Morgunblaðið - 06.05.2016, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
SKRÁNING ER HAFIN Á BALLET.IS EÐA INFO@BALLET.IS
KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN
INNTÖKUPRÓF FYRIR SKÓLAÁR 2016-2017
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Morgunblaðið sagði frá því í febr-
úar þegar fjármálaráðherrar ESB
báðu framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins um að vinna með
Seðlabanka Evrópu (SBE) við að
draga úr notkun stórra seðla, eink-
um 500 evra seðilsins.
Á miðvikudag gerðist það svo að
SBE tilkynnti að framleiðslu 500
evra seðla yrði hætt. Er ákvörð-
unin tekin með þeim rökum að seð-
illinn gagnist um of glæpamönnum
og skattsvikurum. Með 500 evra
seðla í umferð sé auðveldara fyrir
vímuefnasala jafnt sem hryðju-
verkamenn að flytja stórar fjár-
hæðir milli staða. Framleiðslu seðl-
anna verður þegar hætt og lætur
seðlabankinn síðustu seðlana í um-
ferð árið 2018, að því er Financial
Times greinir frá. Seðlarnir munu
halda virði sínu og verða áfram lög-
mætur gjaldmiðill. Var síðasta upp-
lag 500 evru seðla prentað árið
2014.
Mælt í fjölda seðla myndar 500
evra seðilinn aðeins 2,3% af öllum
evruseðlum. En þar sem seðlarnir
eru svo verðmiklir jafngildir sam-
anlagt verðmæti þeirra um 30% af
öllum evrum í umferð.
Fer sparnaðurinn í banka?
Ákvörðun SBE gæti styggt suma
íbúa þýskumælandi þjóða álfunnar.
FT segir að þar sé nokkuð rík hefð
fyrir því að fólk geymi reiðufé
heima hjá sér og í löndum eins og
Þýskalandi tengi almenningur pen-
ingaseðla við einstaklingsfrelsi.
Hafa þýskir stjórnmálamenn ýjað
að því að ESB sé að sælast eftir
sparifé landsmanna enda ekki eins
auðvelt að geyma stórar fjárhæðir í
verðminni seðlum. Endalok 500
evra seðlisins þýði þá að fólk verði
líklegra til að leggja peningana inn
á bankabók – og þar gætu neikvæð-
ir stýrivextir nartað í höfuðstólinn.
Í síðustu viku sagði austurríski
seðlabankastjórinn Ewald No-
wotny að seðlabankar Evrópu séu
að hætta á að hleypa af stað um-
ræðu um að segja alfarið skilið við
reiðufé. Þá hefur Jens Weidmann,
stjórnandi þýska seðlabankans,
varað við að það „væri stórvara-
samt ef almenningur fengi þau
skilaboð að verið væri að svipta fólk
reiðufé“. Seðlabanki Evrópu hefur
hins vegar fullyrt að allar aðrar
stærðir evruseðla muni áfram
verða gefnar út. Núna þegar 500
evru seðillinn er á útleið verður 200
evra seðillinn sá stærsti, en 5 evra
seðillinn sá minnsti. ai@mbl.is
Seðlabanki Evrópu segir
bless við 500 evra seðilinn
Seðlabankastjórar Þýskalands og Austurríkis óánægðir
AFP
Virði Seðlabanki Evrópu segir stóra seðla gera misyndismönnum auðveld-
ara að flytja stórar fjárhæðir á milli staða og stunda svört viðskipti.
● Innkaupastjóravísitala CIPS-
stofnunarinnar og markaðsrannsókna-
fyrirtækisins Markit gefur til kynna að
breska hagkerfið muni aðeins vaxa um
0,1% á þessum ársfjórðungi. Sam-
kvæmt nýjustu mælingum, sem kynnt-
ar voru á miðvikudag, dróst inn-
kaupastjóravísitala breska
þjónustugeirans saman úr 53,7 stigum
niður í 52,3 stig. Hefur vísitalan ekki
mælst lægri síðan í febrúar 2013.
Í skýrslu CIPS og Markit kemur fram
að nýjar reglur um hækkuð lágmarks-
laun þrengi að starfsemi breskra fyr-
irtækja. Einnig virðist sem óvissa um
niðurstöður fyrirhugaðrar þjóð-
aratkvæðagreiðslu um ESB-aðild hafi
gert viðskiptavini órólega svo að þeir
halda að sér höndum.
