Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 30.12.1999, Síða 25

Víkurfréttir - 30.12.1999, Síða 25
Himmi segist hafa veríð orðinn þreyttnr á þessu lífi sem luinn lifði en honumfannsthann ekkigeta losnað.„Égvildi ekki lifasvona.Áyfirborðinu var alltí lagi. Ég passaði alltafuppá að vera vel kkedd- ur og koina velfyrír útá við en sálartetrið var í skemu ástandi. Ég var orðinn hrœddur við sjálfan migþvíégvissi oftekki hvað égvaraðgera ogvar orðinn luettulegur sjáljum mér.“ ember 1995 stofnuðu þau frí- kirkjuna Frelsið. „Hjörtu okkar hafa alltaf verið á götunum. Það er frábært að sjá fagnaðar- erindið virka á meðal almenn- ings. Jesús eyddi tíma sínum líka á meðal fólksins. Hann sagði að það væru ekki heil- brigðir sem þyrftu læknis við, heldur þeir sem væru sjúkir. Við förum út á meðal fólksins vegna þess að það eru svo margir sem þora ekki að koma í kirkju. Þeim finnst þeir vera óverðugir og síðan er það skömm yfir hlutum sem fólk hefur lent í og fmnst sem þeir eigi ekki rétt á að koma. Það er auðvitað ekki rétt“, segir Hilm- ar með áherslu. „Jesús kom til að hjálpa okkur að lifa þessu lífi, hann ætlaði okkur aldrei að lifa án hans.“ Sókn gegn sjálfsvígum Sjálfsvíg ungs fólks er þjóðfé- lagslegt vandamál sem ekki ber mikið á í umræðunni. Sókn gegn sjálfsvígum er kristilegt hjálparstarf sem er rekið á veg- um Frelsisins og Styrk unga fólksins. Tilgangur félagsins er að verjast þeirri vá sem herjar á mannauð Islands. Félagið vinn- ur markvisst að atriðum sem tengjast eða valda sjálfsvígum, s.s. fíkniefnaneyslu, áfengis- neyslu, einelti o.s.frv. Þeir sem misst hafa ástvini vegna sjálfs- víga geta líka leitað sér hjálpar og fengið stuðning hjá félag- inu. „A tímabilinu 1980-1990 hafi verið 247 dauðaslys í um- ferðinni og við eyðum millj- örðum í að vama fleiri slysum. Við byggjum brýr og vegi en á sama tíma eru 324 sjálfsvíg skráð á Islandi. Hvar erum við að byggja brýr fyrir lífsgöngu fólks?“, spyr Hilmar og bætir við að nauðsynlegt sé að al- þingismenn móti afgerandi stefnu varðandi sjálfsvt'g ungs fólks sem er þjóðfélagslegt vandamál. Sumir þurfa bara klapp á öxlina Um tíma hefur Sókn gegn sjálfsvígum rekið Gen-X Café í miðbæ Reykjavíkur. Kaffrhús- ið er opið á föstudögum frá kl.23-4 og þangað getur fólk komið og fengið fríar veitingar. Hilmar segir að kaffihúsið sé nánast fullt af fólki um hverja helgi. Starfsmenn á vegum Frelsisins og Sókn gegn sjálfs- vígum em á ferð í miðbænum á nóttunni um helgar og boða fagnaðarerindið og kynna starf- semi samtakanna. „Sókn gegn sjálfsvígum hefur ekkert að gera með hvort sá sem er hjálp- ar þurfi er kristinn eða ekki. Ef fólk vill ekki fá þess konar að- stoð þá er það í lagi, við getum hjálpað hvort sem er. Það þarf ekki alltaf hetju til að bjarga líft. Það sem skiptir mestu máli er að fólk sé vakandi fyrir líðan annarra. Sumir þurfa bara klapp á öxlina“, segir Hilmar. Samnýtum krafta okkar Sókn gegn sjálfsvígum hefur átt gott samstarf við Rauða krossinn, Lögregluna, Félags- þjónustuna, Utideildina og KFUM og K en þessir hópar em allir með starfsemi í mið- bænum um helgar. „Við skipt- um vöktum á milli okkar og höfum góðar yfirsýn yfir það sem er að gerast í miðbænum. Vtð viljum samnýta krafta okk- ar og gera starfið eins áhrifaríkt eins og kostur er“, segir Hilm- ar. Guð er bara einni bæn í burtu Á veturna fara Hilmar og Linda ásamt öðrum úr Sókn gegn sjálfvígum