Bergsdóttir, Ágúst Karlsson, Jensína Guðjónsdóttir, Friðrik Karlsson, Inga Dóra Sigurðardóttir, Ingibjörg Karlsdóttir, Rúnar Ágústsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.