Morgunblaðið - 02.05.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.05.2016, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016 Hljóðfæri Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Rotþrær-vatnsgeymar- lindarbrunnar. Rotþrær og siturlagnir. Heildar lausnir - réttar lausnir. Heitir Pottar. Lífrænar skolphreinsistöðvar. Borgarplast.is, Mosfellsbæ, sími 561 2211 Ýmislegt Sundbolir • Tankini Bikini • Náttföt Undirföt • Sloppar Inniskór • Undirkjólar Aðhaldsföt • Strandföt Frú Sigurlaug Fylgstu með á facebook Mjódd s. 774-7377 Mikið úrval af strandfatnaði Teg. 319304 Vandaðir og þægilegir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir. Mjúkur sóli. Litir: svart og brúnt. Stærðir: 40-47. Verð: 15.500.- Teg. 316202 Vandaðir og þægilegir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir. Mjúkur sóli. Litir: svart og brúnt. Stærðir: 40-46. Verð: 15.450.- Teg. 208204 Klassískir herraskór úr leðri í úrvali. skinnfóðraðir. Mjúkur sóli. Litir: Cognac, kaffibrúnt og svart. Stærðir: 39-47. Verð: 15.500.- Laugavegi 178 Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Sendum um allt land Erum á Facebook. Vandaðir dömuskór úr leðri. Ýmsar gerðir og litir. TILBOÐSVERÐ: 4.900.- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070.Hjólbarðar Bílastofan í Reykjanesbæ er með alhliða dekkjaþjónustu og bílaviðgerðir. Gæðadekkin frá Infinity fást hjá okkur á frábæru verði, því lægsta á Suðurnesjum samkvæmt nýjustu verðkönnun. Vertu velkomin á Njarðarbraut 11, eða hafðu samband í síma: 421 1251- 771 4221 eða 861 2319 Verðdæmi fyrir heilsársdekk: R14 175/65 Heilsárs- 10,990,- R15 195/65 Heilsárs- 12,990- R16 215/65 Heilsárs-17,990 R17 225/60 Heilsárs-20,990 Burðardekk í ýmsum stærðum Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Smáauglýsingar Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ✝ Árný Snæ-björnsdóttir fæddist í Svart- árkoti, Bárðardal, 4. apríl 1915. Hún lést á Droplaugarstöðum 19. apríl 2016. Foreldrar hennar voru hjónin Snæ- björn Þórðarson, f. 1888, og Guðrún Árnadóttir, f. 1890. Árný var elst sjö systkina. Þau eru: Erlendur, f. 1916, d. 2001, Hrefna, f. 1917, d. 1980, Kristrún, f. 1919, d. 1945, Hlaðgerður, f. 1922, Svanhildur, f. 1922, Þórður, f. 1924, d. 2009. 1948, giftur Elínborgu Jónsdótt- ur, f. 13. september 1951. Þau eiga þrjú börn og fjögur barna- börn. 4) Kjartan Búi, f. 6. janúar 1951, d. 21. desember 1991, giftur Emmu Arnórsdóttur, f. 14. apríl 1951. Þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. 5) Heiðrún, f. 28. jan- úar 1955, gift Magnúsi Ögmunds- syni, f. 21. mars 1955. Með fyrri eiginmanni sínum Sigmari Arn- órssyni, f. 28. apríl 1953, d. 17. ágúst 1989, á hún fjögur börn og þrjú barnabörn. Magnús á þrjú börn og sjö barnabörn. Útför Árnýjar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 2. maí 2016, og hefst athöfnin klukkan 15. Árný giftist 29. janúar 1942 Aðalsteini Þórarins- syni, f. 1911, d. 2001, og eignuðust þau fimm börn: 1) Svan- hvít Lilja, f. 19. jan- úar 1941, gift Narfa Wíum, f. 21. júlí 1936, d. 29. maí 1994. Þau eiga fjögur börn, 14 barnabörn og eitt barnabarna- barn. 2) Snæþór Rúnar, f. 30. apr- íl 1942, giftur Sædísi Geirmunds- dóttur, f. 3. nóvember 1946. Þau eiga fimm börn og sjö barnabörn. 