Víkurfréttir - 14.10.1999, Blaðsíða 9
Arangur í skolastarfi
Hitaveita
Suðurnesja
Brekkustíg 36 - Sími 422 5200
-aðalefni aðalfundar SSS sem fram fer
í Keflavíkum helgina.
Meginumfjöllunarefni
fundarinns verður “
árangur í skóla-
starfi“, sagði Skúli
Skúlason, formaður Sam-
bands sveitarfélaga á Suður-
nesjum en aðalfundur sam-
bandsins \ erður í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja föstudag og
laugardag.
„Það er ljóst að nú standa yfir
miklar fjárfestingar við einsetn-
ingu grunnskólanna og það eru
bundnar miklar væntingar við
að árangur í skólastarfinu aukist
samhliða þessum breytingum.
Sveitarfélög eins og Reykjanes-
bær hefur skýra framtíðarsýn í
gegnum sína skólastefnu, með
áformum um samningsstjómun
og fleira mætti nefna. Markvisst
þróunarstarf er að aukast í skól-
um á svæðinu og allt er þetta
liður í því að gera Suðumesin
byggilegri, bæði fyrir þá sem
hér alast upp og þá sem hingað
vilja flytjast. A laugardeginum
verða 4 fyrirlestrar um skólamál
sem örugglega verða sveitar-
stjómarmönnum gagnlegir".
Aukin útgjöld
Skúli segir að annað mál sem
fara þurfi vel yfir séu tekju-
stofnar sveitarfélaganna. „A
síðustu árum hefur ríkisvaldið
samþykkt lög og reglugerðir
sem kallað hafa á aukin útgjöld
fyrir sveitarfélögin. Bara það að
hækka sjálfræðisaldur úr 16
ámm í 18 ár kallar á aukin út-
gjöld úr
sveitarsjóðum, annað dæmi er
þegar lífeyrissparnaður al-
menma starfsmanna skuli ekki
skattlagður. Það minnkaði út-
svarstekjur sveitarfélaga o.s.frv.
Aætlað er að ráðstafanir ríkisins
á síðustu 9 árum hafi minnkað
tekjur sveitarfélaganna um 16
milljarða. A sama tíma eru
verkefni eins og skólamálin að
færast frá ríkisvaldi til sveitarfé-
laga. Tekjustofnar sveitarfélag-
anna þurfa sannarlega að aukast
og ríkisvaldið verður að koma á
móts við sveitarfélögin."
Reykjanesbrautin
Skúli segir menn hafa verulega
áhyggjur af tvöföldun Reykja-
nesbrautarinnar. „I þessari
miklu umræðu um að draga
saman í framkvæmdum vegna
þennslunnar hef ég áhyggjur ef
seinka á áfonnum um tvöföld-
unina. Við Suðurnesjamenn
höfum viijað flýta þeim fram-
kvæmdum. Það er deginum
ljósara að Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar hefur sprengt allt utan af-
sér og líka vegna Schengen ætl-
urn við að stækka hana. Það er
að mörgu leiti sama umferð sem
fer um Reykjanesbraut og um
flugstöðina. Tölur frá vegagerð-
inni sína um 8 % aukningu á
umferð milli áranna 1997 -
1998. Áriðl997 fóm 5870 bilar
um brautina á sólarhring en
6330 árið 1998. Á sama hátt er
það öryggisatriði fyrir vegfar-
endur að tvöfalda en á árunum
1992-1996 vom að meðaltali 40
slys á brautinni á kaflanum frá
Krísuvík til Keflavíkur.“
Stórar ákvarðanir hafa þegar
verið teknar varðandi málefni
Sorpeyðingarstöðvarinnar en
Skúli á ekki von á að málefni
hennar verði mikið til umræðu á
aðalfundinum. Þau mál eru í
vinnslu hjá stjóm stöðvarinnar.
Þó er geysileg vinna framundan
hjá okkur í nýju umhverfi. Við
höfum sett markið á að byggja
flokkunarstöð og brennsluofn
samkvæmt ítrustu umhverfis-
kröfum umhverfiskröfum."
Samstarf sveitarfélaganna
Á síðasta aðalfundi var mikil
umræða um samstarf sveitarfé-
laganna á Suðumesjum og þið,
fulltrúar Reykjanesbæjar tölduð
ákveðin tímamót í Ijósi stærðar
Reykjanesbæjar innan sam-
starfsins.
