Morgunblaðið - 06.05.2016, Side 30

Morgunblaðið - 06.05.2016, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 JURA – If you love coffee Opið virka daga frá kl. 10:00-18:00 og laugardaga frá kl. 11:00-15:00 | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Dásamlegt kaffi – nýmalað, engin hylki. ƒ Púlsuppáhelling (P.E.P.®) tryggir réttan uppáhellingar- tíma og framkallar fullkominn espresso, eins og hann er gerður af heimsins bestu kaffibarþjónum ƒ Vatnskerfið (I.W.S.®) skynjar vatnsfilterinn sjálfkrafa á meðan CLARIS Smart tryggir bestu mögulegu vatnsgæði ƒ Notendavæn kaffivél með einföldu stjórnborði, nútímalegum TFT skjá og vatnstanki sem fyllt er á að framanverðu ƒ Fullkomið hreinlæti fyrir fullkomna mjólkurfroðu þökk sé eins hnapps viðhaldi og mjólkurstúti sem er auðvelt að skipta út JURA – If you love coffee Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Öllum stofnunum er hollt að eiga vinafélög og að þeir sem vilja stofnuninni vel sameinist um að tala máli hennar,“ segir Sigurður Svav- arsson, formaður nýstofnaðs vina- félags Stofnunar Árna Magnús- sonar, en á síð- asta degi vetrar var félagið sett á laggirnar með þann yfirlýsta til- gang að styðja við starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræð- um og halda á lofti margþættu hlutverki hennar á sviði íslenskra fræða. Tilganginum hyggst félagið ná með því að styrkja skýrt afmörkuð verkefni á vegum stofnunarinnar, standa að viðburðum og veita árlega viður- kenningu til meistaranema við há- skóla. Í stjórn vinafélagsins sitja ásamt Sigurði þau Þórunn Sigurð- ardóttir, Þórarinn Eldjárn, Kristján Kristjánsson, Sjöfn Kristjánsdóttir, Marteinn Breki Helgason og Nanna Rögnvaldardóttir. „Stofnfundurinn var vel sóttur og margir vildu vera skráðir sem stofnfélagar þótt þær kæmust ekki á fundinn,“ segir Sigurður, en nú þegar hafa um 300 manns gengið til liðs við vinafélagið. Enn er hægt að gerast félagi á vefsvæði félagisns, www.vinirarnastofnunar.is Bæti við menningarlega vídd Fyrsta verkefni vina Árnastofn- unar verður að sjá til þess að gert verði við Flateyjarbók í tíma, en á sumardaginn fyrsta voru 45 ár liðin frá því að fyrstu handritin, Flateyjarbók og Konungsbók eddu- kvæða, komu til landsins frá Dan- mörku. „Það eru ýmis verkefni sem ekki hafa fengist fjármunir í að sinna og þar á meðal eru viðgerðir á þessum gersemum sem okkur hefur verið trúað fyrir,“ segir Sigurður, en stórkostleg tækifæri felist í því að handritin, sem skráð eru á heims- lista UNESCO yfir Minni heimsins, séu gerð aðgengileg og sýnileg öll- um. „Það mun til að mynda bæta menningarlegri vídd í ferðamennsk- Standa að baki ís- lenskum fræðum  Fyrsta verk að lagfæra Flateyjarbók Félagskonur KÍ- TÓN, félags kvenna í tónlist, á Norðurlandi halda tónleika á Café Rosenberg í Reykjavík í kvöld kl. 22. Tónleik- arnir bera yfir- skriftina Norð- lenskar konur í tónlist og verður flutt tónlist þekktra kvenna sem markað hafa tónlistarsöguna hér heima og erlendis með lagasmíðum sínum og flutningi. Á tónleikunum koma fram Ásdís Arnardóttir á kontrabassa, Helga Kvam á píanó, Kristjana Arngríms- dóttir söngkona, Lára Sóley Jó- hannsdóttir, söngkona og fiðluleik- ari, og söngkonan Þórhildur Örvarsdóttir. Sérstakur gestur verð- ur lagahöfundurinn og tónlistar- konan Kristjana Stefánsdóttir. Tón- leikarnir eru uppskera fyrsta starfsárs kvennanna, sem stóðu fyr- ir tónleikaröð í tilefni af 100 ára af- mæli kosningaréttar kvenna, að því er fram kemur í tilkynningu. Norðlenskar konur á Rosenberg Lára Sóley Jóhannsdóttir Læknirinn How- ard Kornfeld, sem starfar í Kaliforníu, segir tónlistarmanninn Prince hafa átt pantaðan tíma hjá sér vegna lyfjafíknar, degi eftir að hann lést en Prince lést 21. apríl sl. Kornfeld segist hafa ætlað að hjálpa Prince í baráttunni við verkjalyfjafíkn. Talsmenn Prince höfðu samband við Kornfeld 20. apríl og báðu um neyðaraðstoð fyr- ir tónlistarmanninn, að því er haft er eftir lögmanni