Morgunblaðið - 06.05.2016, Síða 10

Morgunblaðið - 06.05.2016, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 GARÐAR OG GRILL PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, föstud. 13. maí. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is | Sími: 569-1105 SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur 20. maí gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um Garða og grill. Blaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita potta, sumarblómin, sumarhúsgögn og grill ásamt girnilegum uppskriftum. Loftkæling Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 og varmadælur BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Á vegum utanríkisráðuneytisins verður áfram unnið að því að styðja kröfugerð Íslands um mörk landgrunns Íslands á Reykjaneshrygg. Undirbúningur að endurskoðaðri greinargerð er þegar hafinn, en líklegt er að sú vinna geti tekið drjúgan tíma og aðeins er talað um að stjórnvöld geti skilað slíkri greinargerð „innan hæfilegs tíma“. Því er engan veginn ljóst hvenær endanleg niðurstaða fæst, en unnið er á grundvelli kröfu- gerðar sem fyrst var sett fram árið 2009 og byggðist á umfangsmiklum mælingum og rannsóknum á landgrunninu. Með utanríkis- ráðuneytinu vinna sérfræðingar hjá ÍSOR (Ís- lenskum orkurannsóknum) og Háskóla Íslands að verkefninu. Ísland skilaði upphaflegri kröfugerð til land- grunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna í apríl 2009. Skipuð var undirnefnd á vegum SÞ, sem skilaði tillögum til landgrunnsnefndarinnar í febrúar 2014. Nú nýlega skilaði landgrunns- nefnd SÞ tillögum sínum og þar er ekki tekin afstaða til suðurmarka undan Reykjaneshrygg og gögn um svæðið utan 350 sjómílna vestur af hryggnum voru ekki talin styðja nægilega kröfur Íslands um að það teldist náttúrulegur hluti landgrunnsins. Heildarmynd af kröfunum Kristján Andri Stefánsson, skrifstofustjóri á laga- og stjórnsýsluskrifstofu utanríkisráðu- neytisins, segir að með tillögum landgrunns- nefndarinnar hafi í sjálfu sér engu verið hafnað þó svo að kröfur Íslands hafi ekki verið sam- þykktar í þessari atrennu. Réttindi á Reykja- neshrygg verði sótt áfram og segir Kristján líklegt að í vinnu við endurskoðaða greinargerð verði dregin upp heildarmynd af kröfum Ís- lendinga á svæðinu. Það er vestur og suður af Reykjaneshrygg, en jafnfram austur af hryggnum, en sá hluti fylgdi ekki með upp- haflegu greinargerðinni. Alþingi samþykkti á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár að verja 10 milljónum króna í afmörkun eystri hlutans og til að undirbyggja kröfur Íslendinga. Í tilkynningu utanríkisráðuneytisins frá miðjum síðasta mánuði er greint frá tillögum landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna um ytri mörk íslenska landgrunnsins vestur af Reykjaneshrygg annars vegar og á Ægisdjúpi í suðurhluta Síldarsmugunnar hins vegar. Nið- urstaða landgrunnsnefndarinnar var að fallast á kröfur Íslands varðandi Ægisdjúp í samræmi við upprunalega greinargerð þar um og um ytri mörk vestur af Reykjaneshrygg innan 350 sjómílna. Dregur úr trúverðugleika Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra fagn- aði í tilkynningunni tillögu nefndarinnar um Ægisdjúpið, „þar sem hún geri Íslandi kleift að ákvarða með bindandi hætti ytri mörk land- grunnsins á því svæði og ganga formlega frá samningi þar að lútandi við nágrannaríkin“. Hún lýsti hins vegar vonbrigðum yfir tillögu nefndarinnar um mörkin vestur af Reykjanes- hrygg, „enda