Víkurfréttir - 30.03.1999, Blaðsíða 12
Fjölnota íþróttahús
Síðastliðin fjögur ár hefur
meirihluti bæjarstjómar unnið
að því að leita leiða til þess að
byggja glæsilegt fjölnota
íþróttahús í Reykjanesbæ.
Það var gert að beiðni íþrótta-
hreyfingarinnar. Norðmenn
hafa byggt hús af þessu tagi
undanfarin ár og hefur það
orðið til þess að árangur þeirra
í knattspyrnu verið á heims-
mælikvarða. Einnig er meiri-
liluti bæjarstjómar sér meðvit-
aður um að nauðsynlegt er að
bjóða unga fólkinu okkar
góða aðstöðu til íþrótta-
iðkanna, svo það vilji búa í
þessu bæjarfélagi í framtfð-
inni. Öflugt íþróttastarf er
besta fornvarnarstarf gegn
hvers konar óreglu og eitur-
lytjum, sem völ er á.
Allargeinar
Fjölnota íþróttahús er til fyrir
allar íþróttagreinar og ekki
sfður frjálsar íþróttir en boltaí-
þróttir. Einnig er hægt að
halda þar stærri menningar-
viðburði og sýningar innan
dyra. Með byggingu hússins
flyst allur fótbolti úr öðrum
íþróttarhúsum bæjarins og
rýmkar þannig fyrir öðrum
íþróttagreinum, svo sem fím-
leikum, körfubolta og ýmsu
fleiru. Þetta er nóg um ágæti
fjölnota íþróttahússins, en það
ntun svo sanna sig sjálft í
framtíðinni.
Samningur við Verkafl hf. um
byggingu og leigu bæjarfé-
lagsins á þessu húsi var undir-
ritaður þann 14 mars sl..
Húsið kostar fullbúið 371
milljón króna og þar af er
virðisaukaskattur um 70 millj-
ónir króna, sem ríkið fær. Við
munum borga 27 milljónir
króna leigugjald á ári í 35 ár.
Leiguréttur er í 15 ár til við-
bótar eftir þessi 35 ár. Þá yrði
að semja að nýju um leiguna
og að sjálfsögðu á mjög lágu
verði. Reykjanesbær getur þó
keypt húsið livenær sem er á
leigutímanum. Verkafl hf. sér
um viðhald að utan fyrstu 5
árin.
20 ár
Fyrir 20 árum hófst umræða
innan íþróttahreyfingarinnar
um að byggja hús af þessari
gerð. Nú er rétti tíminn til
þess að ráðast í þessa fram-
kvæmd, ef við hefðum ekki
notað tækifærið sé ég ekki að
þessi bygging rísi næstu 20
árin. Eg er ntjög ánægður
með þennan samning og tel
að bærinn fái húsið ódýrara,
þar sem þetta er fyrsta húsið á
Islandi af þessari gerð, sem
samið er um. Verkafl hf. ætl-
ar sér stóra hluti á íslenska
byggingantarkaðnum í fram-
tíðinni. Þess vegna var þeim í
mun að vanda allan undirbún-
ing að hönnun og útliti þessa
húss, að það fullnægði vænt-
ingunt iðkenda iþrótta, áhorf-
enda og starfsmanna. Jafn-
framt að útlit byggingarinnar
muni falla vel að umhverfi
sínu og að hún sé viðhaldslítil,
bæði utan og innan og að
rekstur sé hagkvæmur. Húsið
verður auglýsing fyrir Verkafl
hf. í framtíðinni.
A móti
Minni hlutinn hefur barist á
öllum stigum þessa máls gegn
því að þetta hús yrði byggt.
