Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 14.10.1999, Síða 12

Víkurfréttir - 14.10.1999, Síða 12
Hússtjórnarskólinn ^ Hallormsstað Eigum laus pláss á vorönn 2000. Qóður undanfari í fata- hönnun, matreiðslunám eða eitt sér. Saga Kellavíkur 1920-1949 Glöggum lesendum staðar- blaðanna ætti ekki að dyljast það, að þriðja bindi Sögu Keflavíkur er nú komið út og er tnun þykkara en fyrri bindin tvö. Spannar það mikið framfara- og uppbygg- ingartímabil í sögu byggðar- lagsins. Formlegur útgáfu- dagur var föstudaginn 17. september, er bókin var kynnt í Selinu í Njarð-vík og sala hófst jafnframt á henni hjá Bókabúð Keflavfkur, sem annast dreif-ingu hennar.. Enn er þó eftir ritun merkilegs kafla í sögu Keflavíkur sem bæjar, allt þar til Keflavík, | Njarðvík og Hafhir sameinast árið 1994. Er vonandi, að þess verði ekki langt að bíða, að þeirn kafla verði gerð góð skil í næsta bindi Sögu Kefla- víkur, meðan sagan er enn fersk í hugum manna. Jafnvel ekki víst, að eitt bindi dugi til, því tímabilið 1950-1994 var viðburðaiikt. Sögunefndin gerði sér strax grein fyrir því, að vandasamt yrði að rita síðustu bindin, er nálgast tæki nútímann. j Atburðir eru þá mötgum enn í fersku minni og því hætt við, að ýmsum þyki of lítið gert úr sínum Itlut og sinna ættingja eða vina. Menn hafa einnig mismunandi áherzlur. Sumum finnst vafalaust of lítið gert úr ntikilvægi vissra þátta atvinnulífsins, en alltof mikilli prentsvertu eytt í t.d. dærnis, lýsingu á íþrótta- og félagslífi, en aðrir eru svo aftur á móti á önd-verðum i meiði. í 38. tölublaði Víkurfrétta, 23. september s.l., birtust fyrstu athugasemdir við söguritun- ina. Bæjarstjóm höfðu borizt athugasemdir frá sama manni, allnokkru áður en bókin kom út og fór í sölu. Ekki veit ég, hvaðan hann hefur fengið bók-ina, en örugglega ekki frá sögunefndannönnum, ritstjóra eða söluumboði Til ritunar sögunnar var fenginn sagnfræðingurinn Bjami Guðmarsson. Tel ég, að þar hafi vel til tekizt og vart hægt að fá betri og skemmtilegri penna, með þessi réttindi. Ef til vill er það hluti sagnfræðinámsins að gildismat atburða verður nokkuð annað en t.d. hjá sögunefndarmönnum. Við því er lítið að gera. Ritstjóri fékk nefndarmönnum til yfir- lestrar kafla bókarinnar, eftir því sem sögurituninni miðaði. Er rituninni var lokið, fengu nefndamtenn síðan nokkurs- konar próförk að bókinni. Veit ég ekki betur, en þeir hafi allir lesið þessi gögn vand- lega yfir, enda kontu frá þeim ýmsar athugasemdir, bæði við málfar og efnistök, sem rit- stjóri tók ntargar hverjar til greina. Mættu ýmsir greina- höfundar læra af því, hversu nauðsynlegur prófarkalestur er. Aldrei fer þó svo, að mönnum sjáist ekki yfir eitthvað. Er lokið var prentun bókarinnar, kom í ljós, að nokkur mistök höfðu orðið við setningu myndtexta. Nefndin sam- þykkti að láta leiðréttingar- blöð fylgja bókinni, og hefur nú væntanlega verið lokið við að stinga þeint inn í bókina og jafnframt koma leiðréttingar- blöðum til þeirra, sem nú þegar hafa keypt hana. Jafnframt hefur komið í ljós, að ekki hefur fyllilega verið hægt að treysta öllum þeim upplýsingum, sem ritstjóri hefur fengið. Má þar til að mynda taka sem eitt lítið dæmi dæmi, að sagt er í kaflanum um mjólkursölumál á bls. 227, að neyzlunrjólk frá Vatnsnesi hafi verið seld hjá Agústu Sigurjónsdóttur að Hafnargötu 51. Þetta er rangt, því Ágústa seldi aldrei mjólk. Höfundur athugasemdanna telur, að ekkert sé sagt um Sparisjóðinn í Kefiavík utan það, að hann hafi verið rekinn með tapi árin 1936 og 37. Á bls. 203 í öðru bindi bókar- innar er sagt ffá stofnun hans, og einnig er talað nokkuð um hann á bls. 229 í sama bindi. Einnig kvartar hann yfir, að ekki sé minnzt á Jónínu Guðjónsdóttur á Frantnesi, sem stjórnað hafi bindindis- starfi í þágu barna og ung- linga, ásamt Guðlaugu systur sinni. Vissulega unnu þær systur merkt starf, þó ekki hafi nú öll börnin orðið bindindismenn til frambúðar. Sagt er frá stofnun barna- stúkunnar Nýársstjörnunnar, falli hennar og endurreisn á bls. 274 í öðru bindi bókar- innar, og jafnframt getið þar um þátt þeirra systra í stofnun hennar og starfsemi. Varðandi þátt séra Eiríks Brynjólfssonar, prests í Utskálaprestakalli, í rnenn- ingarlífi Keflavíkur, er rætt um kórstjóm hans á bls. 321- 322 og störf hans í þágu unglingaskólans á bls. 407- 410 í nýútkomnu 3. bindi. Ekki er heldur alveg rétt með farið, að hvergi sé sagt frá Olíusamlagi Keflavíkur og nágrennis, þótt um megi deila, hvoil nóg sé sagt. Á bls. 118 er rnynd af olíugeymi og afgreiðsluskúr olíusam- lagsins, og á 119. blaðsíðu er lítillega sagt frá stofnun þess. Reynt er að byggja söguritun sem mest á traustum. rituðum heimildum og erfitt til fanga, ef þær brestur. Það er því vissulega mikilvægt fyrir sögunefnd og ritstjóra að fá fram athugasemdir og gagn- rýni. Umræður og gagnrýni benda til áhuga á málefninu, en lesendur verða þó að gera sér grein fyrir því, að það er eins með byggða- og ævisögur, að þær verða aldrei fullsagðar, hversu vel sem vandað er til ritunar jxiirra. Björn Stefánsson Allar frekari upplýsingar og skráning á skrifstofu skólans í Þessir herramenn Hervar Bragi og Rúnar Þór verða 5 ára 26. september og 26. október. Afmæliskveða annna og afi N na ISLENSKUR Bll MARKAÐUR Atvinna Islenskur markadur hf. í Flugstöd Leifs Eiríkssonar leitar eftir starfsmanni í raftækjadeild sína. Viðkomandi þarf að vera tvítugur og hafa mikinn áhuga og góða þekkingu á rafmagns- og rafeindavörum. Unnið er á 12 tíma vöktum. Islenskur markaður er reyklaus vinnustaður. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Víkurfrétta og skal skilað fyrir 21. október n.k. 12 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.