læknisins, Willi- am Mauzy, í dagblaðinu Minneapol- is Star Tribune. Kornfeld gat ekki hitt Prince með svo stuttum fyr- irvara og bað son sinn, Andrew, um að skipuleggja fund með tónlistar- manninum. Mun það hafa verið Andrew sem hringdi í neyðarlínuna eftir að Prince fannst án lífsmarks í lyftu í Paisley Park. Átti tíma hjá lækni vegna fíknar Prince Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Fyrsta breiðskífa hljómsveitar- innar Boogie Trouble kom út 7. apríl sl. og nefnist hún Í bænum. Platan hefur verið um þrjú ár í vinnslu og hefur að geyma níu lög með textum sem fjalla um allt frá stanslausu stuði og mökunartil- burðum landsmanna yfir í dauða og greftrun, eins og segir í til- kynningu. Boogie Trouble var stofnuð í árslok 2012 og hefur ver- ið iðin við tónleikahald. Hana skipa söngkonan Klara Arnalds, Ingibjörg Elsa Turchi bassaleik- ari, Sigurður Tómas Guðmundsson trommuleikari, Sunna Karen Ein- arsdóttir hljómborðsleikari, Sindri Freyr Steinsson gítarleikari og Arnar Birgisson, slagverksleikari og „stuðuppihaldari“, eins og hljómsveitin lýsir því. Ekkert hálfkák „Þetta er spurningin sem við fáum alltaf,“ svarar Klara og hlær þegar hún er spurð að því af hverju fyrsta platan komi svo löngu eftir að hljómsveitin hóf störf. „Slatti af efninu sem er á plötunni varð til fljótlega eftir að við byrjuðum að starfa saman. Við fórum að vinna að plötunni fyrir næstum því þremur árum en náð- um henni ekki eins og við vildum hafa hana. Þannig að í staðinn fyr- ir að henda út einhverju hálfkáki vildum við gera eitthvað sem við gætum verið virkilega stolt af,“ segir Klara. Fyrstu upptökum stýrði Skapti Þórhallsson í Sundlauginni, hljóð- verinu góðkunna í Mosfellsbæ, en síðan var smurt rækilega ofan á með upptökum sem Janus Rasm- ussen úr Kiasmos stýrði, að sögn Klöru. „Hann pródúseraði plötuna í sinni endanlegu mynd,“ bætir hún við. Úr ýmsum áttum – Er útkoman ekki bara hrein- ræktað diskó? Er hægt að lýsa tónlistinni með öðrum hætti? „Hreinræktað myndi ég ekki segja. Hún vísar mjög sterkt í diskó en það eru líka ansi sterk áhrif frá íslenskri söngvahefð frá sjöunda áratugnum, þessum ís- lensku lögum sem allir þekkja. Það bætist ofan á. Lagauppbygg- ingin er svolítið þannig og við leggjum mikið upp úr því að hafa góða texta á góðri íslensku, þó svo hljómsveitin heiti erlendu nafni. Þetta er blanda úr ýmsum áttum en diskó í grunninn,“ segir Klara. – Þetta nafn, Boogie Trouble, hvaðan kom það? „Þetta kom nú á einhverju skralli í bænum og vinur okkar, Pétur Torfi, stakk upp á því. Við vorum að brenna inni með að finna nafn, vorum búin að bóka okkar fyrstu gigg og hétum ekki neitt. Þannig að við lentum á þessu og höfum staðið við það síð- an.“ Klara segir að þó svo mikið sé lagt í textana vilji lagatitlarnir oft sitja á hakanum. „Eitt lag á plöt- unni, „Glópagull“, hét í tvö ár „Túttur og snakk“ og við kynntum það þannig á sviði sem er kómískt því lagið fjallar um ástina, feigðina o.fl. sem kemur túttum og snakki ekkert við,“ segir Klara kímin. Þyngri viðfangsefni inn á milli Spurð frekar út í umfjöllunar- efni textanna segir Klara að þau séu af ýmsum toga. „Ástin og til- hugalífið fær heilmikið pláss, eins og vera ber í góðu poppi, en svo eru þyngri viðfangsefni inn á milli, t.d. feigðin og hverfulleiki lífsins,“ segir hún. Hlýða má á plötuna og kaupa á vefslóðinni boogietrouble.band- camp.com og einnig má finna hana í föstu formi í öllum betri versl- unum, að sögn Klöru. Ást, feigð og hverfulleiki  Sungið um allt frá stanslausu stuði yfir í greftrun á fyrstu breiðskífu Boogie Trouble  Metnaðarfull textagerð og diskó í grunninn  Þrjú ár í vinnslu Boogie Trouble Hljómsveitina skipa þau Klara Arnalds, Ingibjörg Elsa Turchi, Sigurður Tómas Guðmundsson, Sunna Karen Einarsdóttir, Sindri Freyr Steinsson og Arnar Birgisson. Þau leika dansvæna tónlist. Í bænum Plata Boogie Trouble. Sigurður Svavarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.