Morgunblaðið - 06.05.2016, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Brauð dagsins alla föstudaga
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Smá hlé á þéttri dagskrá þinni gefur
þér tíma til að dreyma, hugsa og plana uppá-
komu í náinni framtíð. Vilji er allt sem þarf.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er ekkert við því að gera þótt þú
fáir ekki öllu ráðið um sérstakt verkefni. Nú
er hins vegar kominn tími til að huga að
framtíðarmálum heimilisins.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er göfugt að halda sig við
áætlun – nema þegar hún er hreint og beint
heimskuleg. Fólk er jákvætt gagnvart þér og
þú sýnir því vináttu á móti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú munt komast að því að hæfileikar
þínir liggja á mörgum sviðum. Raðaðu hlut-
unum í forgangsröð. Skelltu þér á drauma-
hjólið, það er að segja ef þú átt peninga.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu þér ekki bregða þótt margt
óvænt gerist í dag og þú eignist jábræður
sem þú hafðir allra síst átt von á. Brjóttu
málin til mergjar og leystu þau svo eitt af
öðru.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það liggur einhver svartsýni í loftinu í
dag en hlutirnir ættu strax að líta betur út á
morgun. Hikaðu ekki við að segja hug þinn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reyndu að koma skikki á hlutina og
skila því starfi sem þér er ætlað. Leitaðu
hjálpar tafarlaust ef þú telur það nauðsyn-
legt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur verið erfitt að eiga við
andstæðing sem er svo líkur manni sjálfum
að furðu sætir. Leyfðu þér að dreyma – en
helst ekki framkvæma. Gerðu þér grein fyrir
því hvert þú vilt stefna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er sjálfsagt að þú deilir
starfsorku þinni með öðrum ef þú á annað
borð vilt rétta þeim hjálparhönd. Kynntu þér
vandlega þá kosti sem í boði eru og láttu öll
gylliboð lönd og leið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Viðkvæmt mál ber á góma og þótt
ykkur sé mikil raun að ræða álit ykkar á því
verðið þið að gera það. Ef þú ert úthvíld/ur
vinnur þú betur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér er lagið af svipta hulunni af
leyndardómum í dag. Brostu við lífinu – það
gerir allt svo miklu auðveldara.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekki nóg að ýta hlutunum úr
vör, heldur verður þú líka að vaka yfir þeim
og hafa forystu um að koma þeim í höfn.
Láttu ekki öfund annarra slá þig út af laginu.
Þegar afi minn Benedikt Sveins-son varð sjötugur var honum
haldin veisla og sat ég, ungur
drengur níu ára gamall, við hlið
ömmu minnar Guðrúnar Péturs-
dóttur við háborðið. Ræðumaður
lauk máli sínu með því að lyfta glasi
og bað veislugesti að gera slíkt hið
sama og drekka heillaskál afa míns.
Ég var í vandræðum, hvíslaði „glas-
ið mitt er tómt, amma!̈“ „Skálaðu
samt!“ svaraði hún.
Þetta rifjaðist upp fyrir mér þeg-
ar ég sá, að Sigurdór Sigurdórsson
hafði skrifað á Facebook: Halldór
Blöndal var samgönguráðherra
þegar Hvalfjarðargöngin voru opn-
uð. Tímaritið Mannlíf birti mynd af
Halldóri þar sem hann saup áfengi
af stút í opnunargillinu en ók svo
ráðherrabílnum fyrstum bíla í
gegnum göngin. Þá varð þessi vísa
til:
Eðalsopinn ansi stór
efldi gleði sanna
og undir Hvalfjörð fullur fór
fyrstur allra manna.
Magnús Ólafsson skrifaði á Boðn-
armjöð:
Nú er úti napur vetur
nú er kalt um land og sæ.
Núna snjóinn niður setur
þó nú sé kominn þriðji maí.
Magnús Halldórsson svaraði og
sagði að hún yrði svona hér syðra:
Nú er úti napur vetur,
nú er blítt um land og sæ,
næga geisla niður setur,
því nú er kominn þriðji maí
Halldór Guðlaugsson kom með
„dönsku útgáfuna“ :
Nú er liðinn napur vetur
nú er vor um lönd og sæ
núna enginn nöldrað getur
nú er kominn þriðji maí.
