Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 30.12.1999, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 30.12.1999, Blaðsíða 11
Jón Borgarsson íHöfnum: Sjóslysin við Reykjanes Jón Borgars- son er fæddur árið 1933 á Hesteyri í Jökulfjörðum. Hann fluttist í Hafnimar árið 1947 og starf- aði þar sem sjómaður en hann hefur gegnt ýmsum störfum hin síðari ár. Þegar Jón kom fyrst suður voru Hafnir lítið þorp og þar var ekkert um að vera. Hann var vélstjóri í frystihúsinu árið 1953 og þá sá hann m.a. um veita rafmagni frá frystihús- inu. „Ég minnist þess að fólki þótti mikill munur að fá rafmagn, þó það væri bara til Ijósa. Svo kom rafmagnið frá Raf- magnsveitu ríkisins 1955 og 1956 kom kalt vatn og skolplagnir. Koma rafmagns- ins er auðvitað það sem stend- ur uppúr og þetta þótti hið merkilegasta mál. Löngu síðar kom hitaveitan og ég tel það einn merkasta atburð á Suður- nesjum“, segir Jón. Þorbjamarslysið á Reykjanesi verður lengi í minnum haft en Jón var einn björgunarmanna. „Ég bjargaði einum manni af Þorbimi en allir hinir fómst. Þetta var algjör hryllingur og svona hlutum gleymir maður auðvitað aldrei. Eg minnist líka fleiri sjóslysa og í tveimur tilfellum gátum við bjargað öllum. Það var svakalega notaleg tilfmning", segir Jón. Það sem stendur líka upp úr í minningunni hjá Jóni er hinn margfrægi þjófnaður á akkeri skipsins James Town sem strandaði árið 1888 við Hafn- ir. „Ég var sakaður um að stela þessu akkeri. Ég sá það fyrst þegar ég var strákur og gat ekki gleymt því en það stóð á landi Stafness. Einn daginn tók ég mig til ásamt félaga mínum og hirti akkerið en það er nú staðsett við björgunarsveitarhúsið suður- frá.“ Magnús Ágústsson íVogum: • V / TT • Eldgosið í Heimaey M a g n ú s Ágústsson f1;] fæddist í [; (jm Halakoti á 1 Vatnsleysu- m strönd árið 1922. Hann T er einn átta Æ s y s t k i n a . L T Magnús býr nú við Hafnargötu 9 í Vogum og starfar sem Iramkvæmd- arstjóri fyrir Valdimar ehf. Olafi er í fersku minni morguninn sem Bretar komu hingað til að hertaka ísland í síðari heimstyrj- öldinni. Þetta var að morgni 11. maí. Ólafur Björnsson íKeflavík: Breskir hermenn á götum Keflavíkur Ólafur Björnsson fæddist í april 1924 og foreidrar hans fluttust til Keflavíkur þegar hann var fimm ára gamall. Hann hefur búið í Keflavík síðan, en bjó um sex ára skeið í Hafnarfirði. Ólafur hefur starfað við útgerð mestan part ævi sinnar. „Mér er í fersku minni morg- uninn sem Bretar komu hing- að til að hertaka Island í síðari heimstyrjöldinni. Þetta var að morgni 11. maí og ég var á leið að stokka upp og ganga frá því báturinn var í síðasta róðri. Ég kom niður Aðalgöt- una og sá að eitthvað var að ske sunnan við Tjamargötu. Á þessum tíma var brú yfir rás- ina á Hafnargötunni en hún var þröng og fát hefur komið á dátana þegar þeir sáu brúna með þeini afleiðingum að tveir breskir trukkar lentu ofaní rás- inni. Þeir komust síðan upp úr henni og héldu áfram“, segir Ólafur en togarasaga íslend- inga er honum líka ofarlega í huga þegar hann lítur yfir far- inn veg. „Ég var stýrimaður á togaran- um Júní frá Hafnarfirði. Um sumarið 1946 fór Andrés Gunnarsson vélstjóri með okkur yfir til Englands. Með- ferðis hafði hann módel af skuttogara sem hann hafði hannað. Þetta var löngu áður en fyrsti skuttogarinn var byggður. Hann fór til að kynna uppfinningu sína á Englandi. Bretamir hlustuðu á hann en vildu síðan ekkert meira við hann tala, ekkert frekar en Is- lendingar. Tveimur til þremur árum síðar byggðu Bretar fyrsta skuttogarann en á sama tíma voru íslendingar að láta smíða 30 síðutogara, svokall- aða nýsköpunartogara. Ég lét síðan byggja fyrsta bátinn sem notaði skuttog, Baldur. Það var árið 1961 en fyrsti skut- togarinn var ekki keyptur til íslands fyrr en 1969.“ „Eflirminnilegast er upphaf heimstyrjaldarinnar og heim- styrjöldin síðari. Styrjöldin tengdist hinu daglega líft því ég fylgdist mjög náið með fréttaflutningi Ríkisútvarps- ins af framgangi slríðsins. Hernámið á Islandi og vera hersins hér á landi er mér líka ofarlega í huga þegar ég lít ylir farinn veg“, segir Magn- ús. Heklugosið 1947 og gos- ið í Vestmannaeyjum 1973 þykur honum standa upp úr af innlendum vettvangi. Ut- færsla fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur og stofnun lýð- veldisins 1944 telur liann vera merkustu og heillarík- ustu viðburði aldarinnar. „Eitt mesta framfarasporið í Vatns- leysustrandarhreppi var þegar hitaveitan var leitkl á strönd- ina“, segir Magnús. Ingibjörg Danivalsdóttir í Njarðvík: Hvalaganga í Njarðvík Ingibjörg S. Danivalsdóttir fæddist árið 1913 á bænum Litla-Vatns- skarð í Laxár- dal í Vestur Húnavatns- sýslu. Hún ________________ kom árið 1933 í Njarðvíkurnar og var þá vinnukona á Völlum hjá Valdimari Bjömssyni, útgerð- armanni og Sigríði Ámadóttur konu hans. „Ég minnist þess þegar stóra hvalagangan var í Njarðvík- unum. Ég gleymi því aldrei þegar hvalina rak upp í fjöm. Ég hef aldrei séð brjálaðara fólk en þegar þetta gerðist. Karlamir misstu alveg stjóm á sér og skutu hvalina. Ég hefði getað grátið þegar ég horfði á þetta. Ég smakkaði aldrei hvalkjötið en það var mikið notað því jretta var geysimik- ill matur. Flestar minningar frá veru minni hér í Njarðvík eru góðar og sérstaklega vil ég þakka fólkinu sem hér býr og hefur búið“, segir Ingi- þjörg. Einar Júlíusson í Sandgerði: Hjálpaði veiku fólki í Sandgerði Einar Júlíus- son fæddist 29.12 1919 í Bursthúsum í Hvalsnes- hverfi og ólst þar upp. Hann lluttist í Sandgerði árið 1944 og hefur alið manninn þar síð- an. Hann byggði m.a. húsið Mæðarenda í Sandgerði og Túngölu 14 þar sem liann bjó í mörg ár. Einar hefur fengist við eitl og annaö í gegnum tfðina en hann starf- aði lengi sem sjómaður. Síð- ar fékk hann þann starfa að sprauta veikl fólk í Sand- gerði. „Mér er el'st í huga þegar ég hjálpaði veiku fólki í Sand- gerði. Þegar pensilínið kom lil sögunnar lékk ég þá at- vinnu að sprauta fólk því ég hafði fengið tilsögn í því og það spurðist út. Það er hins vegar enginn sérslakur at- burður sem stendur uppúr í minningunni."

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.