Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 02.12.1999, Qupperneq 18

Víkurfréttir - 02.12.1999, Qupperneq 18
Rausnarlegur styrkur tíl íþrótta- félagaáSuðumesjum Bílasala Reykjaness, umboðsaðili fyrir Ingvar Helgason hf. og Bílheima ehf„ Gjor- by margmiðlun og Samhæfni Tæknilausnir, sem er nýtt tölvuþjónustufyrirtæki, hafa gert styrktarsamning við öll úrvalsdeildarlið í körfuknattleik á Suðurnesjum, þ.e. körfuknattleiksdeild Grindavíkur, Keflavík- ur og Njarðvíkur. Samningurinn felur í sér að hver deild fái afnot af nýrri Nissan Al- mera bifreið næstu fjögur keppnistímabilin. Aætlað verð hverrar bifreiðar er um 1.500.000 kr. og þykir það einstakt að fyrir- tæki á Suðumesjum skuli styrkja íþróttafé- lögin með þessum hætti. Bifreiðamar eru ætlaðar erlendum leikmönnum til afnota á keppnistímabilinu. Birgir Bragason, formaður körfuknattleiks- deildar Keflavíkur, sagði að þessi gjöf hefði ieyst stóran vanda hjá félaginu sem mynd- ast í upphafi hvers keppnistímabils. „Við erum alveg í skýjunum yfir þessu“, sagði Birgir. Eyjólfur Þór Guðlaugsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur sagði að samningurinn væri hvalreki fyrir körfuknattleiksdeildina og að hann eigi eftir að leysa mörg vandamál sem deildin hefur verið að glíma við undanfarin ár. „Eg vona að fyrirtækin sem gerðu samninginn við okkur njóti þess eins vel og við“, sagði Eyjólfur. „Það er mjög höfðinglegt hjá þessum þremur fyrirtækjum að styðja okkur á þenn- an hátt og samningurinn á eftir að breyta mjög miklu fyrir reksturinn hjá okkur næstu fjögur árin“, sagði Gunnar Þorvarðarson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur. h í I!} ■ j i,l fe Við bjóðum þér og þínum að koma til okkar sunnudagana 5. eða 12. desember ó tímabilinu kl. 14:00 til 18:00. Svartsengi Saga lands í mótun Opnuð hefur verið aöstaöa í Eldborg, móttökuhúsi Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi, þar sem gestum og gangandi gefst kostur á með lifandi hætti að komast í tæri viö krafta jaröarinnar, læra um orsakir og afleiðingar eldgosa og jarðskjálfta, auk þess ab setja einn slíkan af stað í jarðskálftalíkani. Þá er kynnt saga Hitaveitunnar, Bláa lónsins og samfélagsins á Suðurnesjum. Sjón er sögu ríkari, þetta er frábær sýning sem enginn má missa af. HITAVEITA SUÐURNESJA sátt við umhverfið" Börkur Birgirsson Málaraverktaki: „Fyrir mánuði síðan byrjaði ég að taka NATEN SPORT EXTREME. Á þessum skam- ma tíma hef ég fundið fyrir aukinni orku, vakna hress á morgnanna, finn fyrir andlegu jafnvægi og vellíðan, þarf minni svefn og löngunin fyrir því að leggja mig eftir mat er farin og ég finn mikið öryggi í því að taka eitthvað sem er hundrað prósent nát- túmlegt. Anna Þóra Pálsdóttir Verslunarmaóur: „Síðan ég byrjaði að taka NATEN 1 2 3 hef ég lést um 12 kfló á einu ári án nokkurrar fyrirhafnar! Eg hef meira úthald og meiri orku og langur vinnudagur minn er núna miklu lénari. NATEN léttir líf mitt og ég er öll hressari." Öll þekkjunt við hana Önnu sem hefur þjónað okkur frá því við munum eftir okkur, hún hefur stutt okkur dyggi- lega frá því hún hyrjuði að taka fæðubótarefni okkar fyrir þremur árum. Sífellt berast okkur fleirri dæmi eins og hennar Önnu, og það nánast daglega. Naten Sport Extreme Þó þetta sé búinn að vera stut- tur tími þá eru sögurnar af Naten Sprot Extreme strax byrjaðar að spyrjast út og árangurinn hefur verið fljótur að segja til sín. Jafnvel hjá fólki sem er í toppformi. Við teljum Naten vera ful- lkomna fæðubót fyrir fólk á öllum aldri, sama hvað það er að gera. Ekki síst fyrir unga fólkið sem er að byrja að byrja í prófum. Um þessar mundir er 20% afmælisafsiáttur á fjölmör- gum útsölustöðum í Keflavík og mælum við ein- dregið með því að fóik nýti sér það. I lokin viljum við þakka neytendum fyrir frábæra þátttöku síðastliðinn 5 ár.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.