Morgunblaðið - 06.05.2016, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 06.05.2016, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 Víkingaskipið Drekinn Haraldur hárfagri siglir væntanlega úr höfn í Færeyjum í dag, á leið sinni til Ís- lands og áfram til N-Ameríku. Sök- um slæms sjóveðurs hefur skipið legið við bryggju í Þórshöfn og áhöfnin beðið átekta. Samkvæmt upplýsingum frá Faxaflóahöfnum er reiknað með að víkingaskipið komi til hafnar í Reykjavík næstkomandi þriðjudag, ef siglingin til Íslands gengur að óskum. Um er að ræða stærsta vík- ingaskip sem smíðað hefur verið í seinni tíð. Fyrirmyndin er Gauks- staðaskipið en þó stærri útgáfa þess. Embla beið líka í vari Hraðskipið Embla hefur einnig orðið að bíða veðrið af sér í Fær- eyjum síðustu daga og hyggur á áframhaldandi siglingu í dag, áleiðis til Gautaborgar í Svíþjóð, með við- komu á Hjaltlandseyjum og í Nor- egi. Alls er leiðin frá Reykjavík til Gautaborgar 1.200 sjómílur og eins og fram hefur komið í Morgun- blaðinu hefur opnum báti af þessari gerð ekki áður verið siglt jafn langa leið á jafn skömmum tíma. Embla er nýjasta afurð skipa- smíðastöðvarinnar Rafnar, 11 metra strandgæslubátur sem fer hratt yfir. Stefnir áhöfnin að því að setja hraðamet í siglingu bátsins yfir N- Atlantshaf. Áfangastaðurinn er bátaráðstefna í Gautaborg. Haraldur hárfagri og Embla halda áfram för í dag  Víkingaskipið væntanlegt til hafnar í Reykjavík næstkomandi þriðjudag Ljósmynd/Arne Terje Saether Víkingaskip Drekinn Haraldur Hárfagri er væntanlegur til Íslands. Ljósmynd/Rafnar Hraðskreið Báturinn Embla fer hratt yfir á leið sinni til Svíþjóðar. Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Fram kemur í umsögnum Alþýðu- sambands Íslands (ASÍ) og Félags kvikmyndagerðamanna (FK) um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endur- greiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, að rökstuddur grunur sé uppi um að lög- og kjarasamnings- bundin réttindi starfsfólks í kvik- myndagerð séu brotin. Í frumvarpinu kemur m.a. fram framlengdur gildistími og lagt er til að hlutfall endurgreiðslu hækki úr 20% í 25%. Alls hafa átta umsagnir um frumvarpið borist til atvinnu- veganefndar Alþingis. Í umsögn ASÍ segir að framleng- ing á gildistíma muni styðja við vöxt íslenskrar kvikmyndagerðar en sambandið vekur athygli á því að þau verkefni sem falla undir endur- greiðslur séu gjarnan unnin á skömmum tíma og við langa vinnu- daga. ASÍ þykir „rétt að benda á að á Íslandi er við líði skipulagður vinnu- markaður og í gildi eru lög og kjara- samningar sem gilda um öll störf. Rökstuddur grunur er uppi um að al- gengt sé að lög- og kjarasamnings- bundin réttindi starfsfólks er starfar við kvikmyndagerð séu brotin,“ seg- ir í umsögn ASÍ, sem metur það svo að óbreytt kerfi muni ekki ganga án þess að mörkuð sé stefna um þátt launafólks í starfseminni. Stjórn FK tekur í sama streng og ASÍ og segir í umsögn sinni að borið hafi á því að brotið sé á fólki hvað varðar hvíldartíma, öryggi á töku- stað og aðbúnað. „Krefjumst við þess að það verði gert að skilyrði fyr- ir endurgreiðslu að þjónustufyrir- tæki og -kaupendur virði íslensk lög um vinnutíma, laun, aðbúnað, holl- ustuhætti svo og íslenskra kjara- samninga,“ segir í umsögn FK. Fyrirtækið True North gagnrýnir í sinni umsögn fullyrðingar FK. „True North virðir íslenskar og evr- ópskar reglur um vinnutíma, laun, aðbúnað og hollustuhætti og vísar al- farið á bug ásökunum að starfsfólk sé látið skrifa undir samninga sem innihalda ólögleg ákvæði um vinnu- tíma.“ Fyrstu umræðu um frum- varpið er lokið og er það nú hjá at- vinnuveganefnd . Kjarasamningar brotnir við tökur  Réttindi starfsfólks í kvikmyndaiðnaði iðulega brotin  Slíkt er fullyrt í umsögnum ASÍ og stjórnar Félags kvikmyndagerðarmanna um frumvarp um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Tökur Þættirnir Game of Thrones voru m.a. teknir upp á Þingvöllum. Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum. Ég fór í laseraðgerð hjá Sjónlagi í lok maí 2015. Keypti mér Thealoz dropana eftir aðgerðina og var mjög ánægð, ákvað samt að prufa að kaupa mér ódýrari dropa og fann rosalega mikinn mun á gæðum. Þessir ódýrari voru bara ekki að gera neitt fyrir mig og þurfti ég að nota mikið meira magn. Mælti með dropunum við tengdamömmu og er hún alsæl með Thealoz dropana. Elín Björk Ragnarsdóttir Þurrkur í augum? Thealozaugndropar Fæst í öllum helstu apótekum. Erla María Markúsdóttir Þorsteinn Ásgrímsson „Í sumar göngum við til forsetakjörs. Ég verð þar í framboði,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson að viðstöddu fjöl- menni á fundi sem hann boðaði til í Salnum í Kópavogi í gær. Fundurinn hófst á því að ljóðskáldið og vinkona Guðna, Gerður Kristný, bauð fólk velkomið og kallaði Guðna á svið með orðunum „Velkominn undan feld- inum“. Í samtali við blaðamann mbl.is að fundi loknum sagði Guðni að fjöld- inn hefði bæði komið sér á óvart og ekki. „Við vissum að hann yrði vel sóttur. En auðvitað fyllist maður auð- mýkt þegar maður sér svona marga saman komna til að lýsa fylgi við mann.“ Að sögn Guðna mun meginstefna hans, verði hann kjörinn, felast í að vera fastur fyrir þegar á þarf að halda og leiða erfið mál til lykta og tryggja að þjóðin eigi alltaf síðasta orðið í stærstu málunum sem hana varðar. Þá segir hann að forseti Ís- lands eigi ekki að vera ópólitískur þó að hann eigi að vera sameiningartákn þjóðarinnar. „Mesta alvörustund lífs míns“ Á fundinum sló Guðni á létta strengi. Aðspurður hvort grín og al- þýðulegt fas sé eitthvað sem hann leggi áherslu á í kosningabaráttunni segir Guðni að í öllu blandist saman grín og alvara. „Ég vil vera ég sjálfur, finnst gaman að slá á létta strengi þegar það á við, en öllu gamni fylgir alvara og þessi dagur í dag er líklega ein mesta alvörustund lífs míns.“ Morgunblaðið/Golli Framboð Guðni Th. Jóhannesson kynnti framboð sitt í Salnum í Kópavogi. Kominn undan feldinum og tilkynnir framboð  Sagnfræðingurinn Guðni Th. stefnir á Bessastaði 38% myndu kjósa Guðna Th. Jóhann- esson í embætti forseta Íslands ef kosið væri nú, samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis sem framkvæmd var 2. og 3. maí. Flestir sem tóku af- stöðu myndu þó kjósa Ólaf Ragnar Grímsson, eða 45% prósent. 11% myndu kjósa Andra Snæ Magnason og 3% Höllu Tómasdóttur. Aðrir njóta um 1% stuðnings. Flestir myndu kjósa Ólaf GUÐNI MEÐ 38% FYLGI OG ANDRI SNÆR 11% Andri Snær Magnason Ólafur Ragnar Grímsson Björgunarsveitir frá Vík, Klaustri og Álftaveri voru kallaðar út vegna rútuslyss á Mýrdalssandi í gær. Smárúta með 11 farþega fór útaf veginum og endaði í skurði um 10 km austan við Hjörleifshöfða. Fimm slösuðust en enginn alvarlega. Þá fauk húsbíll út af veginum í Kollafirði í gærmorgun. Sesselja Anna Óskarsdóttir, sem var farþegi í bíl sem var á eftir húsbílnum, tók at- burðinn upp á myndband. „Það er búið að vera mjög hvasst,“ sagði Sesselja Anna í samtali við mbl.is. Hún er íbúi á Kjalarnesinu og segir veðrið alltaf verst í Kollafirðinum. Ekki urðu alvarleg slys á fólki í húsbílnum. Þá fóru þrjár björgunarsveitir í aðgerðir á Mývatnsöræfum, Möðru- dalsöræfum og Vopnafjarðarheiði. Var lokað fyrir alla umferð þar í gærmorgun þar sem margir vanbún- ir bílar voru á ferð í snjóþyngslum. Síðdegis fengu svo um 50 bílar, sem festust í Jökuldal, fylgd með snjó- ruðningstæki og björgunarsveit til byggða. Rúta útaf og 5 slösuðust  Engin alvarleg meiðsl  Húsbíll fauk útaf í Kollafirði  Fimmtíu bílar fengu fylgd úr Jökuldal til byggða Ljósmynd/Júlíus Valsson Fór út af Rúta með ellefu innanborðs fór út af veginum á Mýrdalssandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.