Víkurfréttir - 08.04.1999, Side 9
r
Voptonleikar
Kvennakórs
Suðupnesja
Nú fara að hefjast vortónleikar hjá
kvennakór Suðumesja. Kórinn mun
að þessu sinni halda fema tónleika, 12.
og 14. apríl í Ytri-Njarðvíkurkirkju,
20.apríl í Neskirkju, Reykjavík og 25. apríl í
Hafnarborg, Hafnarfirði. Stjómandi kórsins
er Agota Joó og er þetta þriðja ár hennar með
kórinn. Píanóundirleik annast Vilberg
Viggóson. Annar hljóðfæraleikur er í hönd-
um þeirra, Þórólfs Þórssonar á bassa, Baldurs
I____________________________________________
Jósefssonar á trommur, Ásgeirs Gunnars-
sonar á hamioníku, Erlu Brynjarsdóttur á
fiðlu og Birnu Rúnarsdóttur á þverflautu.
Einsöng flytja þær Birna Rúnarsdóttir,
Guðrún Egilsdóttir, Laufey H. Geirsdóttir og
Sigrún O. Ingadóttir. Efnisskráin er fjölbreytt
og vönduð og eru Suðumesjabúar hvattir til
að koma og eiga ánægjulega kvöldstund með
kómum. Allir tónleikamir hefjast kl. 20:30.
Stórfellt innbrot í Njarðvík:_
Fjörheimar rændir
Aðfaramótt þriðjudags-
ins 30. mars sl. var
brotist inn í félagsmið-
stöð unglinga í Njarð-
vík, Fjörheima, og greipar
látnar sópa um verðmæta inn-
anstokksmuni. Peningakassi
með u.þ.b. bil kr. 60 þús. var
tekinn, 200 geisladiskar, tal-
stöðvar, heymartól.Play-
Station leikjatölva og leikir.
Að sögn Berglindar Bjarna-
dóttur, forstöðumanns, hefur
tjónið talsverð áhrif á starf-
semina. „Fjörheimar misstu
þarna allt sitt tónlistasafn að
verðmæti yfir 400 þúsund
krónur. Við vorum heppin að
því leiti að skemmdir voru
ekki unnar á innanstokksmun-
um og tölvu og hljómlista-
tækjum varekki stolið. Ymis-
legt bendir til að innbrotsaðil-
amir hafi þekkt til innandyra
því gengið var að lyklum á
vísum stað og myndaalbúm
skoðuð. Lögreglan í Keflavík
fann peningakassann, nokkrar
ávísanir og talstöðvarnar á
Fitjarbraut í Njarðvík og hefur
málið til rannsóknar."
Fá ekki að halda hunda!
Heilbrigðiseftirlit Suðumesja hefúr í nógu að
snúast þessa dagana við það eitt að svipta
hundaeigendur leyfum sínum. í tímarita Vík-
urfrétta var þess getið að þingmaður svæðisins
hafi verið svipt leyfi og á sama tíma voru þrír
aðrir sviptir leyfinu. Nú heldur hreinsunin
áfram og í marsmánuði einum hafa vom aðilar
sviptir, svo að það virðist vera einhver hundur
í Heilbrigðiseftirlitinu jressa dagana.
Gunnap Þóp aðstoðap-
skólastjópi Heiðapskóla
Sex umsækjendur voru um
stöðu aðstoðarskólastjóra
við hinn nýja Heiðarskóla
sem tekur til starfa á haust-
mánuðum og voru þetta
þau Björn Víkingur Skúla-
son, Guðrún Sigríður Jó-
hannesdóttir, Gunnar Þór
Jónsson, Kristbjörn Al-
bertsson, Svavar Bragi
Jónsson og Valgarður Lvng-
dal Jónsson. Samþykkt var
að ráða Gunnar Þór Jóns-
son og niun hann hefja störf
þann 1. júlí 1999.
I------------------------------------1
| Margip vilja í MOA |
Eftirtaldir aðilar sóttu um stóðu framkvæmdastjóra |
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu: Skúli |
Thoroddsen, Guðbjörn Helgi Ásbjörnsson, Maríus |
Sævar Pétursson, Snjólaug Einarsdóttir, Björn I
I Baldursson og Magnús B. Jóhannesson úr Revkjanes- I
I bæ, Ólafur Kjartansson úr Reykjavík, Bolli R. Valgarðs-
J son og Sighvatur Blöndal úr Kópavogi, Jakob Þór Har-
. aldsson og Erlingur Arnarsson af Seltjarnarnesi, Örn .
I Þórðarson frá Egilsstöðum og Hallur Magnússon, Dan- |
I mörku. I
I____________________________________I
Smáfréttir úr bæjarstjórn:
Á fundum Skipulags- og byggingarnefndar hefur forntaður-
inn, Árni Ingi Stefánsson, nú tvívegis vikið af funduni sök-
unt vanhælis og er það að mati minnihlutans tii eftirbrevtni,
því þeir sökuðu hann um vanhæfi í afgreiðslu nefndarinnar
unt fjölnota íþróttahúss á dögunum.
Af sömu nefnd er það að frétta, að nýlega lágu fyrir henni
tvö erindi sem bera þau skemmtilegu nöfn, Andlit að ofan
og Andlit að neðan. Hið fvrra greinir frá hugmynda- og
deiliskipulagssamkeppni efri bvggðar en hið síðara frá
kynningarfundi sem var haldinn í síðasta mánuði og kynnt-
ar voru hugntyndir að deiliskipulagi gamla miðbæjarins,
hluta Hafnargötu ásaint svæðinu tii sjávar.
Brunavarnir
Sudurnesja
Sumarafleysingar
Slökkvilid Brunavarna Suðurnesja auglýsir lausar
stödur yfir sumarorlofs-tímabilid 15. maí til
30. september 1999 vegna sumarafleysinga í fastalidi
slökkviliðsins. Umsækjendur skulu uppfylla eftirfarandi
skilyrði reglugerðar um menntun,
réttindi og skyldur slökkviliðsmanna:
1. Vera á aldrinum 20-28 ára, reglusamir og háttvísir.
2. Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heil-
brigði, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskyjun og vera
ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
3. Hafa aukin réttindi til að stjórna
a) vörubifreið og b) leigubifreið.
4. Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna
eða sambærilega menntun og reynslu.
Umsækjendur skulu að auki ofangreindra skilyrða
leggja fram sakavottorð
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf
mánudaginn 10. maí n.k.
Umsóknareyðublöð ásamt nánari upplýsingum
fást á varðstofu slökkviliðsins og hjá
Slökkviliðsstjóra í síma 421-4799
Umsóknareyðublöðum eða skriflegum umsóknum skal
skila fyrir föstudaginn 30. apríl 1999 til skrifstofu
slökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja.
Brunavarnir Suðurnesja
Hringbraut 125 • 230 Keflavík.
Sími: 421-4748 • Fax: 421-4578
Netfang: bs@simnet.is
Víkurfréttir
9