Morgunblaðið - 06.05.2016, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ífyrradag félldómur íHæstarétti í
máli SPB hf.
gegn Eignasafni
Seðlabanka Ís-
lands (ESÍ) og
var þrotabúi
bankans gert að
taka til greina
kröfu ESÍ að fjárhæð 166
ma.kr. Krafan er til komin
vegna veðlánaviðskipta
Seðlabankans við Spari-
sjóðabankann, sem skipuð
var skilanefnd í mars 2009
þegar sýnt þótti að honum
yrði ekki bjargað frá þroti.
Þegar lausafjárþrenging-
ar fóru að gera vart við sig á
fjármálamörkuðum á árinu
2007 jókst þörf banka hér
heima og erlendis fyrir
lausafjárfyrirgreiðslu. Það
er einmitt eitt helsta hlut-
verk seðlabanka í peninga-
kerfinu að sjá til þess að
skortur á lausu fé knýi
banka ekki í þrot enda séu
eignir þeirra nægar til að
standa undir skuldbinding-
um. Allt frá því þrengingar
hófust og fram á þennan dag
hafa seðlabankar óspart
beitt lausafjárfyrirgreiðslu
til að halda fjármálakerfi
heimsins gangandi og sér
ekki enn fyrir endann á
þeim aðgerðum.
Á Íslandi dugðu þær ekki
til. Lausafjárþrengingar
bankanna voru fyrst og
fremst í erlendum gjaldeyri
og ekki hlutverk Seðla-
banka Íslands að veita slíka
lausafjárfyrirgreiðslu. Auk
þess höfðu þeir áritaða
reikninga sem sýndu að þeir
væru rekstrarhæfir og var
það mat staðfest af FME og
lánshæfisfyrirtækjum.
Seðlabanka Íslands bar því
að veita lausafjárfyrir-
greiðslu svo lengi sem við-
komandi fjármálastofnanir
gátu lagt fram fullnægjandi
tryggingar. Reglur um
tryggingar voru í megin-
atriðum byggðar á reglum
Seðlabanka Evrópu (ECB)
nema hvað lánshæfiskröfur
til undirliggjandi trygginga
voru strangari hjá Seðla-
banka Íslands. Seðlabank-
inn gerði því ríkari kröfur
um gæði trygginga en ECB.
Með dómi Hæstaréttar er
staðfest að Seðlabankinn fór
í öllu að reglum um veðlána-
viðskipti og vék þar í engu
frá. Allt tal um að bankinn
hefði mátt vita betur og að
um málamyndagerninga
hafi verið að ræða gerir
Hæstiréttur að engu og var
dómur hans sam-
hljóða dómi und-
irréttar.
Hæstiréttur
þurfti aðeins tvo
daga frá flutningi
málsins til að
komast að ofan-
greindri niður-
stöðu. Fimm
hæstaréttardómarar stað-
festu samhljóða þá niður-
stöðu héraðsdóms Reykja-
víkur að viðurkenna bæri
kröfu ESÍ. Niðurstaðan er
augljós þeim sem einhverja
þekkingu hafa á hlutverki
Seðlabanka við skilyrði
lausafjárþrenginga og inn-
sýn í fyrirgreiðslu af því
tagi sem um ræðir.
Af þessum sökum er
vandséð hvers vegna slita-
stjórnin hélt á málum eins
og raun ber vitni, en um
störf slitastjórna hafa
kröfuhafar lítið að segja.
Slitastjórnir eru skipaðar af
héraðsdómi og sitja í skjóli
hans og gjaldþrotalaga án
þess að kröfuhafar banka, í
þessu tilfelli Eignasafn
Seðlabankans, geti ráðið
nokkru þar um.
Þrátt fyrir þetta hefur
ESÍ árum saman freistað
þess að greiða fyrir slitum
félagsins og gert slitastjórn
og kröfuhöfum SPB tilboð
um málalyktir sem hefðu
verið öðrum kröfuhöfum
SPB en ESÍ mun hagfelld-
ari en sú niðurstaða sem nú
liggur fyrir samkvæmt dómi
Hæstaréttar og greitt fyrir
slitum búsins mörgum árum
fyrr en ella.
Ekki verður fullyrt um
hvers vegna slík leið var
ekki farin en hún hefði spar-
að kostnað við slitastjórn
upp á hundruð milljóna
króna. Þeir peningar koma
á endanum úr vasa almenn-
ings í landinu enda er SPB
nær alfarið í eigu Eigna-
safns Seðlabanka Íslands.
Kosturinn við að málið
var rekið alla leið í réttar-
kerfinu eins og gert var er
þó sá að nú hefur fengist
staðfesting, sem ekki verður
deilt um, þess efnis að
Seðlabankinn hafi í einu og
öllu farið að reglum um veð-
lánaviðskipti í aðdraganda
bankahrunsins. Ýmsir hafa,
án efa yfirleitt gegn betri
vitund, haldið því fram að
þarna hefði pottur verið
brotinn. Þeir sem reynt hafa
að nýta sér fall bankanna til
að slá slíkar keilur í um-
ræðunni sitja nú uppi með
þennan dóm Hæstaréttar.