Að sögn FT spáir Barclays því nú að
enginn hagvöxtur verði á þessum fjórð-
ungi. Virðast flestir sérfræðingar þó
gera ráð fyrir að breska hagkerfið glæð-
ist á ný á seinni helmingi ársins, að því
gefnu að kjósendur velji áframhaldandi
aðild að Evrópusambandinu. ai@mbl.is
Breskt efnahagslíf í biðstöðu vegna „Brexit“
Kínverski netverslunarrisinn Ali-
baba birti á fimmtudag rekstrartölur
fyrsta ársfjórðungs. Tekjur fyrir-
tækisins hækkuðu um 39% miðað við
sama tímabil í fyrra og er það hrað-
ari vöxtur en á fjórðunginum á und-
an, en þá mældist aukningin 32%
milli ára. Var þessi árangur umfram
væntingar fjárfesta og hækkuðu
hlutabréf Alibaba á bandaríska
markaðinum um 3,7% við tíðindin.
Kostaði hver hlutur þá 78,60 dali en
verð hlutabréfa fyrirtækisins fór
hæst upp í nærri 120 dali árið 2014.
Ræður Alibaba í dag yfir 80% af
allri netverslun í Kína, að því er Fin-
ancial Times greinir frá. Einnig er
nú svo komið að um 73% af allri sölu
hjá Alibaba á sér stað í gegnum far-
síma, en var 51% fyrir ári síðan.
Hörð barátta Ant og WeChat
Ekki voru öll tíðindi ársfjórðungs-
ins jákvæð. Fjármálaþjónustuarm-
urinn Ant Finance Services Group
(áður Alipay) var rekinn með tapi, og
er hallarekst-
urinn m.a. til
kominn vegna
kostnaðarsamrar
baráttu um mark-
aðshlutdeild. Ant,
sem rekur m.a.
greiðslumiðlun, á
að sögn Reuters í
harðri samkeppni
við WeChat Pay-
ment, dótturfyrirtæki Tencent Hold-
ings.
Gaf Alibaba ekki upp hversu mikið
tap var á starfsemi Ant, en rekst-
urinn er í dag metinn á 60 milljarða
dala og hlutafjárútboð í undirbún-
ingi. Jack Ma, stofnandi Alibaba,
hefur sagst vera áhugasamur um að
Ant verði skráð á markað í Kina en
lög þar í landi kveða á um að til að
fara á hlutabréfamarkað verði fyr-
irtæki að vera rekið með hagnað í
þrjú ár. Stjórnendur Alibaba segja
að á ársgrundvelli sé Ant réttu meg-
in við núllið. ai@mbl.is
World Economic Forum
Eftirspurn Þó hægt hafi á hagvexti eru neytendur í Kína duglegir að versla
á netinu. Mun hærra hlutfall en áður notar snjallsímann við kaupin.
Alibaba rokselur en
Ant rekið með tapi
Jack Ma
● Það vakti athygli heimspressunnar
fyrr í vikunni þegar ástralskur tölv-
unarfræðingur steig fram í sviðsljósið
og sagðist vera hinn dularfulli stofnandi
Bitcoin. Allt frá því rafmyntin varð til
árið 2008 hefur það verið ráðgata hver
upphafsmaður Bitcoin var og hann að-
eins verið þekktur undir dulnefninu Sa-
toshi Nakamoto.
Í desember nefndu tækniritin Wired
og Gizmodo Ástralann Craig Wright
sem einn af mögulegum höfundum
Bitcoin. Sagði Wright að í kjölfarið
hefðu fjölmiðlar sýnt sér mikla athygli
og óþægilegar sögur farið á kreik. Afréð
hann því að veita BBC, Econmist, GQ
og London Review of Books viðtöl til
að segja allan sannleikann. Á fundinum
með BBC sendi Wright blaðamanni
skeyti sem undirritað var með dulmáls-
lykli frá árdögum Bitcoin. Lykillinn er
tengdur Bitcoin-einingum sem vitað er
að Satoshi Nakamoto bjó til.
Ekki voru allir sannfærðir og nánari
skoðun leiddi í ljós að umræddur lykill
hafði verið afritaður í Bitcoin-færslu
sem átti sér stað árið 2009. Varð þetta
til þess að á þriðjudag kvaðst Wright
ætla að sýna heiminum óyggjandi sönn-
un fyrir fullyrðingum sínum.
Á miðvikudag virðist Wright hafa
snúist hugur en þá birti hann blogg-
færslu sem lýsir því hvernig athygli
heimsins hefði brotið hann niður. Segist
Wright ekki búa yfir þeim styrk sem að-
stæðurnar kalla á. Í færslunni neitar
hann því þó hvorki né stæðhæfir að
hann sé Satoshi Nakamoto. ai@mbl.is
Meintur stofnandi Bitcoin guggnar