3) Börkur Trausti, f. 20. febrúar Móðir mín er látin 101 árs göm- ul. Hún var lengi vel ern en orðin þreytt undir lokin og sátt við að kveðja þennan heim. Mamma fæddist í Svartárkoti í Bárðardal, elst sjö systkina. Nú eru bara tví- burasysturnar eftir af systkina- hópnum, 93 ára gamlar. Mamma minntist áranna í Svartárkoti ætíð eð ánægju og hlýju. Útiverkin fannst henni skemmtilegust og reyndi alltaf að koma sér hjá inniverkunum, móð- ur hennar til mikillar armæðu. Síst skemmtilegt fannst henni að passa börnin og greiða á sér hárið. Það hefur ekki verið auðvelt að vera útistelpa á þessum árum. Eftir að fjölskyldan flutti úr Svartárkoti í Kræklingahlíðina fór mamma fljótlega að vinna á Ak- ureyri, m.a. við saumaskap. Á Ak- ureyri kynntist hún föður mínum og þau fluttu síðan til Reykjavíkur og bjuggu þar alla sína búskap- artíð. Árið 1953 keyptu þau heiðar- býlið Múlakot í Stafholtstungum ásamt fleirum. Bóndinn sem seldi þeim hélt áfram að vera með bú- skap á jörðinni og mamma dvaldi þar iðulega allt sumarið, tók þátt í heyskapnum og öðrum sveita- verkum. Hún var við stjórnvölinn enda gantaðist hún oft með það að hún hefði verið herforingi í fyrra lífi. Lýsandi fyrir stjórnsemina var kaffitíminn í Múlakoti sem var „mikilvægasta“ máltíð dagsins. Börnin komu hlaupandi inn í kotið og hún skammtaði kaffibrauðið ávallt eftir sömu reglunni: Tvö á mann. Það var ekki auðvelt um að- föng á þessum tímum, það þurfti að passa að maturinn dygði. Hún var mikið náttúrubarn. Hafði áhuga á fuglum, jurtum og sagði okkur oft að leggja eyrun við jörðina og hlusta – á lífið, jörðina og þögnina. Hún trúði á álfa og brýndi fyrir öllum að ganga vel um álfabyggðina í kotinu. Félagslynd var hún og ferðalög voru hennar yndi. Hún þekkti nær hvert fjall, hvern bæ og hverjir væru ábúendur. Hafði mikinn áhuga á fólki, rakti ættir þess og sagði sögur. Hún kunni ógrynni af vísum og fór með þær í tíma og ótíma alveg fram undir það síð- asta. Las mikið og var heppin með að halda sjóninni og lestrarget- unni lengi vel sem stytti henni stundir síðustu æviárin. En á sjón- varpi hafði hún engan áhuga. Þegar mamma tók sér eitthvað fyrir hendur, þá var það aldrei með hálfum hug. Um tíma prjón- aði hún lopapeysur af miklum móð. Hún tók upp á því að búa til eldivið úr dagblöðum með því að bleyta þau, troða þeim í mjólkur- fernur, þurrka og nota síðan sem brenni í eldavélinni góðu í sveit- inni. Hún byrjaði í hestamennsku þegar hún var 75 ára gömul og stundaði hestamennskuna fram undir nírætt. Einnig naut hún þess að spila við barnabörnin og atast í þeim. Nú er hún farin í lokaferðina. Kveð hana með ljóðinu Nótt eftir Magnús Gíslason. Nú ríkir kyrrð í djúpum dal, þótt duni foss í gljúfrasal, í hreiðrum fuglar hvíla rótt, þeir hafa boðið góða nótt. Nú saman leggja blómin blöð, er breiddu faðm mót sólu glöð, í brekkum fjalla hvíla hljótt, þau hafa boðið góða nótt. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut, en aftanskinið hverfur fljótt, það hefur boðið góða nótt. Hvíl vel mamma mín, takk fyrir allt og allt. Heiðrún. Árný Snæbjörnsdóttir  Fleiri minningargreinar um Árnýju Snæbjörnsdótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Gestur BjarkiPálsson fæddist í Dæli í Stað- arhreppi, Skaga- firði, 14. maí 1934. Hann lést á Hrafn- istu í Reykjavík 17. apríl 2016. Foreldrar hans voru Guðrún Elísa Magnúsdóttir, f. 24. apríl 1899, d. 26. júní 1988, og Páll Sigurðsson, f. 4. apríl 1880, d. 9. september 1967. Gestur var næstyngstur sjö systkina. Þau eru: Sigurður Páls- son, f. 1.9. 1922, Magnhildur, f. 31.5. 1924, d. 8.6. 1991, Skarphéð- inn Magnús, f. 5.5. 1926, d. 15.3. 2008, Reynir Bergmann, f. 16.1. 1929, d. 21.6. 