Morgunblaðið - 06.05.2016, Síða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
una hér að sýna þessar gersemar
sem við erum svo stolt af með nú-
tímalegum og góðum aðferðum,
enda feykilegur áhugi á fornmenn-
ingu okkar,“ bætir hann við.
„Fyrstu viðbrögð eru þannig að
við erum ekki í vafa um að fá fólk til
liðs við okkur,“ segir Sigurður um
starfsemi vinafélagsins, sem leitar
til fyrirtækja og félagasamtaka með
stærri verkefni og hefur þegar hafið
leit að styrkjum til að standa
straum að viðgerð Flateyjarbókar.
„Við erum að leggja af stað í veg-
ferð sem við vonum að beri fljótt
ávöxt og lokamarkmiðið er að ekki
verði þörf fyrir okkur lengur,“ segir
hann.
Ífljótu bragði man ég ekki eftirvel heppnaðri kvikmynd sembyggð er á tölvuleik. Allarsem ég hef séð hafa verið
heldur þunnar, verður að segjast.
Það er auðvitað augljóst hvað vakir
fyrir framleiðendum, að græða enn
frekar á því sem búið er að græða á
fyrir. Og auðvitað er það bráðsnjallt
markaðslega séð, þarf varla að hafa
fyrir því að kynna vöruna því vænt-
anlegir áhorfendur þekkja hana nú
þegar. Þannig sér maður fundinn
fyrir sér í fyrirtækinu Sony sem
framleiðir teiknimyndina Ratchet
og Clank sem byggð er á vinsælum
og samnefndum tölvuleik fyrirtæk-
isins fyrir Playstation-leikjatölvuna.
,Búum til teiknimynd upp úr Ratch-
et og Clank og búum svo til tölvu-
leik upp úr teiknimyndinni, gæti
einhver snjall markaðsmaðurinn
hafa sagt. Já, þetta er bráðsniðugt
svona markaðslega séð, tölvuleikur
– teiknimynd – tölvuleikur, en aug-
ljóslega er lítið hugmyndaflug þarna
í gangi eða listræn nýsköpun. Sem
er svo sem allt í lagi, þetta er ein af
þessum teiknimyndum sem hefur
ofan af fyrir börnum á meðan á
henni stendur og svo gleymist hún
fljótlega eftir að úr bíósal er komið.
Í stuttu máli segir í myndinni af
geimverunni Ratchet (sem lítur út
eins og einhvers konar kattardýr)
sem vinnur við það að gera við
geimflaugar. Hana dreymir um að
komast í lið alheimsvarðanna,
verndara sólkerfisins, og bjarga Sol-
ana-vetrarbrautinni frá hinni illu
veru Drek sem ætlar sér að eyða
plánetum hennar. Á fjörur Ratchet
rekur hjálpfúsa vélmennið Clank og
saman tekst þeim að hrinda á bak
aftur árás Drek. Ratchet er innlim-
aður í hóp alheimsvarðanna og
Clank fylgir með og framundan er
mikið verkefni og átök við Drek og
illa aðstoðarmenn hans.
Handritshöfundar hafa hakað í öll
klisju-boxin. Hress aðalhetja,
spaugilegur aðstoðarmaður (eða vél-
menni), ofurhetjulegar aukapersón-
ur, ægilega vondur vondi kall, bar-
dagar og grín inn á milli. Nema
hvað að útkoman er teiknimynd sem
er í besta falli í meðallagi og miklu
verri en þær sem við höfum fengið
að njóta frá Pixar-fyrirtækinu hin
síðustu ár. Allt er eitthvað svo kunn-
uglegt, engu líkara en maður hafi
séð þessa teiknimynd áður, líkt og
hún sé samsuða úr svo mörgum öðr-
um og betri. Eða er það kannski
bara tölvuleikurinn? Það gengur
mikið á og þá sérstaklega í mesta
hasarnum þegar nálgast lok mynd-
arinnar, svo mikið í raun að mörgum
gæti þótt nóg um og á ég þá við full-
orðna bíógesti.
