Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 14.10.1999, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 14.10.1999, Blaðsíða 10
Glæsileg málverkasýning í Svarta Pakkhúsinu Jóhann Smári heldur tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju Eyrnakt fyrir tónlistarunnendur á Suðurnesjum Þessa daga stendur yflr mál- verkasvning í sal myndlistar- félagsins, Svarta I’akkhúsinu í Keflavík. I*ar sýna Sigurfríð Rögnvaldsdóttir (Fríða) og Sigurbjörg Gunnarsdóttir (Bagga) verk sín. Þarna eru greinilega iniklir listamenn á ferð því myndirnar eru hver annarri fallegri. Aðsókn hefur farið fram úr björtustu von- um, 200 manns hafa þegar komið á sýninguna, og þær hafa selt um 18 verk. Fríða segir peningana koma sér vel, því hún er á leið til Belgíu, þar sem hún hyggst húa og vinna að listsköpun. „Við ákváðum í vetur að stíga þetta skref og halda einkasýn- ingu á verkum okkar. Við erum búnar að vera að vinna að und- irbúningi hennar allt þetta ár", sagði Fríða þegar hún var spurð að því hvers vegna þær hefðu farið út í að halda sýningu. Þetta er fyrsta einkasýning þeir- ra beggja en Fríða tók þátt í samsýningu fyrir nokkrum árum, í Risinu við Hverfisgötu í Reykjavík. Fríða segist hafa málað og teiknað ffá því hún man eftir sér en að hún hafi ekki kynnst al- vöruteikningu og litameðferð fyrr en hún fór að vinna í Bað- stofunni fyrir tólf árum síðan. Bagga byrjað í Baðstofunni árið 1991. En hvað er Fríða að fara að gera í Belgíu? „Maðurinn niinn fékk óvænt vinnu í Liege í Belgíu og ákvað að drífa sig. Við erum búin að selja húsið okkar og búin að finna húsnæði ( bæ skammt frá Liege. Við komumst svo í samband við konu sem er listamálari og mjög virk í listasamfélaginu þama. Hún ætlar að vera búin að opna fyrir mér ýmsar leiðir þegar ég kem út”, sagði Fríða og hlakkar auðheyrilega mikið til að takast á við þetta verkefni. En hvert stefhir Bagga? „Það er ómögulegt að segja hvað mér dettur í hug. Það gefur mér mikið að mála og ég fæ alveg helling út úr því að fara í annan heim”, sagði Bagga. Bagga og Fríða viðurkenna báðar að vera forfalinir golfarar og sjá mest eftir að hafa eytt sumrinu í að undirbúa sýning- una. Þær eru sammála um að næsta sýning verði ekki haldin að hausti til. En fá þær ekki inn- blástur úr golfinu? Þær segja að svo sé og að golfið hreinsi al- veg hugann og oft fái þær góðar hugmyndir á golfvellinum. Allir em hjartanlega velkomnir á sýninguna sem er opinn frá klukkan 20:00-22:00 á virkum dögum og frá klukkan 14:00- 18:00 um helgar. Síðasti sýn- ingardagur er sunnudagurinn 17.október. Framhaldsnám í London Jóhann Smári Sævarsson, stór- söngvari, er nú kominn aftur heim eftir að hafa numið og starfað við óperusöng erlendis um árabil. Hann stundaði nám íTónlistarskólanum í Keflavík, Nýja Tónlistarskólanum í Reykjavík og fór í framhalds- nám í óperudeild Royal Col- lege og Royal Academy of Music í London. Þaðan lauk hann próft sem einsöngvari og óftemsöngvari. Starfaói í Þýskalandi og víóar Að námi loknu fór hann á samning hjá Kölnaróperunni og söng þar í þrjú ár. Jóhann hefur einnig starfað töluvert í Þýskalandi og kom m.a. fram í Kölnarfílharmoníunni með Guerzenich Orchester. með vestur-þýsku