Morgunblaðið - 06.05.2016, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.05.2016, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson Elskuleg mamma okkar, tengdamamma, amma, langamma og langalangamma, RÓSA PÁLMADÓTTIR frá Hraunum í Fljótum, lést á heimili sínu á Akureyri þann 25. apríl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 9. maí kl. 13.30. . Björk Pétursdóttir Gylfi Traustason Elísabet Pétursdóttir Sigurður Björgúlfsson Viðar Pétursson Anna Kristinsdóttir Pétur Sigurvin Georgsson Jónína Halldórsdóttir Berglind R. Magnúsdóttir Ásgrímur Angantýsson barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS ÓLAFSSON, Þingeyri, sem andaðist 27. apríl, verður jarðsunginn laugardaginn 7. maí nk. klukkan 14 frá Þingeyrarkirkju. . Nanna Magnúsdóttir, Magnús Jónasson, Angantýr Valur Jónasson, Edda H. Ársælsdóttir, Ingunn Elín Jónasdóttir, Vilhelm Benediktsson, Kristinn Jónasson, Helga V. Guðjónsdóttir, Steinar Ríkarður Jónasson, Nanna B. Bárðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSDÍS ERLA GUNNARSDÓTTIR KAABER, lést á hjúkrunarheimilinu Grund 30. apríl 2016. Útför hennar fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 6. maí klukkan 15. . Jón Magngeirsson, Margrét Snorradóttir, Ástríður Sigvaldadóttir, Kristinn Páll Ingvarsson, Þórarinn Sigvaldason, Jóhanna Jóhannesdóttir, Kristinn Sigvaldason, Guðrún Jóhannesdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR ÁRNI THORARENSEN, kaupmaður á Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 7. maí kl. 14. . Ólafur Thorarensen Ragnar Thorarensen Sigríður Axelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SNÆBJÖRN AÐALSTEINSSON, fyrrverandi lögreglumaður, Barðastöðum 7, Reykjavík, lést að morgni 29. apríl. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. maí klukkan 15. . Kristín Lárusdóttir, Steinunn Snæbjörnsdóttir, Magnús Þórarinsson, Aðalsteinn Snæbjörnsson, Elsa S. Bergmundsdóttir, Lára G. Snæbjörnsdóttir, Magnús Þ. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður minnar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGRÍÐAR S. SÍMONARDÓTTUR frá Ártúnum. . Birna Kristín Lárusdóttir Sturlaugur Eyjólfsson Eyjólfur Sturlaugsson Guðbjörg Hólm Þorkelsd. Sigríður Sturlaugsdóttir Solveig Sturlaugsdóttir Henrik Aanæs Helga Helena Sturlaugsd. Eiríkur R. Eiríksson barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi, JÓN GUNNAR TÓMASSON, lést á hjartadeild Landspítalans laugardaginn 23. apríl síðastliðinn. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 10. maí klukkan 13. . Helga Matthildur Jónsdóttir, Rafn Rafnsson, Tómas Jónsson, Áslaug Briem, Sigríður María Jónsdóttir, Björn Bjartmarz og barnabörn. ✝ Jóhann Krist-insson fæddist á bænum Nýhöfn á Melrakkasléttu í Norður-Þingeyj- arsýslu 30. mars 1929 . Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 26. apríl 2016. Foreldrar Jó- hanns voru hjónin Sesselja Benedikts- dóttir frá Akurseli í Öxarfirði og Kristinn Kristjánsson frá Leirhöfn. Systkini: Kristján, f. 1919, d. 1995, Helga Sigríður, f. 1921, d. 2007, Benedikt, f. 1923, d. 1943, Steinar, f. 1925, d. 1997, Guðmundur, f. 1931, d. 2003. Þann 1. október 1960 kvænt- ist Jóhann Ingibjörgu Þorsteins- dóttur frá Blikalóni. Börn þeirra eru: 1) Eiríkur, f. 2. júní 1960. Maki Sigríður Helga Ol- geirsdóttir. Þeirra börn: Fann- ey Margrét, f. 6. nóvember 1994, sambýlismaður Egill Mor- an Rubner Friðriksson. Sóley Sara, f. 9. júlí 1996. Sonur Sig- ríðar Helgu er Helgi Þór Harð- arson, f. 13. maí 1979. Hans börn eru Hreggviður Dýri, Hekla Dýrleif. Sambýliskona Júlíanna Lára Steingrímsdóttir. 