Þeir hafa komið fram í fjöl-
miðlunt og lýst því yfir að
meirihlutinn í bæjarstjóm sé
að brjóta lög með þessari
byggingu. Þeir hafa gengið
svo langt að hóta að kæra
okkur til Eftirlitsstofnunarinn-
ar EFTA í Brussel! Einnig
segja þeir að við munum setja
bæjarfélagið á hausinn vegna
þessarar og annarra fram-
kvæmda og bæjarfélagið lendi
í gjörgæslu hjá félagsmála-
ráðuneytinu. Minni hlutinn
bendir á að hægt sé að setja
gervigras á malarvöllinn. Það
er framkvæmd upp á 120
milljónir króna og er gömul
hugmynd, sem hentar ekki í
dag.
Tveir hamborgarar
A næsta ári þegar húsið verð-
ur tekið í notkun þarf bærinn
að borga áðurnefndar 27
milljónir króna. Eignarhalds-
félag Brunabótafélagsins mun
borga sem nemur 13 til 16
milljónum króna í arð til bæj-
arfélagsins árlega. Á síðasta
ári var Olíusamlagi Keflavík-
ur breytt í hlutafélag og fékk
bærinn í sinn hlut að nafn-
verði 8,5 milljónir króna, sem
metið er í dag nálægt 67 millj-
ónum króna. Af Jressari eign
mun bærinn fær greiddar 800
til 900 þúsund krónur í arð á
næsta ári. Báðir þessir tekju-
liðir verða nýir tekjuliðir lyrir
bæinn og á að nota þessa pen-
inga í umrætt íþróttahús. Þá
vantar 10 til II milljónir
króna. fbúar í Reykjanesbæ
em 10500 og mun bærinn því
borga úr rekstri, sem nemur
1000 krónum á livern íbúa.
Það er jafnvirði um það bil
tveggja tvöfaldra hamborgara
með frönskum og kók.
Ágætu bæjarbúar finnst ykkur
að meirihlutinn sé að fara með
bæinn í gjaldþrot vegna þess-
arar byggingar? Þrátt fyrir
þessa framkvæmd verður far-
ið í að laga aðstöðu fyrir fím-
leika og síðan verður farið að
undirbúa byggingu innisund-
laugar og félagsaðstöðu fyrir
íþróttafólk.
Bjartsýni
í drögum að nýjum raforku-
lögum sem kynnt hafa verið
af iðnaðarráðuneytinu er gert
ráð fyrir að öll orkufyrirtæki
verði gerð að hlutafélögum.
Stjóm hitaveitunnar lét Kaup-
þing hf. vinna mat á verðgildi
Hitaveitu Suðumesja nýlega.
Samkæmt þessu mati er verð-
gildi fyrirtækisins rúmlega 8
milljarðar króna. Eignarhlutur
Reykjanesbæjar f fyrirtækinu
er 52,2 % eða um 4,2 millj-
arðar króna. Þessi eign okkar
er ekki talin með í bæjarreikn-
ingunum. Eg er mjög bjart-
sýnn varðandi framtíð
Reykjanesbæjar með tilliti til
allra þeirra valkosta, sem við
eigum og er ekki tilbúinn til
að hlusta á úrtölur og svart-
sýnisspár minnihlutans. Eg
vona að bæjarbúar séu sama
sinnis og verði áfram jafn
glaðir og hressir og þeir hafa
verið. Reykjanesbær er í
sókn.
Þorsteinn Erlingsson
Bœjarfulltriii á D- lista,
lista Sjálfstœðisflokksins.
FJÖLTYNGI ER
FJÖLKYNNGI!
Á málasviði Fjölbrautaskóla
Suðurnesja eru kennd sex
tungumál: Danska, enska,
franska, íslenska, spænska og
þýska. Öllum nemendum
skólans er skylt að taka
kjarnaáfanga í dönsku, ensku
og íslensku en önnur tungu-
mál eru valfrjáls. Islenskan
situr að sjálfsögðu í öndvegi.