í alla fram- haldsskóla höfuðborgarinnar. Hann segir að skólarnir séu fullir af ungu fólki með spum- ingar sem það hefur ekki feng- ið nein svör við. Hann segir það einnig hafa komið í ljós að meirihluti nemenda þekkir ein- hvem sem hefur framið sjálfs- víg eða að þau hafa reynt það sjálf. „Tilgangurinn með þess- um heimsóknum er að svipta hulunni af þessum umræðunt og þeir sem eiga í eifiðleikum vita þá að þau em ekki ein. Við emm ekki að kenna þeim neitt nýtt í rauninni, heldur emm við að leggja áherslu á að Guð sé til staðar og að það sé gott að leita til hans. Slagorðið sem við notum er Guð er bara einni bæn í burtu. Þau eiga þetta slagorð í hjarta sínu og muna þá eftir þessu þegar þau lenda í erfiðleikum. Trúin getur flutt fjöll. Mér finnst því mikilvægt að benda krökkunum á að í stað þess að taka eigið líf þá geta þau leitað í mátt bænar- innar.“ Hilmar segir að krakkamir hafi alltaf tekið vel á móti og þeim og tekur fram að grundvöllur starfsins sé kristilegur en þau beri hann fram á nútímalegan hátt og reyni þannig að höfða til krakkanna. „I heimsóknum okkar í skólana vekjum við upp umræður og danshópur á okkar vegum sýnir dans og drama um sjálfsvíg sem vekur gífurleg viðbrögð. Við notum mál sem krakkarnir skilja og erum með boðskapinn inní því“, segir Hilmar. IVtikill árangur Á vegum Frelsisins er einnig rekin símalína. Ráðgjafar eru við símann allan sólarhringinn og eru tilbúnir að aðstoða þá sem eiga erfitt og þá sem eru í þann veginn að taka eigið líf. Hilmar segir að eitt sfrntal geti skipt sköpum en síminn er 577-5777. „Við sjáum mikinn árangur af starfinu og krakk- amir vita orðið um kaffihúsið okkar, símalínuna og þekkja okkur þegar við erum á ferð- inni niður í miðbæ um helgar. Hugsjón okkar er að geta verið með heimili og aðstöðu þar sem fólk getur fengið aðhlynn- ingu og hjálp. Þannig gætum við veitt aðgengilegri aðstoð fyrir þá sem em í sjálfvígshug- leiðingum", segir Hilmar. Viðtal: Silja Dögg Gunnarsdóttir Ljósmyndir úr einkasafni Þú getur hjálpað einhverjum frá hengiflugi hörmunga með því að taka eftir hættumerkjum á frumstigi. 1. Meiriháttar breytingar á eðlilegri liegðun: Einhver sem er venjulega mannblendin verður ómannblendin og þungbúinn. Góöur nemandi verður trassi i námi. 2. Svefnvandi: Viökomandi seftir á óreglulegum timum, slen og þreyta yfir daginn, óstýrilátur og eiröarlaus á næturna. 3. Breyttar matarvenjur: Óhófleg megrun eða ofát. 4. Sinnuleysi og orkuleysi: Einstaklingur virðist skyndilega missa löng- un fyrir lifinu. sérstaklega í þeim hlutum sem viðkomandi hefur liaft unun af. 5. Skyndileg hamingja eftir langvarandi þunglyndi: Getur þýtt tippgjöf fyrir vandamálum og stefnt aö róttækum úrlausnum, aö eyöa sjálfum sér. 6. Árásarhneigð og yfirgangur: Skapbræðisköst, harkaleg likamlegur ofsi og ofbeldi viö minnstu ögrun. 7. Áhættusamari hegöun: Slagsmál algengari. taka óeðlilega áhættur t.d. í umferðinni. 8. Lauslæti: Getur verið liróp eftir athygli. „Ég þarf ástúð og ástæðu til þess að lifa." Þetta á sérstaklega við um kvenfólk. 9. Slen, þáttökuleysi og notkun vímuefna: Oft er viökomandi að segja, „ef einhveijum er annt um mig þá stoppa þati mig." Margir sem reyna sjálfsvíg eru efablandnir um verknaðinn og erti leitandi livort einhverj- um finnist annt um þá og komi þeim til hjálpar. 10. Vanræksla á útliti: Getur verið lágt sjálfsálit. 