2009, Hólmfríður Sigurrós, f. 24.6. 1930, Hólmar Bragi, f. 31.12. 1939. Auk eigin barnahóps tóku þau hjón, Guðrún og Páll tvær stúlkur í fóstur, þær Ingibjörgu Aðalheiði Guðvins- dóttur og Grétu Kjarval Tómas- dóttur. Gestur gekk í hjónaband með Þorbjörgu Kristjánsdóttur frá Höfn í Dýrafirði, f. 20.12. 1929. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru : a) Kristján Páll, f. 13.5. 1957. Hann kvæntist Sig- rúnu Þorsteins- dóttur, f. 30.8. 1957. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru tvö. b) Rúnar, f. 13.5. 1957. Maki Sigrún Erla Sigurðardóttir, f. 26.9. 1958. Þau eiga þrjú börn. c) Matt- hildur Björk, f. 18.9. 1958. Maki Barði Kristjánsson, f. 11.12. 1958. Þau eiga tvær dætur. d) Magnús, f. 20.12. 1959. Maki Guð- björg Sigurgeirsdóttir, f. 19.3. 1962. Þau eiga einn son. Magnús átti son áður, móðir hans er Haf- dís Karlsdóttir f. 10.8. 1959. Guð- björg átti einnig son áður. e) Ás- geir Örn, f. 19.5. 1961. Börn hans eru tvö. Barnsmóðir Hallfríður Einarsdóttir, f. 13.9. 1963. Þau slitu samvistum. Síðari kona Ás- geirs er Hildur Björg Hann- esdóttir, f. 19.12. 1964. Hildur átti eina dóttur áður. f) Svanhild- ur, f. 3.9. 1964. Maki Guðmundur Arason, f. 3.12. 1966. Þau eiga þrjú börn. g.) Halldór Grétar, f. 1.11. 1965. Maki Hjördís Jóna Kjartansdóttir, f. 8.5. 1964. Þau eiga þrjú börn. h) Hlynur, f. 22.4. 1971. Maki Ragnhildur Nielsen, f. 4.4. 1975. Þau eiga tvær dætur. Seinni kona Gests er María Kristín Einarsdóttir, f. 17.10. 1937. Dætur hennar frá fyrra hjónabandi eru: Helen, f. 20.9. 1956, Hulda, f. 29.1. 1958, og Hugrún, f. 6.4. 1965. Tvítugur að aldri hélt Gestur til Reykjavíkur og hóf fljótlega nám í trésmíði hjá Þóri Long tré- smíðameistara. Hann byrjaði að vinna við húsbyggingar 1955 samhliða skóla. Síðan lá leiðin í meistaraskólann og fékk Gestur meistarabréf í trésmíði vorið 1965. Gestur starfaði allan sinn starfsaldur við húsasmíði. Gestur hafði mikinn áhuga á fé- lagsmálum. Hann var í stjórn Meistarafélags húsasmíða í 21 ár, fyrst ritari, því næst varafor- maður og síðan gjaldkeri í 12 ár. Gestur var söngelskur og gerðist félagi í Alþýðukórnum. Síðar, þegar Skagfirðingar í Reykjavík stofnuðu eigin kór, gekk Gestur til liðs við Skagfirsku söngsveit- ina. Hann var einnig formaður Skagfirðingafélagsins í mörg ár. Síðustu 10 árin átti Gestur við vanheilsu að stríða. Útför Gests verður frá Bú- staðakirkju í dag, 2. maí 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. Það var á haustdögum 1984, sem leiðir okkar Gests lágu fyrst saman. Þá fór ég að stíga í væng- inn við Hugrúnu sem þá bjó í Rauðagerðinu hjá honum og Maju og tóku þau mér furðu vel. Fljótt fór ég að kynnast hans hlýja, sterka og einlæga faðmlagi sem hann bjó yfir. Eftir föður- missi minn 1990, þar sem ég hafði átt hlýjan faðm, þá var mikil huggun í faðmlagi Gests. Átti ég margar góðar stundir með honum og húmorinn hans frábær. Ein slík minning var þeg- ar ég prófaði burstaklippingu ásamt syni mínum og þá kom Gestur í heimsókn og færði mér greiðu. Hjá honum kynntist ég full- komnun í smíðavinnu og mörg handtökin hvað það varðar, sem ég bý enn að. Nú kveð ég góðan vin og sterk- an karakter. Hafðu þökk fyrir allt, þú mikli meistari. Sé ég nú að svefninn sætur sígur vært á augu þér. Fyrir mér nú minning grætur mikill maður kvaddur hér. (BJ) Þinn tengdasonur, Baldur. Gestur Bjarki Pálsson  Fleiri minningargreinar um Gest Bjarka Pálsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.