Víkurfréttir - 12.05.1999, Síða 2
Atvinnuuppbygging Nýsköpunarsjóðs á landsbyggðinni:
Koma 250 milljónir til Suðurnesja?
Nýsköpunarsjóður skal lög-
um samkvæmt verja 1.000
milljónum til þátttöku í fjár-
festingarfj rirtækjum í því
skyni að stuðla að nýsköp-
un- og atvinnuuppbyggingu
með áherslu á landsbvggð-
ina, einkum á sviði upplýs-
inga- og hátækni. Útboðs-
frestur vegna Fraintakssjóðs
Nýsköpunarsjóðs atvinnu-
lífsins rann út þann 15. apríl
sl. Sparisjóðurinn í Keflavík,
Atvinnuþróunarsjóður Suð-
urlands og Markaðs- og at-
vinnumálaskrifstofa Reykja-
nesbæjar standa saman að
einu hinna 9 tilboða sem
bárust í milljarð króna út-
boð sjóðsins. Gert er ráð fvr-
ir 125 milljón króna mót-
framlagi tilboðsaðila og
verða því til fjórir 375 millj-
ón króna sjóðir. Ljóst er að
tilkoma sjóðs af þessari
stærðargráðu yrði mikil
lyftistöng fyrir atvinnulíf á
svæðinu. Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins metur tilboðin
og semur að því loknu við 4
aðila. Jóhann B. Jónsson hjá
Markaðs- og atvinnumála-
skrifstofu Reykjanesbæjar
sagði ágæta möguleika á að
tilboði þeirra yrði tekið.
,,1'etta er stórt atvinnusvæði
sem sameinast um eitt til-
boð, svæði sem sýnt hefur
fram á nýsköpunarvilja á
mörgum sviðum. Möguleik-
ar allra eru jafnir en við telj-
um að sýna verði fram á
talsverða vankanta á um-
sókn okkar verði framhjá
okkur gengið og við teljum
okkur fyllilega standa undir
kröfum sjóðsins.“ Geir-
mundur Kristinsson, spari-
sjóðsstjóri, sagði úthlutunina
skipta Suðurnesin miklu
máli. „Þetta vrði mikil lyfti-
stöng fyrir atvinnulífið á
svæðinu og hvati til áfram-
haldandi nýsköpunar. Menn
hafa beðið síðan 1997 eftir
aðgerðum Nýsköpunarsjóðs
í þessum máíum og ánægju-
legt að þetta sé komið til
framkvæmda. Þá vill svo
skenuntilega til að þetta er
líklegast fyrsta sameiginlega
verkefni nýs Suðurlands-
kjördæmis. Nú er ekkert
annað að gera en vera bjart-
sýnn á að hljóta náð fyrir
augum Nýsköpunarsjóðs.,,
Samkvæmt upplýsingum
VF verður ákvörðun tekin
um úthlutun úr Framtaks-
sjóði á stjórnarfundi Ný-
skupunarsjóðs þann 21. maí
næstkomandi.
Fasteimasalan
HAFNARGÖTU 27 - KEFLAVÍK O SÍMAR4211420 0G4214288
Fílumiii 3c, Njarðvík.
2ja herb. einstakl. íbúð á 2.
Iiæð, glæsileg eign. Hægt að
taka bíl sem gr. Tilboð.
Faxabraut 5, Kellavík.
Tvær 2ja lierb. íbúðir á l.
hæð í fjórbýli. Hús allt ný-
tekið í gegn að utan. Tilboð.
Meiðastaðavegur 7b, Garði
173m: parhús á 2 hæðum.
Hús sem gefur ntikla mögu-
leika að leigja frá sér neðri
hæðina. 4.600.000,-
Vesturgata 46, Keflavík.
182m2 einbýli með bflskúr.
Hús á 2 hæðum. Asett verð
kr. 10.500.000,-Óskaeftir
tilboði.
Itlikabraut 5, Keflavík.
93m: neðri hæð með sérinn-
gangi í fjórbýli með 21m: bíl-
skúr. Góð eign. 8.100.000,-
Heiðarholt 4. Keflavík.
84m: endaíbúð á 3. hæð í fjöl-
býli. Góð eign á vinsælum stað,
laus fljótlega. 5.9(M).000.-
Brekkugata 5, Vogum.
Glæsilegt 178m:einbýli með
40m: bflskúr. Eignarlóð
afgirt. Rólegur og góður
staður. Tilboð.
Eyjaholt 15, Garði.
135m; einb. með 4 svefnh.
og 52m: bílskúr. Hús í góðu
standi. Skipti á eign Hafnarf
eða Reykjavík. 9.300.000,-
Hafnargata 13, Höfnum.
200m: einbýli á 3 hæðum
með 50m: bflskúr. Húseign
sem er mikið endurnýjuð.
Tilboð.
Nónvarða 8, Keflavík.
145m: e.h. í tvíbýli með
27m: bflskúr. Stór og góð
eign á vinsælum stað. Skipti
mögul. á minna. 9.300.000.-
Bifreíðar hvergi
óhultar
Talsvert var um að farið
væri inn í ólæstar bifreiðar
í Keflvtk og munum stolið
um síðustu helgi. Þá var
bifreið skemmd á hesta-
mannasvæðinu Mána-
grund og 4 rúður hennar
brotnar.
Mikið haft fyrir
aumu verki
Með grænkandi grasi og
rísandi sól virðist alltaf
sem alda skemmdarv'erka
og þjófnaði ríði yfir bæjar-
félögin og Suðumesjum.
Stundum er talsvert haft
fyrir aumum verkum og
dæmi um það er tilraun
hjólaþjófs í Keflavík, sl.
fimmtudagsnótt, til að ýta
mannlausri bifreið yfir
hjólið. Líðan hjólsins er
eftir atvikum góð á við-
gerðarstandi eigandans.
Rallkeppni í
Reykjanesbæ
Suðurnesjarall ESSO verður á
Reykjanesi um helgina. Auk
hefðbundinna leiða um
Hvassahraun, Kleifarvatn, Is-
ólfsskála, Reykjanes og Stapa
verður rallað um sjálfan
Reykjanesbæ. Það er rétt, kl.
12:15 á laugardag verður ekin
stutt sérleið um Reykjanesbæ.
Keppendur verða ræstir á
Bakkastíg í Njarðvík. Af
Bakkastíg verður þeyst á
Brekkustíg og Iðjustíg og það-
an aftur á Bakkastíg og eftir
honum niður f Keflavíkurhöfn
og upp á Vikurbraut og endað
á Bryggjuvegi. Keppnin hefst
á föstudag kl. 17 við Bflanaust
í Borgaitúni en fyrsta sérleiðin
verður í Hvassahrauni en að
loknum tveimur stuttum sér-
leiðum verður næturstopp við
höfuðstöðvar L.I.A í Laugar-
dalnum. A laugardag hefst
keppni kl. 08 á sama stað og
fyrri daginn. Endamark
keppninnar verður við Aðal-
stöðina í Reykjanesbæ.
Agœtu
SuAurnesjamenn
Eg pakkaykkurfyrir góða hvatningu
og stuðning í kosningunum.
Ykkar stuðningur réð úrslitum
Hjálmar Árnason
2
Víkurfréttir