Hæstiréttur stað-
festir að veðlána-
viðskipti Seðlabank-
ans í aðdraganda
bankahrunsins voru
að fullu í samræmi
við reglur}
Ótvíræð niðurstaða
M
jög ánægjulegt er að sjá að sí-
fellt fleiri gera sér grein fyrir
þeirri staðreynd að íslenzka
krónan er ekki uppspretta
efnahagslegra vandamála hér
á landi heldur fyrst og fremst aðeins mæli-
kvarði á þau. Líkt og hitamælir er ekki upp-
spretta hitastigsins heldur einungis mæli-
kvarði á stöðu mála. Ég hef áður fjallað um
nýleg ummæli hagspekinga Samtaka atvinnu-
lífsins og Viðskiptaráðs þess efnis að gjaldmið-
illinn væri ekki vandamálið heldur hvernig
haldið væri á efnahagsmálum þjóðarinnar.
Væri staðið almennilega að þeim málum skipti
ekki öllu máli hvað gjaldmiðillinn væri kall-
aður.
Við það bætast niðurstöður könnunar á
meðal félagsmanna SA sem birtar voru í síð-
asta mánuði þar sem mikill meirihluti, eða 2/3, sagðist
telja að krónan yrði framtíðargjaldmiðill þjóðarinnar.
Gylfi Zoëga, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands,
orðaði þetta með stöðu krónuna ágætlega í marz í samtali
við Stöð 2 þar sem hann sagði að vel væri hægt að reka
hér á landi öfluga peningamálastefnu með krónuna að
vopni:
„Allt þetta tal um að skipta um myntir til þess að fá ein-
hvern ímyndaðan veruleika sem er einhvers staðar í öðru
landi er held ég á misskilningi byggt og ekki gagnlegt.
Ástæðan fyrir því að þetta fór illa 2008 var fyrst og fremst
vegna umgjarðar peningastefnunnar. Það hvort það var
Jón Sigurðsson eða Eiffelturninn á pen-
ingaseðlunum var ekki aðalatriðið heldur um-
gjörðin og hvernig ákvarðanir voru teknar og
hvernig við brugðumst við áhættum. Það að
stökkva á milli og taka upp kanadadollar einn
daginn og evruna hinn daginn; allt þetta tal er
svo gagnslaust,“ sagði Gylfi í þeim efnum.
Þetta er mjög í anda þess sem dr. Ólafur
Margeirsson hagfræðingur hefur margoft
bent á. Það er að vandamálið væri ekki krónan
heldur stofnanaumgjörð hagkerfisins. Hluti
þeirrar umgjörðar er til að mynda verðtrygg-
ingin sem var komið á á sínum tíma til þess að
bregðast við tímabundnu vandamáli eins og
svo margt annað sem síðan hefur gengið erf-
iðlega að afnema. Eins og nóbelsverðlaunahaf-
inn í hagfræði, Milton heitinn Friedman, sagði
eitt sinn er ekkert eins varanlegt og tíma-
bundnar aðgerðir af hálfu hins opinbera.
Ólafur hefur sýnt fram á að hvorki verðbólga né háir
vextir séu afleiðingar krónunnar og þar af leiðandi ekki
heldur viðbrögðin við þessu tvennu á sínum tíma, verð-
tryggingin. Þvert á innantómar og órökstuddar fullyrð-
ingar um annað í gegnum tíðina. Hagspekingar SA og
Viðskiptaráðs bentu einmitt á það fyrir jól að með því að
kenna krónunni um efnahagslegar ófarir væri verið að
beina sjónum frá hinu raunverulega vandamáli í gegnum
tíðina sem væri slök efnahagsstjórn. Ríkisstjórnin hefur
einmitt sýnt fram á það á kjörtímabilinu að krónan er ekki
fyrirstaða góðrar hagstjórnar. hjortur@mbl.is
Hjörtur J.
Guðmundsson
Pistill
Með krónuna að vopni
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Kristján L. Möller og 12aðrir þingmenn úr öllumflokkum hafa lagt fram áAlþingi tillögu til þings-
ályktunar um jarðgöng milli Siglu-
fjarðar og Fljóta. Tillagan hljóðar
svona: „Alþingi ályktar að fela
innanríkisráðherra að hefja vinnu við
nauðsynlegar rannsóknir og frum-
hönnun á jarð-
göngum milli
Siglufjarðar og
Fljóta. Ráðherra
skili Alþingi
skýrslu með
niðurstöðum
rannsókna fyrir
árslok 2018.“
Flutningsmenn
reikna með að
ráðherra muni
fela Vegagerðinni
að framkvæma þessa vinnu.
