Morgunblaðið - 06.05.2016, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
Karlakórinn Fóstbræður fagnar
100 ára afmæli með afar fjölmennu
karlakóramóti sem haldið verður í
Hörpu 12.–14. maí nk. Mótið er
haldið í samvinnu við Norræna
karlakórasambandið og með
stuðningi Sambands íslenskra
karlakóra og í tengslum við 100
ára afmæli Fóstbræðra á þessu ári.
Alls hafa 23 kórar frá Íslandi, Fær-
eyjum, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi,
Danmörku og Sviss boðað komu
sína í Hörpu og einn af stórvið-
burðum mótsins verður þegar Eg-
ill Ólafsson stígur á svið með sex
karlakórum og Stórsveit Reykja-
víkur í Eldborg föstudagskvöldið
13. maí. Þá verða einnig hátíð-
artónleikarnir Þúsund kallar á
laugardeginum 14. maí en þá
munu 23 kórar syngja saman eða
samtals þúsund raddir.
„Við Fóstbræður erum afar
ánægðir að geta boðið upp á þessa
miklu tónlistarveislu í Hörpu.
Þetta er stærsta karlakóramót sem
haldið hefur verið á Íslandi. Það er
gaman að bjóða til þessarar hátíð-
ar sem er haldin í tengslum við 100
ára afmæli Fóstbræðra á þessu ári.
Kórinn er elsta samfleytt starfandi
tónlistarstofnun á Íslandi,“ segir
Arinbjörn Vilhjálmsson, formaður
Fóstbræðra, í tilkynningu.
100 Fóstbræður fagna aldarafmæli í ár og hér sjást söngmenn mynda töluna við Hörpu.
Þúsund karlar syngja saman í Hörpu
Steinunn Mart-
einsdóttir leir-
listakona færði
Hönnunarsafni
Íslands á dög-
unum veglega
gjöf, fjölda leir-
muna eftir sig
sem voru á yf-
irlitssýningu á
verkum hennar
fyrr á þessu ári.
Meðal verka sem hún gaf eru stórir
skúlptúrvasar, Jökulstef og Esju-
stef, sem hún sýndi á fyrstu einka-
sýningu sinni á Kjarvalsstöðum ár-
ið 1975. Þessi verk eru lykilverk á
ferli Steinunnar.
Færði Hönnunar-
safni veglega gjöf
Steinunn
Marteinsdóttir
Bandaríkjaforseti hefur nú heimsótt
Kúbu ásamt fjölskyldu sinni, gömlu
rokkararnir í Rolling Stones léku
fyrir þarlenda, bandarísk skemmti-
ferðaskip eru aftur farin að leggjast
við bryggju í Havana og Hollywood
er að kvikmynda Furious 8 þar í
landi – væntanlega atriðin sem ekki
voru kvikmynduð á Íslandi. Og nú
hefur tískuveldi Chanel gert vinsam-
lega innrás í Havana. Kúba er í
tísku.
Havana breyttist eitt síðdegið í
vikunni í leikmynd fyrir fjölda fyrir-
sæta sem sprönguðu um afgirt
breiðstræti í nýjustu fatalínu Cha-
nel. Fjöldi boðsgesta var viðstaddur
sýninguna sem hönnuðurinn Karl
Lagerfeld, listrænn stjórnandi Cha-
nel, fylgist með árvökulum augum;
samkvæmt fréttum var alþýðunni
síðan haldið í nokkurri fjarlægð af
hundruðum öryggisvarða en fólk
reyndi samt að koma auga á ein-
hverjar stjarnanna, sem komu víða
að. Leikkonan og fyrirsætan Tilda
Swinton mætti og eins ofurfyrir-
sætan Gisele Bundchen og leikarinn
Vin Diesel, sem er á eyjunni við upp-
tökur á fyrrnefndri hasarkvikmynd.
Þekktum heimamönnum var einnig
boðið, eins og tónlistarmanninum
Gente de Zona og söngkonunni Om-
ara Portuondo, sem hefur í seinni tíð
gert garðinn frægan víða um lönd
með Buena Vista Social Club, og þá
var Tony barnabarn Fidels Castro
viðstaddur sýninguna.
Lagerfeld sagði sýninguna hafa
verið innblásna af litríkri menningu
Kúbu. Yfirmaður tískuhússins,
Bruno Pavlovsky, sagði blaðamönn-
um að fyrirtækið hefði fyrst í stað
verið efins um þá hugmynd að kynna
fatalínuna á Kúbu en síðan hefði
komið í ljós að þarlend yfirvöld væru
afar gestrisin og hjálpsöm.
Sumir Kúbanir sem blaðamenn
ræddu við voru gagnrýnir á þessa
glamúrsýningu. Þeir bentu á að
vörur Chanel væru ekki seldar þar
og að fæstir heimamenn gætu látið
sig dreyma um að eignast þær, þar
sem lítil handtaska kostaði þúsundir
dala en meðalmánaðarlaun á eyjunni
væru um þrjú þúsund krónur.
AFP
Goðsögn Omara Portuondo, ein af stjörnum hljóm-
sveitarinnar Buena Vista Social Club, mætti.
AFP
Hönnuðurinn Þýski hönnuðurinn og ljósmyndarinn Karl Lagerfeld fylgdist uppábúinn með sýning-
unni á Chanel-flíkum sínum í Havana, umkringdur fyrirsætum, ljósmyndurum og öryggisvörðum.
AFP
Harðhausinn Vin Diesel er við tökur á Kúbu og lét sig ekki vanta.
AFP
Leikkonan Tilda Swinton fylgdist áhugasöm með sýningu Chanel.
Litrík tísku-
innrás á Kúbu
BAD NEIGHBORS 2 3:50, 6, 8, 10
CAPTAIN AMERICA 3D 6, 9
CAPTAIN AMERICA 10:25
RATCHET & CLANK 3:50 ÍSL.TAL
MAÐUR SEM HEITIR OVE 8
THE BOSS 5:55
KUNG FU PANDA 3:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 3:50
TILBOÐ KL 3:50
TILBOÐ KL 3:50
STÓRKOSTLEGT TÆKIFÆRI
Grensásvegi 14 & Álfabakka 14a s: 616 2120 mail: info@ballet.is
INNRITUN ER HAFIN Í KLASSÍSKA LISTDANSSKÓLANUM
KENNSLA HEFST 29. ÁGÚST UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING
Á HEIMASÍÐU SKÓLANS WWW.BALLET.IS