víkur nefndin töluvert frá tillögu undirnefndarinnar án þess að færa fyrir því sérstök rök. Það dregur úr trúverðugleika ferl- isins og gerir stjórnvöldum erfitt fyrir að vinna málið áfram á þann hátt sem hafréttarsamn- ingurinn gerir ráð fyrir,“ er haft eftir Lilju. Utanríkisráðuneytið kynnti greinargerð um ytri mörk landgrunns Íslands utan 200 sjó- mílna fyrir landgrunnsnefnd SÞ í lok janúar 2013. Í frétt um greinargerðina segir m.a. á vef ráðuneytisins: „Gert er ráð fyrir að mörk land- grunns strandríkja utan 200 sjómílna verði til lykta leidd í eitt skipti fyrir öll á komandi árum á grundvelli ákvæða hafréttarsamningsins. Lögð hefur verið áhersla á að Íslendingar öðl- ist yfirráð yfir sem víðáttumestum land- grunnssvæðum enda er ljóst að réttindi yfir landgrunninu munu fá aukna þýðingu í fram- tíðinni. Þau þrjú landgrunnssvæði, sem Ísland gerir tilkall til utan 200 sjómílna, þ.e. Ægisdjúp, Reykjaneshryggur og Hatton Rockall-svæðið, eru samtals rúmlega 1.400.000 km² að stærð eða um fjórtánfalt landsvæði Íslands.“ Grein- argerðin tekur hins vegar ekki til hins um- deilda Hatton Rockall-svæðis, sem er hluti af íslenska landgrunninu en Bretland, Írland og Danmörk/Færeyjar gera einnig tilkall til, né austurhluta Reykjaneshryggjar sem skarast við það svæði. Margvíslegar auðlindir á landgrunninu Samkvæmt hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna eiga strandríki sjálfkrafa landgrunn að 200 sjómílum sem eru jafnframt ytri mörk efnahagslögsögunnar. Mörg ríki, þar á meðal Ísland, eiga hins vegar sökum náttúrulegra að- stæðna víðáttumeiri hafsbotnsréttindi sam- kvæmt ákvæðum samningsins. Þær náttúruauðlindir sem tilheyra land- grunninu eru jarðefnaauðlindir á borð við olíu, gas og málma, aðrar ólífrænar auðlindir hafs- botnsins og botnlaganna, t.d. jarðhiti, og líf- verur í flokki botnsetutegunda og erfðaefni þeirra. Réttindi strandríkisins yfir landgrunninu ut- an efnahagslögsögunnar hafa ekki áhrif á réttarstöðu hafsins þar fyrir ofan sem telst út- haf og ná ekki til fiskistofna né annarra auð- linda þess. Réttindi á Reykjaneshrygg sótt áfram  Undirbúningur hafinn að endurskoðaðri greinargerð um mörk landgrunns Íslands á Reykjaneshrygg  Margra ára ferli  Landgrunnsnefnd SÞ féllst á kröfur Íslands varðandi Ægisdjúp austur af landinu Afmörkun Rauðskyggða svæðið sýnir afmörkun landgrunns utan 200 mílna í Ægisdjúpi. Á Reykjaneshrygg eru þau ytri mörk sem landgrunnsnefndin lagði til sýnd með heildreginni rauðri línu. Rauð punktalína tekur við af henni og sýnir þau ytri mörk sem undirnefndin lagði til við landsgrunnsnefndina 2014. Áfram verður unnið að því að tryggja réttindi á Reykjaneshrygg. Þingflokkar VG og Samfylkingarinnar hafa óskað eftir því að forsætis- nefnd Alþingis beini þeim tilmælum til Ríkisendurskoðunar að gera sér- staka úttekt á tilteknum þáttum í starfsemi Orkubús Vestfjarða (OV). Óska þingflokkarnir m.a. eftir því að Ríkisendurskoðun kanni ákvarðanatöku og verklag við starfslok fráfarandi forstjóra OV og gerð starfslokasamnings við hann. Þá verði verklag við ráðningu nýs framkvæmdastjóra einnig kannað, með tilliti til þess hvort og þá hvernig tryggt var að hæfasti um- sækjandi yrði fyrir valinu og hvort fylgt var settum reglum og vönduðum stjórnsýsluháttum um undirbúning málsins og ákvarðanatöku í stjórn. Þá vilja þingflokkarnir að verklag á síðasta aðalfundi verði kannað. Úttekt verði gerð á starfsemi Orkubúsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.