Og Anna Dóra Gunnarsdóttir
bætti við „Hörgársveitarútgáf-
unni“:
Nú er liðinn napur vetur,
nú er mál að kveðja snæ,
Víst er svo að veðrið getur
versnað, líka í byrjun maí.
Helgi R. Einarsson hafði orð á
því í síðustu viku að fréttirnar létu
menn ekki í friði, það væri eins og
maður hefði misst af einhverju!
Í Kastljósinu við könnum
klæki í dagsins önnum.
Ef að þú stelur
og allt síðan felur
þá ertu maður með mönnum!
Nú er öldin önnur.
Framsóknarmaddaman mædd er,
svo mörgum kostum sem gædd er.
Ýmislegt hér
nú aflaga fer,
því úr sér hún næstum því brædd er
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Skál í botn, veðrið og því um líkt
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HÆ, MAMMA. ÉG FÉKK ÞESSA VINNU.
KOMDU ÞÉR HINGAÐ FLJÓTT OG
SÝNDU MÉR HVAÐ ÉG Á AÐ GERA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... enn aðeins draumur.
HELDURÐU AÐ ÉG SÉ NÓGU
GÓÐUR FYRIR LÍSU?
ÉG SPURÐI
RANGAN MANN
Ó, ÉG HELD AÐ
ÉG HLÆI FYRIR
HÖND ALLRA
LAFÐI GODIVA ER FYRIR
UTAN Á HESTI SÍNUM! Ó, NEI! ÉG GET
EKKI LÁTIÐ GREYIÐ
VÖKNA Í GEGN!
Ef eldur
brýst út:
Rjúfið
þagnareiðinn
Bjartsýni er nauðsynleg í íþrótt-um, jafnt hjá keppendum sem
stuðningsmönnum, og víst er að
fyrsti Englandsmeistaratitill Leic-
ester í fótbolta á eftir að blása
mörgum víðs vegar um heim kjark í
brjóst.
x x x
Leicester slapp naumlega við fallúr efstu deild á Englandi fyrir
ári. Claudio Ranieri missti hins
vegar starf sitt sem landsliðsþjálf-
ari Grikklands eftir tap á móti
Færeyjum og Leicester réð hann í
starf knattspyrnustjóra í kjölfarið.
Fyrir líðandi tímabil var liðinu víða
spáð falli og að knattspyrnustjórinn
yrði fyrstur slíkra í deildinni til að
missa vinnuna á tímabilinu. Hjá
veðbönkum voru möguleikar liðsins
á titlinum taldir vera 5.000 á móti 1.
x x x
Ævintýrin gerast enn og Leic-ester sýndi í vetur að allt get-
ur gerst í fótbolta. Úrslitin eru
hvergi nærri ráðin, eins og Rauða
ljónið segir nánast á hverjum leik.
x x x
Sérfræðingur í útvarpsþættinumAkraborginni sagði í vikunni að
slyppi Eyjólfur Héðinsson, leik-
maður Stjörnunnar, við meiðsli í
sumar yrði hann leikmaður ársins í
Pepsi-deildinni í fótbolta. Sérfræð-
ingarnir eru með allt á hreinu.
x x x
Ólafur Kristjánsson knattspyrnu-þjálfari varaði hins vegar við
sleggjudómum í sjónvarpsþætt-
inum Pepsi-mörkunum að fyrstu
umferð lokinni. Meðreiðarsveinar
hans töluðu um að Skagamenn yrðu
að fá nýja menn en hann benti þeim
á að þjálfari ÍA væri ekki verri nú
en í fyrra, þegar honum var hrósað
fyrir að ná því besta út úr hverjum
manni, og þjálfarar yrðu einfald-
lega að vinna með þann mannskap
sem þeir hefðu hverju sinni.
Stjórnandi þáttarins vildi fá álit
þjálfarans á dómgæslu en hann
drap þá umræðu og sagðist ekki
vera kominn í þáttinn til þess að
ræða dómara. Margt má um þá
segja en ástæðulaust að ýta undir
að þeir séu hlutdrægir eins og
skýrendur vilja oft vera láta. Gott
hjá Óla. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta. (Sálm. 23:1)