Einn og einn brandari hittir í
mark en þeir eru örfáir. Forseti ein-
hverrar plánetunnar heitir Rólafur
Agnar og Bogi Bergmann er frétta-
þulur (leikinn af Loga Bergmann)
sem á nokkur skondin innskot.
Ratchet er heldur óspennandi sköp-
unarverk en vélmennið Clank öllu
áhugaverðara, eins konar bræð-
ingur af C3PO og Wall-E. Myndin
er ágætlega talsett af hópi þjóð-
kunnra einstaklinga, m.a. Steinda
Jr., Ara Eldjárn, Sölku Sól, Pétri
Jóhanni Sigfússyni, Andra Frey
Viðarssyni, Sögu Garðars, Sverri
Bergmann, Dóra DNA, Auðunni
Blöndal, Ólafi Darra Ólafssyni og
Loga Bergmann, og ekki við þau að
sakast þegar kemur að skemmti-
gildi myndarinnar. Reyndar voru
synir mínir, annar 4 ára og hinn 9
ára, sáttir við myndina og vildu auð-
vitað eignast tölvuleikinn hið snar-
asta, nema hvað. Fullorðnir bíógest-
ir gengu hins vegar heldur þreytu-
legir úr bíósal.
Börn eiga eflaust eftir að njóta
þessarar myndar en mér þykir
ósennilegt að fullorðnir geri það.
Félagar Ratchet og Clank hafa notið vinsælda í tölvuleikjum og nú er komin
teiknimynd um þá félaga sem er ekki eins vel heppnuð og leikirnir.
Allt heldur kunnuglegt
Smárabíó, Háskólabíó og
Laugarásbíó
Ratchet og Clank bbmnn
Leikstjórar: Jericca Cleland og Kevin
Munroe. Bandaríkin, 2016. 94 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur
Eldfuglinn eftir Stravinskíj í Hörpu
á tvennum tónleikum, í dag og á
morgun. Tónleikarnir í dag verða
haldnir í Norðurljósum og laugar-
dagstónleikarnir í Eldborg, þar sem
verkið verður flutt í sérstökum æv-
intýrabúningi fyrir börn. Daníel
Bjarnason, staðarlistamaður hljóm-
sveitarinnar, stjórnar báðum tón-
leikunum.
Tónleikarnir í dag hefjast kl. 18
og eru þeir þriðju tónleikarnir í
Föstudagsröð Sinfóníunnar. Titill
þeirra er Tímamótaárið 1910 en árin
þar í kring mörkuðu tímamót í tón-
listarsögunni og tónskáld reyndu
ótal nýjar leiðir til að nálgast listina,
eins og segir í tilkynningu. Á tón-
leikunum verður í forgrunni ballett
Stravinskíjs, Eldfuglinn, verk sem
var samið árið 1910 og markaði upp-
hafið á glæstum ferli Stravinskíjs
sem balletttónskálds. „Sama ár
samdi Anton Webern annars konar
verk þar sem gælt er við þögnina,
fjóra stutta kafla fyrir fiðlu og pí-
anó. Á meðan sat Debussy í París og
samdi prelúdíur fyrir píanó, hrífandi
tónlist þar sem gælt er við ótal lit-
brigði flygilsins,“ segir í tilkynn-
ingu.
Sif Margrét Tulinius og Anna
Guðný Guðmundsdóttir flytja verk
Weberns og Debussys en hljóm-
sveitin öll flytur
balletttónlist
Stravinskíjs und-
ir stjórn Daníels.
Á morgun kl.
