Morgunblaðið - 06.05.2016, Page 2

Morgunblaðið - 06.05.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Bragi Finnbogason, formaður Veiði- félags Laxár, sem rennur úr Mý- vatni, segir að það eina sem breyst hafi á svæðinu á undanförnum árum sé gríðarleg fjölgun ferðamanna með tilheyrandi skólpnotkun. Það kunni að skýra það að Mývatn sé hvítt og fullt af bakteríublóma. Hann segir þó ekki hægt að fullyrða um það og kallar eftir því að stjórn- völd geri frekari rannsóknir á þeim aðstæðum sem leitt hafa til þessa. „Þegar vatnið er svona gruggugt þá sérðu ekki fiskinn og fiskurinn sér ekki agnið,“ segir Bragi. Að hans sögn er það þekkt að bakteríublómi sé mikill í 5-7 daga á sumrin en í fyrra var hann hins vegar svo til allt sumarið. Að sögn Braga hafa ein- hverjar afbókanir verið í Laxá. Sölubrestur á ábyrgð beggja Stangveiðifélag Reykjavíkur hef- ur leigt veiðiréttinn af Laxárbænd- um. „Það liggur á borðinu að ef við getum ekki skaffað þá vöru sem við höfum sagt að við höfum, þá verður mjög erfitt um vik að biðja þá að standa við samninginn. Svo er í samningnum ákvæði um það að ef sölubrestur verður, þá er það ekki bara þeirra mál,“ segir Bragi. Veiðifélag Laxárbænda og Veiði- félag Mývatns hittust á fundi í fyrrakvöld þar sem rædd voru næstu skref. „Það er tvennt sem þarf að gera. Það þarf að auka rann- sóknir á því sem er að gerast og að grípa til viðeigandi framkvæmda,“ segir Bragi. Hann veit til þess að gerð hafi verið áætlun um skólp- hreinsistöð sem myndi minnka álag á Mývatni. „En það kostar mörg hundruð milljónir. Ég veit að sveit- arstjórnin hefur farið fyrir nefnd hjá Alþingi og óskað eftir stuðningi. Þetta eru miklu meiri fjármunir en svona fámennt sveitarfélag ræður við,“ segir Bragi. Vita ekkert um áhrif á lífríki Hann segir að það eina sem menn viti á þessari stundu sé það að notk- un á skólpi hefur margfaldast vegna ferðamannastraums. „Bakteríu- blómi er överur sem fjölga sér of- boðslega við viss skilyrði og fyrir vikið verður liturinn á vatninu grænn eða hvítur. Þetta er engin drulla, en þetta gerir það að verkum að litur vatnsins breytist,“ segir Bragi. Hann segir að þar sem svip- aðar aðstæður hafa komið upp er- lendis hafi fylgt eitrun sem drepur lífríki, en hann veit ekki til þess að slíkt hafi komið upp við Mývatn. „En við vitum ekkert um það. Meg- ingallinn er sá að við þekkjum þetta ástand ekki,“ segir Bragi. Skólpið geti verið sökudólgur  Bakteríublómi geti leitt til sölubrests veiðifélaga  Kalla eftir rannsóknum Hvítt Mývatn var hvítt lungann úr sumrinu í fyrra. Veiðifélög Mývatns og Laxár kalla eftir rannsóknum. Stendur þetta veiði fyrir þrifum. Símaskránni fyrir árið 2016 verður dreift til landsmanna í dag í síðasta skipti. Ákveðið hefur verið að hætta útgáfunni en símaskráin hefur verið gefin út frá árinu 1905. Hún hefur verið hluti af íslensku samfélagi í 111 ár og gegnt mikil- vægu upplýsingahlutverki á heim- ilum landsmanna, segir í tilkynningu frá Já, sem gefur símaskrána út. Þar segir einnig að skráin hafi markað sér menningarlegan sess í samfélag- inu og kápan endurspeglað tíðar- andann hverju sinni. Hönnunin á þessari síðustu útgáfu er í höndum Guðmundar Odds Magnússonar, Godds, prófessors við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Ís- lands, og hefur Stefán Pálsson sagn- fræðingur ritað sögu hennar sem er gefin út með símaskránni. