Víkurfréttir - 30.03.1999, Page 6
1ÍHI|fii!Wif!iWSflM i
í síðustu viku tók (íylli (iuðmundsson, cigundi bíla-
partasölu Kctlavíkur, sig til og lét pakka sainan S7 bíl-
uin og tlytja á brott. Ljósmyndari VF var á staðnum og
sá kaggana krumpaða, hvcrn á fætur öðrum í færan-
lejyri efnispressu Hringrásar sem getur þess vegna
breytt bifreiðunum í hcimilisbrauð, niðurskorið.
VF-tölvumyndir: jak
Lægsta hlutfall opin-
berra starfsmanna
Suðurnesjamenn bafa
löngum grátið og
kvartað undan van-
hirðu ríkisvaldsins,
skertum hlut á öllum svið-
um í opinbera geiranum, og
fengið svör eins „Þið hafið
nú völlinn" eða „Hvaða vit-
leysa og minnimáttarkennd
er það eiginlcga sem hrjáir
ykkur.“ Þann 1. febrúar sl.
sendi Byggðastofnun frá sér
skýrslu sem sýnir glögglega
skertan lilut Reykjanesum-
dæmis í fjölda opinberra
starfsmanna og ríkisút-
gjöldum umdæminu til
handa. Skv. skýrslunni þá
voru 39,8 opinberir starfs-
menn á hverja 1000 íbúa
svæðisins 1997. Næstneðstir
voru Vestfirðingar með 59,9
en Reykvíkingar langefstir
með litla 139,7 starfsmenn á
hverja 1000 íbúa. Skipting
útgjalda 1997 er ekki fal-
legri lesning fyrir Reykja-
neskjördæmi en í flestum
kjördæmum var jafnvægi
milli útgjaldaprósentu og
íbúaprósentu. Undantekn-
ingarnar voru Reykjavíkur-
kjördæmi, 52,1% útgjalda
og 39,2% íbúa, og Reykja-
neskjördæmi með 14,4%
útgjalda og 27,0% íbúa.
Ofan á þetta sýnir skýrslan
að 1997 fóru 83% af opin-
berum styrkveitingum til
aðila með póstfang í
Reykjavík og 5,7% til
Reykjaneskjördæmis.
Orðrétt segir f skýrslunni „At-
hygli vekur hversu hlutur
Reykjaneskjördæmis er rýr
bæði hvað varðar hlutfall af
stöðugildunt og hlutfall af út-
gjöldum samanborið við hlut-
fall af íbúatölu.
í bókun á fundi Markaðs- og
atvinnumálaráðs Reykjanes-
bæjar segir „Að mati Mark-
aðs- og atvinnuráðs Reykja-
nesbæjar virðist hin raunveru-
lega byggðastefna konta
þama í Ijós. Fjárstreyrmð ligg-
ur til Reykjavíkur, þar skal
mennta fólkið og stuðla að
ýsköpun í hátækni- og
menntageiranum. Er hægt að
skilja þessa úttekt Byggða-
stofnunar öðmvísi" en síðar í
bókuninni óskar MOA þess
að þingmenn og bæjarstjóm-
armenn kjördæmisins leiti
leiða til að ná fram leiðrétt-
ingu á stöðu Reykjaneskjör-
dæmis f jæssum efnum.
Allt sem þarf
um páskana!
Ráðist á stúku-
fyrirliðann
Fjölmargir stuðningsmenn
Isfirðinga mættu í íþrótta-
húsið í Njarðvík sl. sunnu-
dag til að styðja sýna menn
gegn Islandsmeisturunum
og virtist duga framan af. Er
syrti í álinn og Njarðvíking-
um óx ásmeginn tóku tveir
ísfirskir sig til og hugðust
slá á stuðningsóp Njarðvík-
inga með því að setja Erling
Hannesson, sjálfskipaðan
stúkufyrirliða og stemmn-
ingsstjóra, úr leik. „Þetta
voru tveir Isfirðingar sem
voru ósáttir við að ég væri
ná upp stemmningunni með
gjallarhominu og ætluðu að
ná af ntér hominu. Þetta var
á sama tíma og Njarðvík-
ingar vom að snúa leiknum
sér í hag og þeir eflaust ekki
ánægðir með þróun rnála.
Þetta voru ölvaðir strákar
sem vissu ekki hvað þeir
vom að gera“ sagði Erling-
ur aðspurður um atvik.
NVJ/lClC)
KEFLAVÍK - SÍMI 421 1170
FYRIR 990
FRÍPUNKTA
FERÐ ÞÚÍBÍÓ!
NVJ/U5!
KEFLAVÍK - SÍMI 421 1170
Patch Adams
Fimmtudag (skírdag)
kl. 5 og 9
Laugardag kl. 5 og 9
Mánudag (annan í páskum)
kl.Bogg
Þridjudag kl. 9
Miðvikudag kl. 9
Babe
Fimmtudag (skírdag) kl. 3
Laugardag kl.3
Mánudag(annaní páskum) t
kl.3
Payback
miðvikudag kl. 9 og 11.19
Fimmtudag (skírdag) kl. 7 og 11.10
Laugardag kl. 7 og 11.10
Mánudag (annan í páskum) kl. 7 og 11.10
MMwéam
Lokað föstudaginn langa og Páskadag
Gleðilega páska
Hónori upplýtingor í u'mivoro um dojikró i nœitu viku 421-1170
Víkurfréttir