2) Margrét, f. 18. ágúst 1963. Maki Pálmi Jóns- son. Þeirra börn: a) Ingibjörg, f. 6. nóv- ember 1990. Sam- býlismaður Magnús Stefánsson. b) Jón Helgi, f. 10. júlí 1998. Börn Pálma: i) Bjarni Víðir, f. 29. apríl 1981. Hans börn eru Helga Lilja, Karen Margrét, Pálmi Víðir, Freyr Henry. ii) Inga Dís, f. 12. september 1984. Sambýlis- maður Guðmundur Steinn Sig- urðsson. Þeirra sonur er Bjarki Hrafn. Jóhann nam vélsmíði við Landsmiðjuna í Reykjavík og Iðnskólann í Reykjavík og varð meistari í iðn sinni. Nær allan sinn starfsaldur gegndi hann starfi verkstæðisformanns á viðhalds- og viðgerðar- verkstæði Síldarverksmiðju Ríkisins á Raufarhöfn og síðar SR-mjöl. Jóhann og Ingibjörg bjuggu lengst af á Raufarhöfn. Við starfslok Jóhanns árið 1999 fluttu þau hjón til Hafnarfjarð- ar, þar sem þau hafa búið síðan. Útför Jóhanns fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 6. maí 2016, klukkan 13. Þrátt fyrir að kveðjan hafi ekki verið kærkomin, elsku afi, er það samt sem áður þakklæti sem er mér efst í huga. Ég er þakklát fyrir stundirnar okkar þegar ég var yngri þegar spaðarnir voru sprengdir úti á hlaði og fyrir stundirnar í seinni tíð þegar spilin voru lögð til hlið- ar og við tóku sögur af liðinni tíð. Ég er þakklát fyrir að hafa verið umkringd hlýju þinni sem streymdi jafnt til mín sem alls þíns fólks og er ég viss um að sú hlýja mun fylgja mér ævilangt. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst sambandi þínu og ömmu, en bæði ást ykkar og umhyggja var áþreifanleg og til eftir- breytni. Takk fyrir allt, elsku afi minn. Ingibjörg Pálmadóttir. Þegar við sitjum og hugsum um afa okkar við skrif á þessari minningargrein kemur upp í hug- ann minning sem okkur báðum finnst vera ein af fyrstu minning- um okkar af afa. Það var þegar hann kenndi okkur að telja putt- ana á gamla mátann sem hljóm- aði einhvern veginn svona: „þum- altott, sleikipott, langimann, gúllíbrann og litli putti spila- mann“. Þegar afi kvað upp síð- asta puttann skellti hann ævin- lega upp úr með sínu fallega brosi og hlátri sem er svo ferskur í minni okkar. Afi fór ekki leynt með tilfinn- ingar sínar og smituðu þær mikið út frá sér. Ef afi var glaður var eins og það lifnaði yfir öllum sem í kringum hann voru. Það var alltaf stutt í húmorinn og eigum við margar minningar af honum segja ýmsar sögur þar sem allir lágu í hláturskasti. Afi gat þó stundum verið með harða skel þó svo að innihaldið væri dúnmjúkt og minnumst við þess að ef afi sagði okkur til syndanna í æsku þá var öruggt að maður átti eftir að skammast sín. Á sama tíma voru samt fáir sem sýndu okkur jafn hreina væntumþykju og kall- aði hann okkur ævinlega „rósina“ eða „lóuna“ sína. Móttökurnar sem við fengum frá honum voru alltaf svo hlýjar og fundum við alltaf hvað honum þótti vænt um fólkið sitt. Afi var mjög gjafmild- ur maður en gat verið blóðnískur á sama tíma. Þegar það kom að því að eyða í aðra var hvergi til sparað en þegar það snéri að hon- um sjálfum sætti hann sig við það „billegasta“. Sem dæmi má nefna skó á slikk úr Kolaportinu sem kom svo seinna í ljós að voru í sitt hvorri stærðinni. Nú er elsku afi okkar farinn frá okkur og minnumst við hans með miklum söknuði en á sama tíma þakklæti fyrir að hafa átt svona yndislegan mann í okkar lífi sem okkur þótti svo óskaplega vænt um. Fanney Margrét og Sóley Sara Eiríksdætur. Í örfáum orðum langar mig að minnast kærs vinar og mágs, Jó- hanns, sem var frá Nýhöfn á Mel- rakkasléttu. Fyrstu minningarnar eru frá því hann var að taka saman við Ingibjörgu systur mína. Hann var alltaf óskaplega góður við mig, þegar þau fóru að búa á Raufarhöfn dvaldi ég oft dögum samann hjá þeim. Hann hafði frekar gaman af veiðiskap og fór gjarnan vestur í Blikalón og lagði net fyrir sjó- bleikjuna. Hann var ákafamaður ef eitt- hvað átti að gera og þurfti helst að klára það á stundinni; eitt sinn vorum við að taka upp kartöflur og máttum við ekki fá okkur kaffisopa fyrr en verkinu væri lokið. Þegar hann varð sjötugur fluttu þau hjón til Hafnarfjarðar. Þá breyttist lífið mikið; í stað þess að vera alltaf á verkstæðinu fór hann að elda matinn og þvo gólfin þar sem Inga systir var að vinna utan heimilis. Við áttum margar góðar sam- verustundir hér fyrir sunnan, margar góðar jólaferðir austur í Hruna og margar styttri ferðir. Eins áttum við margar skemmti- legar samverustundir í Skaga- firði er þau Inga