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Símaskráin Frá pökkun og dreif- ingu símaskrárinnar árið 1973. Símaskráin gefin út í síðasta sinn  Í dreifingu í dag og sagan fylgir Dagur aldraðra var í gær, á uppstigningardegi, og var m.a. haldið upp á hann víða í kirkjum landsins. Í Guðríðarkirkju var biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, með predikun. Með henni þjónuðu til altaris þau sr. Karl V. Matt- híasson, sr. Kristín Pálsdóttir og sr. Skírnir Garðarsson. Vorboðarnir, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, sungu við undirleik Arnhildar Val- garðsdóttur organista. Að athöfn lokinni var boðið í messukaffi í safnaðarheimili Guðríðar- kirkju. Þar tóku Davíð Ólafsson og Stefán Helgi Stefánsson lagið og fóru með gamanmál. Morgunblaðið/Golli Biskup predikaði í Guðríðarkirkju á degi aldraðra Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Stjórn Geðhjálpar hefur skorað á heilbrigðisráðherra að lækka komu- gjöld geðlækna í fyrirliggjandi frum- varpi um sjúkratryggingar. Er á það bent að samkvæmt frumvarpinu muni árlegur kostnaður öryrkja við geðlæknaþjónustu hækka úr 20.000 kr. á ári í 63.500 krónur á ári eða um 43.500 kr. Í útreikningum sínum miðar Gerðhjálp við það að öryrki með geðfötlun leiti að meðaltali sex sinnum á ári til sjálfstætt starfandi geðlæknis. Eins og sakir standa fær hann afsláttarkort eftir að hafa greitt 8.500 krón- ur. Í framhaldi af því greiðir hann 1.098 krónur fyrir hvert viðtal að sex viðtölum, sem er samtals um 20.000 kr. Verði frumvarpið að lögum greiðir ör- yrki 16.148 fyrir hvert viðtal hjá sjálfstætt starfandi geðlækni upp að 63.500 króna kostnaðarþaki. Þá hækkar verð á fyrsta viðtali fyrir al- menning úr 13.695 krónum í 25.690 krónur og viðtöl eftir það úr 9.879 kr. í 16.148 kr. „Við þekkjum nú þegar dæmi um að fólk leitar ekki til lækn- is vegna hás lækniskostnaðar. Við óttumst að fleiri lendi í þeirri stöðu ef gjöld hækka. Margir öryrkjar eru með 185-200 þúsund króna tekjur á mánuði og þá er þessi 43.000 króna hækkun á ári umtalsverð,“ segir Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar. Þá bendir hún á að fólk greiði meira fyrri hluta árs, þ.e. þar til það nær kostnaðarþaki. „Jöfn dreifing kemur sér betur fyrir fólk sem hefur lítið handa á milli. En það sem er gott við þetta frumvarp er kostn- aðarþakið. Sannleikurinn er hins vegar sá að það eru tiltölulega fáir sem hafa þurft að bera þennan háa kostnað. Nú er það eiginlega þannig að verið er að dreifa kostnaði sem lenti á þessum fámenna hópi yfir á meðalmanninn,“ segir Anna og bæt- ir við: „Við hefðum alveg viljað halda þessu þaki, en að komugjöldin myndu ekki hækka svona mikið,“ segir Anna. Í tilkynningunni segir jafnframt að stefna beri að því að íslensk heil- brigðisþjónusta verði gjaldfrjáls. „Á sama tíma og verið er að samþykkja geðheilbrigðisstefnu, sem er já- kvætt, þá er þessi hópur að fá þessa hækkun í andlitið,“ segir Anna. Kemur illa við öryrkja  Stjórn Geðhjálpar skorar á heilbrigðisráðherra að lækka komugjöld til geð- lækna  Fleiri sem munu borga hærri kostnað  Kostnaðarþakið talið jákvætt Anna Gunnhildur Ólafsdóttir Alþýðusamband Íslands fagnar frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingar á greiðsluþátt- töku sjúklinga en gerir um leið „alvarlegar athugasemdir“ við að breytingarnar séu eingöngu fjármagnaðar með aukinni kostnaðarþátttöku allflestra notenda heilbriðgðisþjónust- unnar. Þetta kemur fram í álykt- un frá miðstjórn ASÍ. Ekki standi til að auka fjármagn til málaflokksins og draga úr heildarkostnaðarþátttöku sjúk- linga. Þetta leiði til aukins kostnaðar, ekki síst fyrir aldr- aða og öryrkja. Auka þurfi fjármagnið MIÐSTJÓRN ASÍ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.