Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 30.03.1999, Page 8

Víkurfréttir - 30.03.1999, Page 8
Jóhann Guðmundsson, okkar niaður hjá Watford í enska boltanum, var í bvrj- unarliðinu í 0-0 jafntefli gegn Bury uni síðustu helgi. Staðarblaðið Watford Observer valdi Jóhann besta leikmann leiks- ins og sagði spretti hans inn á teiginn mest spennandi augnablik leiksins. Þá var Jó- hann aðalviðfangsefni glæsilegrar leikskrár Watford um leikinn, viðtal \ ið kappann og veggmvnd. Samkvæmt viðtaiinu segist strákur mundu syngja I'm still standing eftir Elton John í kareoke, klæðast eins og Elvis á furðufataball og helst vilja vera Steve Bono í U2 í einn dag ætti hann þess kost. Eins og þetta hafi ekki verið nóg segist hann hafa skemmt sér best á ævinni eftir bikarsigur Keflvíkinga og velur 4 leikmenn Manchester United í heimslið sitt. Að lokum kemur fram að Jói er Bergkamp klóni, loft- og flughræddur, og telur það sitt mesta afrek að hafa stigið upp í flugvél. Viðtal enskra við Jóhann Guðmundsson: Ef þú hefði 50 pund í vasan- um til hvers myndir þú nota þau? „Eg myndi kaupa geisladiska og myndbönd." Ef þú yrðir strandaglópur á eyðieyju, hvað þrennt mynd- irðu vilja liafa með þér? „Kærustuna, gemsann og fót- bolta.“ Ef þú mætti vera einhver annar í einn dag, hver vrði fvrir valinu? „Eg myndi vilja vera Bono í U2 og sjá íivemig það er að vera rokkstjama." Ef þú gætir breytt einum lilut varðandi sjálfan þig, hverju myndir þú breyta? „Sjálfstraustinu, ég vildi að ég hefði meira sjálfstraust." Hvaða reglu í fútboltanum myndir þú brevta ef þú ættir þess kost? „Engu, ég myndi ekki vilja breyta leiknum." Hvað er það furðulegasta sem áhangendur liafa beðið þig um að gera? , J2inu sinni var ég beðinn um að skrifa eiginhandaráritun á mynd af Ronny Rosenthal.“ Hvað er það fyndnasta sem þú iiefur upplifað í fótbolta- leik? , J>egar varaliðið lék gegn Read- ing um dagana sparkaði Pat Bonner, markvörður þeirra, sendingu í eigið mark.“ Hvort kanntu betur við karrý eða kínverskan mat og hver er uppáhaldsniaturinn þinn? „Kínverskur er betri en uppá- haldsmaturinn er andarréttur." Hvað er mesta áhætta sem þú hefur tekið? „Að stíga um borð f flugvél." Hvert er skemmtilegustn kvöld sem þú hefur upplifað? „Kvöldið þegar ég vann bikar- inn heima á Islandi með Kefla- vík sem hafði ekki unnið titil í 22 ár.“ Hvað er besta gjöf sem þú liefur fengið? „Þegar ég keypti sjálfum mér Playstation tölvu um jólin.“ Hver er fallegasta konan í sjónvarpinu og kvikmyndun- um? „Denise Richards sem lék í Wild Tliings og Starship Troopers." ll\er er besti knattspyrnu- leikur sem þú hefur tekið þátt í? „Fyrsti leikurinn með Watford, 2-1 sigurgegn Bolton." Hver er besti knattspyrnu- leikur sem þú hefur horft á? „3-3 jafnteflisleikur Barcelona og Manchester United í Meist- arakeppninni." Ef útnefna ætti leiknienn Watford til eftirfarandi verð- launa, versti dansarinn og verst klækkur, hverja myndir þú velja? „Segi ekkert um það, ég vil ekki fá alla á móti mér.“ Ef þú gætir snúið aftur klukk- unni, liverju myndir þú brey- ta af fútboltaferlinum? „Eg hefði viljað koma fyrr til Englands." Hverjir eru bestu og verstu þulirnir i boltanum? „Mér finnst Andy Gray góður og þekki ekki til neinna slæm- ra.“ Hvað mvndir þú syngja á kareokekvöldi? „I'm still standing með Elton John.“ Verslar þú inn, eldar og þrí- fur? Vertu heiðarlegur. „Eg verð.“ Hvað hræðir þig? „Ég er lofthræddur." Hvort vildir þú lieldur, skora sigurmarkið í Heimsmeistara- keppninni eða vinna aðal- vinninginn í lotteríinu? „Skora sigumiarkið í úrslita- leiknum, 1-0 Island gegn Englandi." Hvernig myndir þú fara klæddur í furðufatapartý? „Sem Elvis Presley." Hvert væri óskastarfið ef þú værir ekki í knattspvrnunni? „Rokkstjama." llvaða ráð myndir þú gefa ungum knattspyrnumönn- um? ,Æfa, æfa, æfa.“ 8 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.