Víkurfréttir - 03.11.1999, Blaðsíða 12
Aðeins tveir hljóðfærasmiðir eru
nú starfandi á íslandi og annar
þeirra er Keflvíkingur, Jón Marinó
Jónsson. Hann lærði húsasmíði í
FS og stofnaði fyrirtækið Fjölin sf.
að námi loknu. Eftir nokkur ár í
fyrirtækjarekstri ákvað Jón að
venda kvæði sínu í kross og læra
hljóðfærasmíði á Englandi. Hann
mun Ijúka námi vorið 2000, og
# fékkvinna lokaverkefni sín á
íslandi.Jón heimsótti FSádög-
unum og sýndi m.a. sínum gamla
kennara, Sturlaugi Ólafssyni,
listasmíð sína.
Fiðlusmiður í Fjölbraut
Gamall draumur
„Ég hef alltaf haft gaman af útskurði
og slíku. Erlingur Jónsson, listamaður,
kenndi mér í gaggó í gamla daga og
hann hvatti mig til að fara í einhvers
konar fínsmíði. Ég var ekki tilbúin því
niér fannst það ekki nógu praktískt”,
sagði Jón þegar hann var spurður urn
aðdraganda hljóðfærasmíðanámsins.
„Ég lærði húsasmíði í FS og stofnaði
Fjölina sf. að nánti loknu ásamt félög-
um mínum. Tímabilið 1992-1993 var
okkur erfitt því þá var mikil kreppa hjá
iðnaðarmönnum. Ég gafst upp á
rekstrinu og fór að vinna hjá hemum,
en það átti ekki vel við mig. Okkur
hjónunum hafði lengi langað til að
breyta til og búa erlendis og við slóg-
um bara til. Það má því segja að þetta
sé gamall draumur sem rættist”, sagði
Jón.
Gott að búa á Englandi
„Ég kunni mjög vel við mig á
Englandi. Við fómm í þeim tilgangi að
kynna okkur enska tungu og menn-
ingu og lögðum okkur því fram við að
kynnast heimamönnum”, sagði Jón og
bætti við að þau hjónin hafi eignast
marga góða kunningja þar sem þau
haldi enn sambandi við. Hann sagði að
Bretar séu öllu afslappaðri en Islend-
ingar og íhaldsamari að mörgu leyti.
Það sem hafi komið honum mest á
óvart væri mannmergðin, gífurleg
lotning fyrir konungsfjölskyldunni og
ntikil stéttaskipting.
Þolinmæðisverk
Smáar hendur eru ekki forsenda þess
að verða góður fiðlusmiður, það er
augljóst því Jón er stórhentur maður.
Jón viðurkennir að erfiðast hafi verið
að fara úr tommunum yfir í brot úr
millimetra, þegar hann fór úr húsa-
smíðinni yfir í hljóðfærasmíðina.
„Hljóðfærasmíði krefst fyrst og fremst
vandvirkni og þolinntæði. Ég verð að
vera í algjörri ró þegar ég smíða, hálf-
gerðri innhverfri íhugun. Að verða
góður hljóðfærasmiður byggir á þjálf-
un og meiri þjálfun, að fá tilfinningun
fyrir efninu og línunum”, sagði hinn
dverghagi Jón að lokum.
TUDOR
RAFGEYMAR
Höfum til sölu allar stærðir af
hinum landsþekktu og vönduðu
TUDOR rafgeymum.
• í bíla
• í vörubíla
• í vinnuvélar
• í báta
Góð ending og gott verð!
sóuv/n/G
FITJABRAUT 13 • 360 NJARÐVlK • SfMI 431 1 3S0
Fypstu hálku-
árekstran uetrarins
Þegar bæjarbúar vöknuðu upp
á þriðjudagsmorgni var alhvít
jörð. Þá var viðbúið að lög-
regla fengið útköll vegna
fyrstu hálkuárekstra vetrarins.
Tveir bílar rákust saman
snemma morguns á horni
Blikabrautar og Faxabrautar.
Engin slys urðu á fólki en
önnur bifreiðin skemmdist
töluvert og var dregin á brott.
Annað óhapp varð þegar öku-
maður missti stjóm á bíl sín-
um við Grænás og lenti á
Ijósastaur. Ökumaðurinn
slapp með skrekkinn en bif-
reiðin var mikið skemmd.
Síðastliðin vika annars var
viðburðalítil hjá lögreglunni í
Keflavík.
12
Víkurfréttir