heimsóttu mig og mína heim að Hólum er við bjuggum þar, margar bílferðirn- ar fórum við um Skagafjörð frá Fljótum og inn í Austurdal og út á Skaga. En árin líða og þá fer þrekið minnkandi og seinni árin sat hann oft við prjóna. Eitt sinn gaf ég honum bandhespur í jólagjöf og fékk í staðinn þessa fínu sokka, hann var iðinn við prjón- ana og flinkur með þá eins og annað handverk. Heilsuhraustur var hann mestallt sitt líf, það var ekki fyrr en síðustu mánuðina sem hann fór að gefa sig að ráði. Ekki var hann hrifinn af súrefniskútnum sem hann varð að hafa með sér hvert sem hann fór. Ég sakna hans og þeirra mörgu góðu stunda sem við átt- um við leik og störf. Voru þau hjón mér og fjöl- skyldu minni mjög góð og mun ég sakna þeirra samverustunda er við áttum saman en svona er lífið. Blessuð sé minning Jóhanns Kristinssonar. Sigríður Þorsteinsdóttir. Jói frændi er látinn, síðastur Nýhafnarsystkinanna. Benedikt bróðir hans lést ungur, Kristján byggði Sandvík, Steinar Reistar- nes, Guðmundur Nýhöfn II og eina systirin, Helga móðir mín, Miðtún – öll býlin í Nýhafnar- landi. Jói ætlaði að búa í Nýhöfn – ekki þó sem bóndi því rollukall var hann ekki; þekkti aldrei kind – ekki sína eigin heldur. Jói var hins vegar vélakall og orðlagður snillingur á því sviði. Þá iðn lærði hann í Landsmiðjunni – kom heim og byggði verkstæði; ætlaði í vörubíla- og jarðýtuútgerð – enda nóg að gera á Sléttu í þá daga. Þetta breyttist allt. Miðtún var tæplega fokhelt þegar Jói kom til systur sinnar og hreiðraði um sig í „Jóaherbergi“ eins og það hét í mörg ár. Milli þeirra var strengur sem aldrei svo mikið sem tognaði og seinna kallaði hann hana mömmu: „Það kom bara eftir að mamma dó,“ sagði hann. Jói hafði gaman af strákunum hennar, orðlögðum ærslabelgjum sem fullorðnuðust og eignuðust heimili. Jói var sjálfsagður í öll ættartilstönd og lét óspart í ljós væntumþykju sína til fjölskyldna okkar. Jói og hans fjölskylda komu síðar oft í Miðtún – skrafað og hlegið. Og auðvitað vissi mamma fyrst allra þegar Jói var að ná í Ingu því það var hún sem gerði við hnén á sparibuxum Jóa eftir að hann datt á leið sinni í myrkrinu á stefnumót heim að Blikalóni. Um samdragelsi Ingu og Jóa töluðu amma og mamma laumulega á leið í berjamó og eyru mín stóðu þvert út frá hausnum, enda spennandi mál. Já – og Jói náði í Ingu, elskuna sína alla tíð. Þau hófu búskap á Raufarhöfn. Þar var allt að gerast; síldarævintýrið á fullu og vélar Síldarverksmiðj- unnar þrautpíndar. Þær biluðu og þá þurfti mann sem gat allt og auðvitað kallað í Jóa. Hann hætti að hugleiða jarðýtubisness en gerðist verkstæðisformaður Síld- arverksmiðjanna og stóð vaktina í 40 ár. Starfinu fylgdi að sinna vélaviðgerðum skipanna og voru engar pásur þegar skipt var um legur eða soðið rör í þröngu kjal- soginu. Jóa vantaði ekki svartsýnina ef því var að skipta – miklaði stund- um hlutina óþarflega mikið fyrir sér, taldi allt ómögulegt – en þetta var tómt bull, hann sá svo sannarlega spaugilegu hliðar lífs- ins. Þegar komið var með biluð stykki fullyrti Jói oft að þau væru ónýt en það brást aldrei að næsta morgun voru þau tilbúin, betri en ný úr höndum Jóa. Hann átti ekki langt að sækja það – sonur Krist- ins í Nýhöfn, þjóðþekkts völund- ar á járn og vélar. Jói hafði þá skemmtilegu kímnigáfu að gera grín að sjálfum sér og þá með kjarnyrtum lýsingarorðum. „Æi – Ninni minn, þú veist hvað ég meina.“ Og ég vissi hvað hann meinti og grét af hlátri. Þekkti þetta ágætlega því systir hans, hún mamma mín, þurfti iðulega að „hella úr gleraugunum“ þegar sá gállinn var á henni, var þá kannski að rifja upp óborganleg tilsvör eða kómískar uppákomur – þau náðu vel saman systkinin. Ég átti með honum góða stund og daginn eftir kvaddi hann held- ur fljótt, sáttur við Guð og menn. Inga mín og fjölskylda. Við frá Miðtúni vottum ykkur dýpstu samúð og þökkum allar gleði- stundir. Guð blessi Jóa frænda og varðveiti hann að eilífu. Níels Árni Lund. Jóhann Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.