Morgunblaðið - 06.05.2016, Síða 26

Morgunblaðið - 06.05.2016, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 Hjörtur Steindórsson húsasmiður fagnar í dag 52 ára afmælisínu og í tilefni þess verður blásið til veglegrar veislu umhelgina. „Ég hitti ættingja og vini á morgun í kaffiveislu sem haldin verð- ur heima hjá bróður mínum, en við erum tví- burar og höldum því saman upp á daginn,“ segir Hjörtur, en tví- burabróðir hans heitir Ágúst Steindórsson og er sá einnig húsasmiður. Í dag starfar Hjörtur sem sölumaður hjá um- boðs- og heildversl- uninni Vélar og verk- færi sem selur og dreifir meðal annars verkfær- um og útivistar- og sportvörum. Hefur hann starfað þar í um 15 ár en áður vann hann við húsasmíði, í um 10 ár, auk þess að hafa gegnt starfi deildarstjóra hjá Húsasmiðjunni um ára- bil. Óhætt er að fullyrða að eitt helsta áhugamál Hjartar séu göngu- og hjólaferðir, en þegar blaðamaður náði tali af honum hafði Hjörtur einungis fáeinum dögum áður verið við göngu á Eyjafjallajökli ásamt hópi fólks. Aðspurður segist hann ekki vera búinn að ákveða neinar ferðir þetta sumarið. „Það er nú ekkert sérstakt planað eins og er. En fjöllin eru framundan og hjólið – það er alltaf gaman að leika sér eitthvað á því,“ segir hann og bendir á að hann hafi fyrir ekki svo löngu síðan hjólað frá Reykjavík til Landeyjahafnar þaðan sem hann tók Herjólf yfir til Vestmannaeyja. „Ég hjólaði austur og svo þegar komið var til Eyja þá hjólaði ég um allt þar. Maður stefnir því á einhverja skemmtilega hjólatúra og ferðir hér innanlands þótt ekkert sé beinlínis ákveðið eins og er.“ Spurður hvort hann hafi lengi verið virkur í útivist kveður Hjört- ur já við. „Ég er búinn að vera í þessu sporti í mörg ár og er t.a.m. í gönguhópi sem fer alltaf sjö fjöll á sumrin.“ khj@mbl.is Kappi Hjörtur er mikill hjóla- og göngu- garpur og stefnir á nokkra tinda í sumar. Með fjöllin fram- undan í sumar Hjörtur Steindórsson er 52 ára í dag S igríður Margrét fæddist í Reykjavík 6.5. 1976, ólst þar upp og á Skagaströnd og í Njarðvík: „Þegar ég var fimm ára fluttu for- eldrar mínir á Skagaströnd þar sem pabbi var prestur í nokkur ár. Eitt eftirminnilegasta augnablik þeirra ára var útimessa hjá pabba sem sýnd var í kvikmynd Friðriks Þórs Frið- rikssonar, Kúrekar norðursins. Pabbi var fjölhæfur prestur, var t.d. kennari, bankastarfsmaður og vann á sveitarstjórnarskrifstofunni.“ Frá Skagaströnd lá leiðin til Njarðvíkur þar sem faðir Sigríðar varð bæjarstjóri: „Í Njarðvík kynnt- ist ég mínum bestu vinkonum, lærði á fiðlu og lagði mig fram í náminu. Ég er enn þakklát þeim kennurum sem ég kynntist í Njarðvík, hvatning þeirra, stuðningur og framsýni var með eindæmum.“ Sigríður lauk stúdentsprófi frá VÍ 1995 og B.Sc. gráðu í rekstrarfræð- um frá HA með áherslu á markaðs- fræði, árið 1999: „Ég flutti til Ak- ureyrar til þess að verða mér út um háskólanám en náði mér þar jafn- framt í mann, yndislega tengda- fjölskyldu og tvo syni.“ Sigríður varð ráðgjafi og við- skiptastjóri á skrifstofum ráðgjafa- fyrirtækisins Ráðgarðs á Akureyri 1999, sem þá var stýrt af Jóni Birgi Guðmundssyni. Ráðgarður samein- aðist svo Gallup og varð IMG. Árið 2002 varð Sigríður svæðisstjóri IMG á Akureyri og sinnti jafnframt við- skiptastjórn til 2005 en þá voru breytingar í aðsigi: „Árið 2005 mark- aði tímamót í mínu starfi. Þá hóf ég samstarf við viðskiptafélaga minn, Katrínu Olgu Jóhannesdóttur, sem er stjórnarformaður Já og formaður Viðskiptaráðs Íslands.“ Sigríður hefur verið framkvæmdastjóri og forstjóri Já hf. frá 2005. Árið 2007 var sú starfsemi Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já.is – 40 ára Eiginmaður og synir Einar og synir þeirra Sigríðar, Einar Oddur Páll og Elmar Fossberg, uppáklæddir og flottir. Með hugann við fjöl- skylduna og viðskiptin Nöfnurnar Sigríður Margrét með ömmu sinni, Sigríði Guðjohnsen. Margrét Sigurðardóttir (Magga massi), margfaldur Íslandsmeistari í vaxtarrækt, er 50 ára í dag. Eiginkona hennar er Ríkey Garðarsdóttir. Þær eru að heiman. Árnað heilla 50 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 295 Vinnuvettlingar PU-Flex 1.395 Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk Greinaklippur frá 595 695 Strákústar á tannbursta- verði Garðklóra/ Garðskófla 595 1.995 Öflug stungu- skófla Garðverkfæri ímiklu úrvali frá 1.995 Garðslöngur ímiklu úrvali Fötur í miklu úrvali 4.995 Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hjólbörur með 100 kg burðargetu Úðabrúsar ímörgum stærðumfrá 995 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.