Fram kemur í greinargerð með til-
lögunni að með stóraukinni umferð
um Siglufjörð með tilkomu Héðins-
fjarðarganga og sífelldu jarðsigi á
Siglufjarðarvegi um Almenninga og
mjög tíðum aur- og snjóflóðum á
ströndinni út frá Siglufirði að
Strákagöngum sé fullljóst að fram-
tíðarvegtenging frá Siglufirði í vest-
urátt verði best tryggð með gerð
jarðganga milli Siglufjarðar og
Fljóta.
Tveir möguleikar gefnir
Gefnir eru tveir möguleikar. Ann-
ars vegar 4,7 kílómetra löng jarð-
göng frá Hólsdal í Siglufirði yfir í
Nautadal í Fljótum og gerð u.þ.b.
fimm kílómetra langs vegar til að
tengjast núverandi vegakerfi. Og
hins vegar 6,1 kílómetra löng göng
frá Skarðsdal yfir að Hrauni í Fljót-
um. Með hvorri leið mundi vegurinn
frá Ketilási í Fljótum til Siglufjarðar
styttast um rúmlega helming, eða
um 15 kílómetra.
Samkvæmt upplýsingum Krist-
jáns L. Möller má reikna með að
kostnaður við jarðgöng í dag sé í
kringum 1,5 milljarðar á hvern kíló-
metra. Má því gróflega áætla að
kostnaður við styttri göngin yrði um
7,5 milljarðar og kostnaður við lengri
göngin rúmlega 9 milljarðar. Núver-
andi Siglufjarðarvegur frá Ketilási
að bæjarmörkum Siglufjarðar er um
25 km langur og liggur um svokall-
aða Almenninga. „Vegurinn var
lagður í tengslum við opnun Stráka-
ganga árið 1967 og er barn síns tíma,
hlykkjóttur og bugðóttur, en það
versta er að hann liggur um 7 km
langt jarðsigssvæði sem er á hreyf-
ingu á löngum köflum og hefur verið
í mörg ár með tilheyrandi vandræð-
um og kostnaði, að ekki sé talað um
hversu hættulegur vegurinn er og
víða mjög hátt yfir sjó. Þessi vega-
kafli er jafnframt mesti farartálminn
á leiðinni til og frá Siglufirði og mjög
oft ófær vegna snjóa,“ segja flutn-
ingsmenn í greinargerðinni.
Þeir benda á að með tilkomu
Héðinsfjarðarganga, sem opnuð
voru í október 2010, hafi umferð til
og frá Siglufirði og Ólafsfirði stór-
aukist. Umferð um göngin hafi slegið
öll met og sé langt umfram umferð-
arspá sem gerð var á undir-
búningstímanum. Þær geysimiklu
breytingar sem hafi orðið á svæðinu
frá opnun ganganna séu besta vís-
bendingin um mikilvægi þeirra.
Sveitarfélögin Siglufjörður og Ólafs-
fjörður voru sameinuð í sveitarfélag-
ið Fjallabyggð í júní 2006 og hefur
ýmiss konar samrekstur og hagræð-
ing orðið í framhaldi af sameining-
unni. „Héðinsfjarðargöng eru eitt
besta dæmið um verulega jákvæð
áhrif af framkvæmdum hins opin-
bera til að efla innviði veikra svæða
og stuðla þar með að viðsnúningi og
eflingu þeirra,“ segir í greinargerð-
inni.
Er það mat flutningsmanna að ný
Siglufjarðargöng muni styrkja og
efla mjög byggð í Fljótum.
Jarðgöng milli Siglu-
fjarðar og Fljóta
Siglufjarðargöng
Skarðsve
gur
1946
Miklavatn
Hraun
Ketilás
SI
GL
UF
JÖ
RÐ
UR
HÉ
ÐI
NS
FJ
ÖR
ÐU
R
ÓL
AF
SF
J.
Strákagöng
1967
Héðinsfjarðargöng 2010
Hó
ls
da
lu
r
2,6 km
0,3 km
0,3 km
6,1 km
4,7 km
2,3 kmNa
ut
ad
alu
r
Kristján L.
Möller
Fyrir mörgum árum útbjó Krist-
ján L. Möller alþingismaður
þetta skilti í tölvunni sinni,
„þegar ég var að læra á fótó-
sjoppið“.
Kristján sagði í samtali við
Morgunblaðið að raunhæft
væri að hefja framkvæmdir við
göng milli Siglufjarðar og
Fljóta eftir um 10 ár. Ef það
gengur eftir ætti ártal að koma
á skiltið á þriðja áratug þess-
arar aldar.
Komið hefur fram í fréttum
að Dýrafjarðargöng séu næst á
dagskrá. Þau eiga að fara í út-
boð í haust og framkvæmdir að
hefjast seinni hluta árs 2017.
„Ég er bjartsýnn á að til-
lagan nái fram að ganga enda
hef ég fundið fyrir miklum
stuðningi við hana,“ segir
Kristján L. Möller.
Raunhæft
eftir 10 ár
HVENÆR KEMUR ÁRTAL?