Víkurfréttir - 25.02.1999, Page 12
Vestfirðingar athugið!
Kirkjukaffi •Sólarkaffi
verður haldið
28. febrúar n.k. í Kirkjulundi
í framhaldi af messu í
Keflavíkurkirkju sem hefst kl. 14.
Vestfirðingar eru hvattir til að fjölmenna
og endilega að hafa með sér gesti.
Stjórnin
Starf við
Keflavíkurkirkju
Auglýst er til umsóknar starf
umsjónarmanns kirkju og kirkju-
garða í Keflavíkursókn.
Æskilegt er að umsækjendur
geti hafið störf fljótlega.
í starfinu felst m.a.
♦ Að hafa umsjón með daglegum
rekstri kirkju og kirkjugarða.
♦ Að sjá um skrifstofuhald
sóknarinnar.
♦ Að hafa umsjón með hirðingu
kirkjugarðanna.
Umsækjendur þurfa að hafa
reynslu af nútíma skrifstofuhaldi
og geta unnið sjálfstætt að
ýmsum verkefnum.
Umsóknum ásamt launakröfum
og meðmælum skal skila fyrir
13. mars n.k. til Jónínu Guðmunds-
dóttur, formanns sóknarnefndar
Heiðarhorni 18 eða Sævars
Reynissonar gjaldkera sóknarinnar
Heiðarbóli 55, 230 Reykjanesbæ.
Sjálfstœðishúsinu, Hólagötu 15,
Njarðvík.
Esther Helga Guðmundsdóttir,
söngkennari. Símar 561 5727,
699 2676 eða 568 7111.
Jorundur Kristinsson lækmr i
Að „krukka" í sannleikann
I Framsóknarfréttum l.tölublaði
1999 er m.a. að líta grein undir
heitinu: „Hvers vegna sprakk
meirihlutinn”, þar er m.a. fjallað
um læknamál. Þar eru menn alls
óragir við að „krukka" í sann-
leikann og minnir þetta á heldur
illa lukkaða lýtalækningaað-
gerð. Örin eru þeim sem til |
þekkja vel sýnileg. Markmiðið
virðist vera af hálfu framsókn-
armanna hér í bæ að þvo hendur
sínar af því klúðri sem þeir ern
alfarið höfundar að sjálfir varð-
andi búsetumál læknis staðar- |
ins.
Haustar snemma hjá sumum
Þar segir m.a. eftirfarandi: „I
haust þegar við vorum að ganga
ffá samningum við Jón Gunnar
vegna Víkurbrautar 40 kom j
annar bæjarfulltrúi sjálfstæðis-
manna á fund með bréf frá
lækninum... o.s.frv". Tímaskyn
virðist ekki vera hin sterka hlið
þess er greinina ritar því hið
rétta er að umtalað bréf færði ég
Jóni Hólmgeirssyni þann 7. júlí
1998 og vonaðist til að það yrði [
tekið fyrir á bæjarráðsfundi sem
var einum eða tveimur dögum
síðar. Það gekk ekki eins og að j
neðan greinir. Það haustar því
snemma hjá sumum!! Hjá mér
er hásumar í júlímánuði!!
Ekkert„Jóns Gunnarsmál"
í þessu sambandi vil ég geta
þess að mál þetta hófst mun fyrr
en framsóknarmenn kæra sig
um að muna. Eg ræddi þessi |
mál fyrst í febrúarmánuði við
Jón Gunnar Stefánsson þáver- |
andi bæjarstjóra og var hann j
strax mjög jákvæður. Eg reyndi j
að ýta á eftir málinu í gegnum
Jón Gunnar og veit fyrir vfst að
öðrum bæjarfulltrúum, þ.á.m.
framsóknarmönnum var full-
kunnugt um þetta mál á þeim
tíma en snerust strax öndverðir.
Á þeim tíma var ekkert “Jóns j
Gunnarsmál” til að skýla sér á
bakvið og er þetta því hið versta
yfirklór.
Þar segir ennfremur að menn
hafi fyrst viljað ljúka samning-
um við Jón Gunnar. Líkir hann
þar með tillögu rninni við samn-
ing þann sem Jón Gunnar gerði
fyrir mörgum ámm en er á eng-
an hátt sambærileg. Hér á eftir
fer inntak tillögu minnar orðrétt
eins og sent var Bæjarráði í um-
ræddu bréfi:
Bæjarráð Grindavíkur geri við
mig samning, hvers inntak yrði
að Grindavíkurbær gangist í
kaupábyrgð á húsi því er ég
myndi kaupa ef mér ekki tækist j
að selja það á frjálsum markaði
innan ákveðins tíma, t.d. þriggja
mánaða. Kaupverð hússins
verði markaðsverð á hverjum
tíma. Samningur þessi taki fyrst
gildi tveimur árum eftir kaup-
dag hússins og falli úr gildi 10 j
árum eftir kaupdag.
Það sér hver sem verða vill að
hér er ekki um að ræða svipað-
an samning og Jón Gunnar
Jörundur Kristinsson
læknir í Grindavík
gerði. Um er að ræða markaðs-
verð á hverjum tíma, ég setji
húsið fyrst á sölu í þrjá mánuði
og í raun er ég að skuldbinda
mig til búsetu næstu tvö árin og
samningurinn átti að fella úr
gildi eftir 10 ár, semsagt 8 ára
gildistími. Aldrei var haft fyrir
því að ræða þetta mál við mig
af hálfu framsóknarmanna.
