Víkurfréttir - 25.02.1999, Side 15
Fleiri stundi karate í Reykjanesbæ!
Karatekrakkar úr Karatedeild Kefla-
víkur tóku þátt í íslandsmeistannóti
bama og unglinga.
Aðalfundur Karatedeildar Keflavíkur
var haldinn 26. janúar s.l. og ný stjóm
kjörin. Fonnaður er Sigríður Pálsdótt-
ir, varaformaður Þórarinn Ingi Inga-
son og gjaldkeri Bryndís Sveinsdóttir,
meðstjórnendur Óíöf Elíasdóttir og
Amar Skjaldarson.
Karatedeildin hefur aðstöðu í Sund-
kjallaranum og gerir nú gangskör í að
fá tleiri iðkendur. I boði em sérstakir
byrjendatímar og svokallaðir prufu-
tímar þar sem fólki á öllum aldri gefst
kostur á að koma í einn tíma endur-
gjaldslaust til prufu. Byrjendatímar
eru í þriðjudögum og fimmtudögum
kl. 18.30-19.30 fyrir byrjendur 12 ára
og yngri og á þriðjudögum og
fimmtudögum kl.21.30-22.30 fyrir
byrjendur 13 ára og eldri.
Þann 7. febrúar s.l. liélt Karatesam-
band Islands Islandsmeistaramót
barna og unglinga í íþróttahúsi
Breiðabliks í Kópavogi og voru átta
þátttakendur frá Karatedeild Keflavík-
ur en keppendur vom 240 alls. Hinrik
Albertsson frá Keflavík komst í úrslit
í sínum aldursflokki.
Myndin: Aftari röð frá vinstri: Sigurð-
ur Snær, Ragnheiður, Gunnar Berg.
Fremri röð frá vinstri: Bjöm Snævar,
Amór, Birkir, Hinrik og Almar Dagur.
Með þeim á myndinni er liðsstjóri
þeirra Ame Ameson.
Kúttmaga og sjávar-
réttakvöld Víðis
Kúttmaga og sjávarréttakvöld
verður haldið í Samkomu-
húsinu Garði, laugardaginn 6.
mars. Góð skemmtiatriði og
glæsilegt happdrætti. Hljóm-
sveitin Sveitó leikur fyrir
dansi. Aldurstakmark er 20 ár.
Unglingaráð Víðis Garði.
Nýburar
Það er búið að vera annríki á
fæðingardeild Heilbrigðis-
stofnunar Suðumesja undan-
fama daga. Víkurfréttir hafa í
samráði við fæðingardeildina
ákveðið að birta reglulega
nöfn þeirra foreldra sem eign-
ast böm á deildinni í Kefla-
vík. Þeim foreldmm á Suður-
nesjum sem fæðast böm ann-
ars staðar en á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja er vel-
komið að senda blaðinu upp-
lýsingar til birtingar í þessum
dálki.
Brynju Sigurðardóttir og
Jeremy Charles Wing fædd-
ist stúlka 17. febrúar sl. Hún
var 3630 gr. og 52 sm.
Jónu Þórðardóttur og Hall-
dóri K. Guðmundssyni
fæddist drengur 18. febrúar sl.
Hann var 4180 gr. og 54 sm.
Margréti Valdimarsdóttur
og Ara Leo Sigurðssyni
fæddist stúlka 19. febrúar sl.
Hún var 3285 gr. og 50 sm.
Ásdísi Pálmadóttur og Páli
Ketilssyni fæddist drengur
22.feb. sl. Hann var 3550 gr.
og 51 sm.
Maríu Ólöfu Sigurðardótt-
ur og Jack Kristni Simpson
fæddist drengur 23. feb. sl.
Hann var 3660 gr. og 51 sm.
Guðrúnu Ólafsdóttur Bovd
og Magnúsi Ástþóri Ragn-
arssvni fæddist drengur 23.
feb. sl. Hann var 2800 gr. og
51 sm.
Lindu Helgadóttur og Sig-
mari Scheving fæddist
drengur 23. feb. sl. Hann var
4000 gr. og 56 sm.
Adalfundur
Adalfundur Bæjarmálafélags
jafnaðar og félagshyggjufólks í
Reykjanesbæ verður haldinn
mánudaginn 1. mars 1999 kl. 20.30 í
sal VSFK að Hafnargötu 80,
Reykjanesbæ.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar
í Reykjaneskjördæmi mæta
á fundinn.
Félagsmenn!
Fjölmennið á fundinn og
takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Utboð
Húsfélagið Sambýli óskar eftir
tilboðum í verkið „Sólvallagata 38-
40 og Faxabraut 25-27, - endurnýjun
og viðgerðir utanhúss".
Verkið felst í því að skipta um hluta
afgluggum í húsinu og glerja,
háþrýstiþvo alla veggi utanhúss,
laga múr og steypuskemmdir, steina
veggi og mála. Einnig skal byggja
nýjar svalir og stiga út í garð.
Verkinu skal að fullu lokið
eigi síðar en 1. ágúst 1999.
Utboðsgögn verða seld á
Verkfræðistofu Suðurnesja ehf.
Hafnargötu 58, 230 Keflavík, á
kr. 2000.- frá og með mánu-
deginum 15. febrúar Tilboð verða
opnuð á sama stað þriðjudaginn
9. mars 1999, kl. 11.
Stjórn félagsins
Reykjanesbær
Atvinna í boði
Sjúkraliðar athugið
Dagdvöl aldraðra auglýsir eftir
Sjúkraliða eða starfsmanni með
reynslu við ummönnun. Um er að
ræða fullt starf. Laun eru skv.
kjarasamningi S.L.F.I./S.T.R.B. og
Reykjanesbæjar. Umsóknarfrestur er
til 22. mars n.k. og berist starfs-
mannastjóra Tjarnargötu 12,
230 Keflavík, Reykjanesbæ.
Nánari upplýsingar veitir forstöðu-
maður í síma 421 4669.
Starfsmannastjóri
Atvinna
Starfsfólk óskast til starfa
við fiskvinnslu.
Upplýsingar í símum
423 7375 og 898 9237
Sjávargull ehf. Sandgerði.
A tvinna
AVIS bílaleiguna vantar starfs-
mann á Keflavíkurflugvelli. Um
sumarstarf er að ræða ásamt
íhlaupum fram að sumri.
Við leitum að hressu og þjónustu-
lipru fólki. Yngri en 20 ára
koma ekki til greina.
Viðkomandi þarf að hafa bílpróf
og einhverja tölvukunnáttu.
Vinsamlega hafið samband
ísíma 562 4433
Víkurfréttir
15