„Samstarfið hefur gengið ágæt-
lega á árinu. Línur hafa skýrst
að mínu viti milli Reykjanes-
bæjar og hinna sveitaifélaganna
ef svo mætti að orði komast.
Nú bíður okkar samstarf við
samtök sveitarfélaga á suður-
landi vegna breytts kjördæma-
skipans og því líklegra í mínum
huga en hitt að SSS þróist áfrarn
í að halda utan um ýmis sam-
eiginleg hagsmunamál heldur
en rekstur“, sagði Skúli Skúla-
son, sem lætur af formennsku
santbandsins um helgina en
skipt er um formann þess á
hverjum aðalfundi.
Lögreglan:
Unglingar brutusl
Inn í Sandgerði
Brotist var innf sam-
komuhúsið í Sand-
gerði s.l. helgi. Inn-
brotsþjófarnir hirtu
aðallega sígarettur og áfen-
gi, sem þar var geymt.
Málið telst upplýst, en
þarna voru um nokkrir
unglingar að verki, búsettir
í Sandgerði og Reykjanes-
bæ. Einnig var brotist inní
leikskólann í Sandgerði á
aðfaranótt mánudags.
Þjófamir komust inn með
því að spenna upp glugga.
Þeir tóku með sér Aiwa-
kasettutæki, geisladiska
sem merktir eru leikskól-
anum og Chenon „auto
3001” multi focus mynda-
vél. Lögreglan í Keflavík
rannsakar málið.
www.vf.is
i Hennakvöid 1
i Knattspynnu-1
deildan
[ Föstudaginn 22. október stendur [
[ Knattspymudeild Keflavíkur fyrir
I herrakvöldi í KK-sal. Boðið verð- |
| ur uppá fiskihlaðborð á vegum |
I Glóðarinnar og Langbest, ræðu- I
I mann kvöldsins.happadrætti, upp- I
boð og óvæntar uppákomur. Hús- [
ið opnar klukkan 19:30 og er
I miðaverð 3500 krónur. Hægt er að |
I nálgast miða á skrifstofu Knatt- |
I spymudeildar Keflavíkur í sund- I
I kjallara eða panta miða í síma I
j 421-5388 eða 698-5352 eða í Ein- j
ar í síma 421-4535 og 861-2031.
Allir sannir karlmenn eru hvattir
I til að mæta og sýna stuðning og |
I tryggð við sitt félag. |
1 Knattspyrnudeild Keflavíkur I
I________________________|
771 sö/u
Hitaveita Suðurnesja óskar
eftir tilboðum í eftirfarandi:
Körfubíll:
Körfubíllinn er Bens 814, árgerð
1989, ekinn um 132.000 km.
Körfubúnadurer frá Anton
Ruthmann í Þýskalandi, mesta lyfti-
hæð er 18m og mesta lyftigeta er
200kg. Bíllinn er til sýnis og skoð-
unar að Brekkustíg 36, Njarðvík og
nánari upplýsingar gefa Gunnlaugur
Óskarsson eða Guðmundur
Björnsson.
Rafstöð:
Rafstöðin er Caterpillar 3406, dísel-
rafstöð, 130kW, árgerð 1983.
Rafstöðin er lítið notuð og er til sýnis
og skoðunar í orkuverinu í
Svartsengi þar sem
Hreinn Halldórsson gefur
nánari upplýsingar.
Trésmíðavél:
Vélin er lítið notuð sambyggð
trésmíðavél (sög, hefill, fræsari, bor),
Robland-K26, árgerð 1984. Vélin er
til sýnis og skoðunar í í orkuverinu í
Svartsengi þar sem
Hreinn Halldórsson gefur
nánari upplýsingar.
Tilboð má gera hvort sem er í einn
hlut, tvo eða alla og þau skal senda
til innkaupadeildar, Brekkustíg 36,
260 Njarðvík eigi síðar en
þriðjudaginn 2. nóvember n.k.
Hitaveitan áskilur sér rétt til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna
þeim öllum.
Hitaveita Suðurnesja
Brekkustíg 36, 260 Njarðvík,
Reykjanesbæ
Sími: 422 5200, bréfasími 421 4727
Sími í orkuveri: 426 8611
AFMÆLI
Fösludaginn 15. október 1999
verður Sigurður Vilhjálmsson
kafari 60 ára. Vill fjölskvldan lians
óska honutn til hatningju með
áfangann og vonuin við að þú eigir
annað eins eftir.
Víkurfréttir
9