14 snýr Eldfugl-
inn aftur, sem
fyrr segir, en í
verkinu segir frá
Ívani prins, sem
er hugrakkur
með eindæmum, og risastórum fugli
sem logar í alls konar rauðum og
gulum litum rétt eins og sólin sjálf
hafi tekið sér bólfestu í fjöðrum
hans. Barbara trúður segir tónleika-
gestum frá Eldfuglinum sem birtist í
öllu sínu veldi, leyndarmálum skóg-
arins o.fl. og verður myndum sem
sýna Eldfuglinn dansa og svífa á
milli greina töfratrjáa varpað á tjald
meðan á flutningi stendur. SÍ átti í
samstarfi við listkennsludeild
Listaháskóla Íslands í því að koma
Eldfuglinum í búning 21. aldarinnar
með nýju myndefni og grímugerð.
Höfundar myndefnis eru Ari H. Ya-
tes, sem gerði teikningar, Gabríel
Bachmann, sem sér um hreyfi-
myndagerð, og Diðrik Krist-
ófersson, sem sér um grímuhönnun.
Frá kl. 13 og eftir tónleika gefst tón-
leikagestum tækifæri til að búa til
Eldfuglsgrímur í Hörpuhorninu við
Eldborg.
Eldfugl fyrir börn og fullorðna
Daníel Bjarnason
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Lau 7/5 kl. 15:00 71.sýn Lau 21/5 kl. 15:00 74.sýn Sun 29/5 kl. 19:30 77.sýn
Lau 7/5 kl. 19:30 72.sýn Lau 21/5 kl. 19:30 75.sýn
Fim 12/5 kl. 19:30 73.sýn Lau 28/5 kl. 19:30 76.sýn
Sýningum lýkur í vor!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 11/5 kl. 19:30 Mið 25/5 kl. 19:30
Mið 18/5 kl. 19:30 Mið 1/6 kl. 19:30
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
Play (Stóra sviðið)
Þri 31/5 kl. 19:30
Listahátíð í Reykjavík
AUGLÝSING ÁRSINS –★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Sun 22/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00
Lau 7/5 kl. 14:00 Þri 24/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00
Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Mið 25/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00
Sun 8/5 kl. 20:00 Fim 26/5 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00
Þri 10/5 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00
Mið 11/5 kl. 20:00 Lau 28/5 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00
Fim 12/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00
Fös 13/5 kl. 20:00 Þri 31/5 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00
Lau 14/5 kl. 14:00 Mið 1/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00
Þri 17/5 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00
Mið 18/5 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00
Fim 19/5 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00
Fös 20/5 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00
Lau 21/5 kl. 14:00 Þri 7/6 kl. 20:00
Lau 21/5 kl. 20:00 Mið 8/6 kl. 20:00
Leikhúsmatseðill frá kl 18 í forsalnum, tónlist og kokteilar
Auglýsing ársins (Nýja sviðið)
Fös 6/5 kl. 20:00 Fös 13/5 kl. 20:00 Lau 21/5 kl. 20:00
Lau 7/5 kl. 20:00 Fim 19/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00
Ærslafullur og andstyggilegur gleðileikur eftir Tyrfing Tyrfingsson
Vegbúar (Litla sviðið)
Fös 6/5 kl. 20:00
Síðasta sýning
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fim 12/5 kl. 20:00 107.sýn Fös 20/5 kl. 20:00 108.sýn Lau 28/5 kl. 20:00 109.sýn
Kenneth Máni stelur senunni
Afhjúpun (Litla sviðið)
Sun 22/5 kl. 14:00
Höfundasmiðja FLH og Borgarleikhússins
Persóna (Nýja sviðið)
Sun 8/5 kl. 20:00 Fös 20/5 kl. 20:00
Fim 12/5 kl. 20:00 Sun 22/5 kl. 20:00
Tvö ný dansverk eftir þrjá danshöfunda
Hamlet litli (Litla sviðið)
Fös 6/5 kl. 10:00 Mán 9/5 kl. 10:00 Þri 10/5 kl. 10:00
Handritin heim Helge Larsen, menntamálaráðherra Dana, færði Gylfa Þ. Gíslasyni Flateyjarbók árið 1971 í Há-
skólabíói með orðunum: „Vær så god, Flatöbogen.“ Vinafélagið vill lagfæra bókina svo að hægt sé að sýna hana.