Morgunblaðið - 06.05.2016, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 06.05.2016, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARD. 11 - 16 SVEFNSÓFAR góðir að nóttu sem degi... -15% RECAST kr. 129.900 / TILBOĐSVERĐ kr. 110.415 UNFURL kr. 109.900 / TILBOĐSVERĐ kr. 93.415ZEAL kr. 79.900 / TILBOĐSVERĐ kr. 67.915 TRYM kr. 198.900 / TILBOĐSVERĐ kr. 169.000 Ákveðið hefur verið að halda fyrstu „Darkness into Light“ göngu Pieta á Íslandi aðfaranótt 7. maí næstkomandi. Þar verður gengin 5 kílómetra leið úr næt- urmyrkri inn í dagrenningu, úr myrkri í ljós, til fjáröflunar hjálp- armiðstöðvar sjálfsvíga og sjálfs- skaða. Einnig verður gengið til að minnast þeirra sem hafa farið úr sjálfsvígi og fyrir þá sem hafa öðl- ast von, segir í tilkynningu. Pieta House var stofnað á Ír- landi fyrir áratug af Joan Freeman í kjölfar þess að systir hennar féll fyrir eigin hendi. Pieta Ísland hef- ur nú verið stofnað og stendur fyr- ir göngunni, sem gengin er á sama tíma í nokkrum löndum og er reiknað með að yfir 120.000 manns gangi úr myrkri inn í birtu á sama tíma. Gangan hefst aðfaranótt 7. maí kl. 04:00 við húsnæði KFUM og KFUK við Holtaveg í Laugardal. Pieta Ísland hyggst stofna hjálp- armiðstöð fyrir sjálfsvíg og sjálfs- skaða sem þátttakendum gefst tækifæri til að styrkja. Þátttöku- gjald í gönguna er 3.500 krónur. Hyggjast ganga úr myrkri í ljós Morgunblaðið/Þorkell Upphaf KFUM og KFUK. Opnuð hafa verið hjá Vegagerðinni tilboð í svokallaða haustdýpkun Landeyjahafnar árin 2016 til 2018. Áætlað er að fjarlægja þurfi allt að 280.000 rúmmetra af sandi. Tvö tilboð bárust. Belgíska stór- fyrirtækið Jan de Nul bauðst til að vinna verkið fyrir rúmar 222 millj- ónir króna. Tilboð Björgunar ehf hljóðaði upp á 362,4 milljónir. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar var rúmar 266 milljónir. Belgíska fyrirtækið átti einnig lægsta tilboðið þegar dýpkun Landeyjahafnar tímabilið 2015 til 2017 var boðin út í fyrra. Hljóðar tilboðið upp á tæplega 588 millj- ónir króna. Tvö tilboð bárust þá Vegagerðinni auk tilboðsins frá Jan de Nul. Þau komu frá finnsk- um og dönskum stórfyrirtækjum. Björgun ehf skilaði ekki tilboði þá. Belgíska sanddæluskipið Gali- leo 2000 hefur undanfarið unnið að dýpkun Landeyjahafnar. Jafnframt unnu starfsmenn verktakafyrirtækisins Suðurverks að því að hreinsa foksand upp úr kverkinni við innri hafnargarðinn. Herjólfur sigldi 15. apríl sl. til Landeyjahafnar í fyrsta skipti í rúma fjóra mánuði. Mikið er bókað í Herjólf í sum- ar, meira en síðustu sumur. Vega- gerðin og Eimskip ákváðu að bæta 40 aukaferðum við sumaráætlun og segir Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri hjá Eimskip, að einnig sé bætt við ferðum í kring- um þjóðhátíð og tvö íþróttamót sem haldin verða í júní. sisi@mbl.is Belgarnir lægstir á ný Ljósmynd/Landeyjahöfn Dýpkun Belgíska sanddæluskipið Galileo 2000 að störfum í Landeyjahöfn.  Buðu rúmar 222 milljónir í dýpkun Landeyjahafnar Sindratorfæran á Hellu hefst á morgun, laugar- daginn 7. maí, klukkan 13.00. Um er að ræða 1. umferð Ís- landsmótsins í torfæru og jafn- framt Norður- landamót og heimsmeistaramót. Eknar verða 6 brautir á laugar- deginum. 22 keppendur eru skráðir til leiks í krefjandi brautum, brött- um stálum og miklum halla, segir í tilkynningu frá mótshöldurum. Sunnudaginn 8. maí hefst keppni klukkan 13.00 og er þar um að ræða seinni hluta fyrstu umferðar Íslandsmótsins í torfæru, Norður- landamóts og heimsmeistara- mótsins. Á sunnudaginn bætast við götubílar og fer fjöldi keppenda þá í 26. Aðgangseyrir er krónur 1.500 hvorn dag eða 2.500 fyrir báða dagana en frítt er fyrir 12 ára og yngri. Torfæruver- tíðin fer af stað á Hellu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.