Nemendur þurfa að kljást við
ástkært, ylhýrt móðurmálið á
margvíslegan hátt. Enginn út-
skrifast án jtess að hafa fengið
nokkra fræðslu í hljóðfræði,
málfræði, stafsetningu og ís-
lenskum bókmenntum frá
upphafi til vorra daga. Sögur
em lesnar og Ijóð krufin. Allir
nemendur skólans verða að
taka a.m.k. fimmtán einingar í
íslensku og þeir sem fara á
málabraut átján einingar.
Danska og enska eru einnig
skyldufög á öllum námsbraut-
um skólans. Nemendur á
málabraut verða að ljúka
a.m.k. átta einingum í dönsku
og átján einingum í ensku.
Nemendur geta síðan valið að
leggja stund á frönsku, spæn-
sku eða þsku. Unnt er að velja
eitt þessara þriggja mála sem
þriðja erlenda málið og svo
annað sem það fjórða. Sumir
nemendur kjósa að læra öll
tungumálin. Á málabraut er
skylda að ljúka a.m.k. átján
einingum í þriðja máli og tólf
einingum í fjórða máli.
Stundum hefur verið boðið
uppá kennslu í latínu en þar
sem hún er ekki skyldugrein á
málabraut hefur reynst nokk-
uð örðugt að laða nemendur
að faginu. Nemendur sem
hyggja á áframhaldandi mála-
nám, t.d. á háskólastigi, ættu
endilega að velja sér, þó ekki
væri nema einn áfanga í lat-
ínu. Hún gefur góða hug-
mynd um málfræðikerfi og
orðaforða annarra tungumála,
ekki síst rómönsku málanna,
s.s. frönsku og spænsku.
Markmið með kennslu
tungumála er auðvitað afar
margþætt. Á málabraut er til-
gangurinn að nemendur fái
góða undirstöðu fyrir æðra
nám. Almennt er stefnt að þvf
að nemendur geti skilið talað
mál og ritaðan texta og að
tjáning þeirra, bæði munnleg
og skrifleg, eflist á námstím-
anum. Einnig opnar tungu-
málanámið sýn inn í menn-
ingarheim og þjóðlíf viðkom-
FS INJ E rs/l Av R
I LJÓÐUM
Laugardaginn, 20 mars, fór fram keppni í flutningi ljóða á
ffönsku á sal Menntaskólans við Hamrahlíð. Keppnin er orðin
áiviss viðburður og standa félag frönskukennara og menningar-
máladeild franska sendiráðsins að henni.
Að |iessu sinni voru keppendur 24 frá framhaldsskólum um land
allt. Fjölbrautaskóli Suðumesja sendi tvo keppendur þær Ásdísi
Jóhannesdóttur og Guðrúnu Slefánsdóttur og var frammistaða
jreirra skólanum til mikils sóma.
Ásdís var í hópi átta nemenda sem best jxáttu hafa staðið sig í
framsögn og leikrænni tjáningu við flutning Ijóðanna og fékk að
launum fransk-íslenska orðabók. Sigurvegaramir voru tveir úr
þessum átta manna liópi og fengu í verðlaun þriggja vikna ferð
til Frakklands í sumar. Allir |rátttakendur voru leystir út með
bókagjöfum. Svo skemmtilega vildi til að 20 mars var einmitt
alþjóðadagur franskrar tungu. La vie est belle!
andi lands.
Tungumálakennarar við FS
eru öflugur og áhugasamur
hópur sem leggur sig fram um
að ná settum markmiðum
með stöðugt fjölbreyttari
kennsluaðferðum. Allir eru
þeir sér sterklega meðvitaðir
um mikilvægi tungumála-
námsins. Við upphaf nýrrar
aldar hefur heimurinn skropp-
ið saman, atvinnutækifærin
leynast í öllum heimshomum,
margmiðlun og fjarskipti hafa
fært tungumálaflóruna heim í
stofu. Okkur er nauðsynlegt
að kunna tungumál ef við vilj-
um ftnna okkur ból í landslagi
21. aldarinnar.
12
Víkurfréttir