Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 02.12.1999, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 02.12.1999, Qupperneq 10
Flugleiðir í nýjum „felulitum“? Slökkviliðsmenn á námskeiði í Reykjanesbæ Á dögunum var mikil móttökuat- höfn vegna komu fyrstu vélar Flug- leiða í nýj- um og glæsilegum litum flugfé- lagsins. Nýir litir - ný ímynd. Við sama tilefni var opnuð ný heimasíða Flugleiða og ný tímatafla kynnt. Á heimasíðu Flugleiða og í tímatöflunni má sjá heimskort með nýju leiðar- kerfi Flugleiða til austurs og vesturs. Á heimskortinu eru áfanga- staðir s.s. Halifax, New York, London, Færeyjar o.s. frv., en textinn yfir íslandi er REYKJAVÍK INTERNA- TIONAL AIRPORT. Það er því sem fyrr með ólíkindum hvemig Flugleiðir telja sig geta breytt þekktu nafni á alþjóðleg- um flugvelli okkar íslendinga eftir eigin geðþótta, svona í leiðinni og þeir breyta um liti á eigin flugvélum. I ensku tímatöflu félagsins má m.a. sjá setninguna sem slær öllu við „Keflavík airport, the International Airport for Reykjavík." Hvar er þá „the International Airport for Iceland" að finna eða er flug- völlurinn eingöngu ætlaður fyrir gesti Reykjavíkur? I júlí 1994 skrifaði undirritaður grein í Morgunblaðinu til að mótmæla tillögum um að nafn Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar yrði tengt Reykjavík. Það voru aðeins tillögur þá, þó slæmar væru. Við sem stöndum við stjórnvölina á Suðurnesjum munum að sjálfsögðu mót- mæla gjömingi þessum á rétt- um vettvangi og fylgja því fast eftir að rétt nafn á flugvellinum til nær 60 ára verði skráð á heimasíðu Flugleiða svo og annars staðar. Hafa verður í huga að þrátt fýr- ir að Flugleiðir leigji stærstu hótel sín til reksturs í Reykja- vík þá em ekki allir ferðamenn á leið þangað - það vita menn. Alþjólegur flugvöllur í Kefla- vík er fyrir alla gesti Islend- inga. Ferðamálayfirvöld hafa undanfarna mánuði lýst yfir áhyggjum vegna vaxandi markaðshlutfalls Reykjavíkur á kostnað landsbyggðarinnar. Hér er ein skýring af mörgum - hér er verk að vinna. Við Fluleiði vil ég segja: „Ný ímynd fæst ekki eingöngu með nýjum litum þó fallegir séu. Hún fæst með góðri þjónustu, réttlátri verðlagningu og réttum upplýsingum til viðskiptavina sinna.“ Sleinþór Jónsson, varafonnaður Markaðs- og atvinnuráðs Reykjanesbœjar Námskeiðið Slökkviliðsmað- ur 1, var sett í Kjarna í Reykjanesbæ í síðustu viku. Hrólfur Jónsson, formaður skólanefndar Brunamálaskóla ríkisins og slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Reykjavíkur, og Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðumesja, settu námskeiðið. Námskeiðið er 114 kennslu- stundir og er samstarfsverkefni slökkviliðs Bmnavama Suður- nesja og Slökkviliðs Reykja- víkur í umboði Brunamála- skóla ríkisins. Námið er bæði bóklegt og verklegt og hefur Bmnamálaskólinn lánað búnað til verklegrar þjálfunar. Fyrrihluti námskeiðsins var haldinn í Reykjanesbæ í umsjá Bmnavama Suðumesja og sáu slökkviliðsmenn frá B.S. og Slökkviliði Keflavfkurflugvall- ar um kennsluna. Sextán slökkviliðsmenn voru á nám- skeiðinu, þar af sex frá B.S. og einn frá Slökkviliði Miðnes- hrepps. Samkvæmt reglugerð um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna verða þeir að ljúka þremur áföngum í slökkvifræðum ásamt því að vinna í ákveðinn tíma í slökkviliði. Þá öðlast þeir lög- gildingu sem slökkviliðsmenn. Þetta er í annað sinn sem B.S. heldur slíkt námskeið en ákveðið var með tilliti til hag- ræðis fyrir slökkviliðin, að fela stærri slökkviliðum landsins þetta verkefni til reynslu. Fyrra námskeiðið var í október s.l. en þá útskrifuðust 15 slökkviliðs- menn af námskeiðinu. Þessi aðferð hefur skilað mjög góð- um árangri og hefur verið mjög hvetjandi fyrir þá slökkviliðs- menn sem að kennslunni koma. Irmilegar þakkir til séra Ólafs Odds, Einars Arnar organista, Einars Júlíussonar einsöngvara, Kórs Keflavíkurkirkju og Helgu Bjarnadóttur meðhjálpara. Sérstakar þakkir til allra ættingja og vina sem aðstoðuðu og studdu okkur á allan hátt við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, dóttur, móður og ömmu Edith Mariu Meadows Orange Park Florida fyrir hönd aðstandenda Dóróthea Friðriksdóttir, Keftavík og Dóróthea Jónsdóttir, Grindavík Flestar verslanir hafa sett upp jólaútsillingar í gluggana. Veðráttan síðustu daga hefur hins vegar kallað á mjög reglulegan gluggaþvott og hér er verið að fægja og pússa glerið í Sportbúð Óskars. TIL SÖLU Iðnaðar eða geymsluhúsnæði í byggingu að Grófinni 6a, ekið inn frá Bergvegi, skammt frá smábátahjöfninni. Stærð eininga er frá 85-95m2. Nánari upplýsingar í síma 421 4242 eða 421 1746

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.