Formaður bæjarráðs neitaði að
taka þetta erindi fyrir á ofan-
nefndum bæjarráðsfundi og var
það ekki tekið upp fyrr en
tveimur vikum síðar og þá að-
eins bókað í fundargerð að bréf
hafi borist frá undirrituðum,
engin efnisleg afstaða tekin í
málinu og ekkert rætt við mig
frekar en fyrri daginn. Þama var
málið tafið enn frekar að nauð-
synjalausu.
Fullsaddur afandstöðunni
Að framansögðu má ljóst vera
að framsóknarmenn snerust
öndverðir í máli þessu þegar í
febrúarmánuði 1998, ég geri
síðan ekki alvöru úr húsakaup-
um í Hafnarfirði fyrr en í sept-
ember og var þá búinn að fá
mig fullsaddan af andstöðu
framsóknarmanna í þessu ntáli.
Semsagt er þarna um að ræða
hálft ár sem bæjaryfirvöld
höfðu til umþóttunar í máli
þessu og er vart hægt að væna
mig um bráðræði, ég beið í hálft
ár en fékk engin svör, hvorki í
febrúarmánuði né síðar. Aldrei
hefur neinn af fulltrúum fram-
sóknarmanna haft fyrir því að
hafa samband við mig en eins
og menn vita þá er Heilsugæsl-
an í ágætu nábýli við Bæjar-
skrifstofumar. Samskipti þau
sem ég átti í máli þessu voru í
upphafi við Jón Gunnar eins og
að framan greinir og síðar við
Ólaf Guðbjartsson sem tók já-
kvætt í þetta frá fyrstu byrjun.
Ég vil þó geta þess að ég er ekki
geftnn fyrir pólitísk afskipti og
tilheyri engri stjórnmálahreyf-
ingu og aldrei gert. Ekki er þó
líklegt að framsóknargenin í
mér dafni í kjölfar þessa rnáls.
Lokatilvitnun þessa greinarhluta
ffamsóknarmanna er torskilinn í
meira lagi. Þar finnst greinarrit-
ara það slæm tilhugsun “ef þetta
er það sem koma skal til að
halda hátekjufólki í bænum.”
Málið snýst á engan hátt um há-
tekjufólk bæjarins eða mínar
tekjur, þær eru væntanlega mitt
einkamál og er þama um hrein-
an útúrsnúning að ræða. Rétt er
þó að bærinn verður af útsvars-
greiðslum mínum er ég flyt í
annað bæjarfélag. Má helst skil-
ja á greinamtara að hann búist
við að allir hálaunamenn bæjar-
ins fari að senda óskir til bæjar-
ráðs um baktryggingu varðandi
húsakaup!!!!!
Vilja ekkert leggja að mörkum
Málið snýst aftur á móti um það
að ég bý hér í bænum. leigi hús
á fullu verði á frjálsum markaði.
Ég þarf af ýmsum ástæðum að
komast í annað húsnæði og í
ekkert slíkt er að venda. Leigu-
markaður hér er þröngur. Bæj-
aryfirvöld hafa með aðgerðar-
leysi sínu og andstöðu sýnt
áhugaleysi sitt í verki og vilja
greinilega ekkert leggja af
mörkunt til að stuðla að búsetu
læknis hér. Mönnum frnnst þó
greinilega mikilvægt að hafa
aðgang að lækni eftir kl 17 á
daginn í neyðartilvikum en það
má greinilega engu til kosta. Er
mér til efs að læknar muni í
ffamtíðinni flykkjast til bæjarins
til húsakaupa.
7ilað þóknast bæjaryfirvöldum
Ég er eins og aðrir launamenn
launalaus þegar vinnudegi er
lokið, bý í húsnæði sem ég
kosta alfarið sjálfur eins og áður
segir get væntanlega ráðstafað
mér að vild utan vinnutíma.
Vissulega ber bæjaryftrvöldum
engin skylda til að gera neina
samninga við lækni bæjarins en
ef þeir vilja tryggja búsetu
Iæknis verður að koma til móts
við hann á einhvern hátt. Af
hverju skyldi læknir sá er hér
vinnur búsetja sig hér? Það
eina sem hann uppsker er ónæði
utan vinnutíma. Reyndar er ég
fylgjandi því að í Grindavík búi
læknir, ég er bara ekki reiðubú-
inn að leggja út í áhættusama og
stóra einkafjárfestingu hér til að
þóknast bæjaryfirvöldum. Verst
er þó að bæjarbúar verða í máli
þessu fyrir barðinu á skamm-
sýni bæjaryfirvalda og er það
miður. Allt frá því ég hóf störf
hér hefur mér og minni fjöl-
skyldu verið vel tekið og okkur
hefur liðið vel hér þann tíma
sem við höfum búið í bænum.
Húsakaup án baktryggingar?
Ein spuming að lokum: Ætlast
framsóknaimenn í Grindavík til
að læknir sá er starfar í bænum
kaupi hér hús án nokkurrar bak-
tryggingar til að vera til taks
þegar þeim þóknast utan síns
vinnutíma ?? Ef það er raunin
þá er skammsýni þeirra meiri en
mig hafði órað fyrir!!!
Jörundur Kristinsson
læknir, Grindavík
(Millifvrirsagnir eru blaðsins)
12
Víkurfréttir