11. Tíöur grátur: Getur verið merki um aö viðkomandi liöndli ekki leng- ur kringumstæður sinar. 12. Sjálfseiðingar talsmáti: „Mín verður livort sem er ekkert saknað" eða „ég vildi að ég myndi sofna og aldrei vakna aftur” eöa „þeir munu sjá eftir mér þegar ég er horfinn." Takið svona hegðun alvarlega. Þetta getur veriö liróp eftir HJÁLP! Hvernig aöstandendur geta hjálpað 1. Verið athugul: Takiö eftir meirhátta breytingum á hegðun. Ungt fólk er sérstaklega berskjaldað og auðsæranlegt við mikil umrót á kringum- stæðum sínum, t.d. fráfall fjölskyldu- eða ástvinar, ryskingar og rifrildi heimafyrir, slit á nánum samböndum. Treystu eðlisávisun þinni! 2. Verlu góður hlustandi: Reyndu aö fá viökomandi aðila til þess að tjá sig um vandamálið. Þetta er ekki alltaf auðvelt sérstaklega þegar við- komandi er hlédrægur og óframfærinn. Reyndu að opna fyrir samræö- ur t.d. „Ég hef tekið eftir því að þú liefur ekki veriö þú sjálf/ur undanfar- ið. Get ég eitthvað hjálpaó þér?" Ekki gera lítið úr vandanum, „þetta er nú ekki svona slæmt" Ekki bregðast viö með dómhörkti eða liljóma hneykslaður, jafnvel þó þú sért það! Vertu jákvæöur, uppbyggjandi og lika beinskeyttur. Spurðu t.d. „Iiefur þú reynt sjálfsvig áðtir?" „Hvað stoppaði þig?" „Hvað var þaö sem fékk þig til þess að vilja halda áfram að lifa?" Þegar viðkomandi svarar, þá umoröaöu svariö aftur til hans og leyfðu honum að fylla inní eyöurnar til að svala skilningsþörf þinni. Þetta sýnir einnig aö þú sért virkilega aö hlusta og sýnir umhyggju. Þetta hjálpar einnig viðkomandi að raóa hugsunum sínum rétt og fylgja þeim að rökréttri niðurstöóu. Þakkaöu einstaklingnum fyrir að treysta þér. 3. Reyndu að hjálpa vipðkomandi að leyta jákvæðrar lausnar. Hjálpaðu þeim að leysa úr einfaldari hliðum vandans fyrst. Hjálpa þeim aö sjá að það sé til einfaldari lausn heldur en að taka sitt eigið líf. Þaö er enginn lausn, heldur skilur það eftir sig slóð nýrra vandamála fyrir aðra, og er sóun á dýrmætu lífi! Bentu á aö vandamálin eru stundleg, það er liægt aö vinna úr þeim, en sjálfsvig er varanlegt, Eða sjálfsvíg er varanleg lausn á skammtíma vanda. 4. Fjarlægðu öll hættuleg vopn eöa lyf úr liúsinu. Sjálfsvig hafa meiri aðdrátlarafl þegar ráö eru til staðar. Ékki draga í efa Itvað manneskja i svona ástandi getur framkvæmt. 5. Ekki skilja viökomandi mikið eftir einan. Láta viðkomandi ekki kom- ast upp með iðjuleysi. Hvetja hann til að taka þátt í einhverju t.d. nám- skeiði. 6. Hvettu vin þinn að leita sér hjálpar. Ekki skammast þin fyrir að benda á einhvern sem er jafnvel hæfari til að hjálpa t.d. prestur/pastor, kennari, eða ráðgjafi. Spuröu hvort þaö sé einhver sem viökomandi treysti sér til þess aö tala viö, eða leita faglegrar hjálpar fyrir sig. Mörg ungmenni sem reynt hafa að fyrirfara sér eru mjög þakklát í dag fyrir að hafa verið stöðvuð. Erfiðleikar sem virðast óyfirstígan- legir í dag eru viðráðanlegir á morgun með HJÁLP. Benda má fólki sem vilja gerast félagsmenn og stuðnings aðilar Sókn gegn sjálfsvígum aö hringja í sima 533-1177, fax 533-1770, netfang: freedom@centrum.is Ársgjald er 1.500 kr. á ári. Fyrir þá sem vilja greiða ársgjald strax eða veita fjárstuðning þá er bankanúmer: 0111-05-000277, Landsbanki ís- lands, Austurstræti 11. Reykjavík Að lokum vilja Hilmar og Linda segja: „Mundu að Guð er Bara einni Bæn í Burtu, undir hvaða kringumstæðum sem er!“

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.