útvarpshljóm- sveitinni og sem gestasöngvari í Bonn og Nuernberg. Hann hefur einnig sungið einsöng, hlutverk Fígarós í Brúðkaupi Fígarós, með Lundúnarfíl- L Sigurfríð Rögnvaldsdóttir (Fríða) og Sigurbjörg Gunnarsdóttir (Bagga)við verksín. VF-mynd: Glúmur \ Tólt nýjir | meðlimir í : Systrafélagi i Njarðvíkurkikju Dagsnámskeið fyrir atvinnurekendur og stjórnendur fyrirtækja á Suðurnesjum: NYSKOPUN - leiðir til árangurs Páll Kr. Pálsson, hagverkfræðingur Aðalfundur Systrafé- I lags Njarðvíkur- j kirkju (Innri) var haldinn þann | 1 l.október s.l. Fonnanns- | skipti fóru fram þegar I Kristjana Gísladóttir lét af I störfum eftir þrjú ár og j þökkum við henni vel unnin störf. Við tók Kol- | brún Lind Karlsdóttir og | bjóðum við hana vel- I komna. Þrjátíu og þrjár I konur voru starfandi í lé- laginu og tólf styrktarmeð- limir. Svo gerðist sá ein- ( stæði atburður, á umrædd- | um fundi, að tólf nýjar I konur gengu í félagið og I bjóðum við þær velkomn- 1 ar. Þannig að nú eru 45 konur starfandi, eða 57 með styrktarmeðlimum. I---------------------------1 Umgjörð ehf., ráðgjafa- þjónusta stendur fvrir nániskeiði um nýsköp- un í Eldborg í Svarts- engi á fimmtudag í næstu viku. Kvnnt verður hug- myndafræði nýsköpunar og þær aðferðir sem best duga. Námskeiðið er haldið í sain- starfi við Pál Kr. Pálsson, framkvæmdastjóra sem jafn- framt er leiðbeinandi ásamt Þórhalli Guðlaugssyni, mark- aðsfræðingi. „Þetta verðum skemmtilegt og lifandi námskeið sem á eftir að koma að góðum notum. Við munum gefa nýja sýn í sam- keppnina”, sögðu námskeiðs- haldarar í samtali við blaðið en á námskeiðinu verður rætt al- mennt um gildi og vægi ný- sköpunar sem og að sinna henni ekki. I frétt vegna námskeiðis- ins segir að stjómendur í fyrir- tækjum standi frammi fyrir sí- fellt flóknara rekstrammhverfi. Það sé staðreynd þótt margir eigi eiíitt með að sætta sig við hana. Þeir sem stundi atvinnu- rekstur viti að hægagangur jafn- gildir dauða. Hiða sama eigi við um þekkinguna. Hún eldist hratt. Við þessar aðstæður er áríðandi að fyrirtæki hyggji sí- fellt að nýsköpun og þekkingaröflun. Þekking leiðir til nýsköpunar og nýsköpun kallar á nýja þekkingu. Það em þeir Páll Kr. Pálsson og Þórhallur Guðlaugsson sem sjá um að gera námskeiðið í senn lærdómsríkt og eftirminnilegt. Páll Kr. Pálsson, hagverkfræð- ingur hefur yfirgripsmikla þekkingu á viðfangsefninu og reynsla hans sem framkvæmda- stjóri ýniissa fyrirtækja og stofnana kemur að góðum not- um. Einnig hefur Páll staðið fyrir fjölda námskeiða og fyrir- lestra um þetta viðfangsefni. Þórhallur Guðlaugsson, mark- aðsstjóri hefur um nokkurra ára skeið stýrt þróunar- og mark- aðsstarfi Strætisvagna Reykja- víkur. Hann hefur jafnframt stundað kennslu og námskeiðahald í Tækniskóla Is- lands og við Endurmenntunar- stofnun Háskólans. Þórhallur hefur reynslu af við- skiptaráðgjöf og hefur góða innsýn í rekstur og þróun fyrirtækja. Námskeiðið verður haldið í Eldborg. Orkuveri Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi, fimmtudaginn 21. okt. 1999 og stendur frá kl. 09:00 til 18:00. Skráning fer fram hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum í síma 421-7500. 10 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.