Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 20.01.2000, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 20.01.2000, Qupperneq 4
^Xatvmnulíf ■ Miklar framkvæmdir hjá Samherja hf,Fiskimjöli og Lýsi í Grindavík: Verksmiðja Fiskimjöls og Lýsis var reist árið 1947 en sameinaðist Samherja í byrj- un árs 1997. Síðan þá hefur fyrirtækið lagt út um 100 millj. kr. á ári í endurbætur á verksmiðjunni, því stjórn- endur þess hafa lagt mikla áherslu á að fjárfesta í bestu fáanlegu tækjum og tólum til að auka afköstin og draga úr lykt frá verksmiðjunni. Hafnarframkvæmdirnar í sumar hafa gríðarlega mikið að segja fyrir fyrirtækið að sögn Oskars Ævarssonar rekstrarstjóra og hann segist eiga von á auknu magni inn í verksmiðjuna í kjölfarið. Stóraukin afköst og lítil bræðslulykt Markaðir fyrir mjöl og lýsi hrundu Veltan hjá fyrirtækinu hefur ver- ið 1000-1100 milljónir síðustu árin en Oskar segir að árið 1999 hafi verið dapurt í bræðslunni. „Markaðimir fyrir mjöl og lýsi hrundu fyrripart ársins og loðnuveiðin brást algerlega í sumar. Mjölið hefur hækkað að- eins í verði í haust en lýsið stendur í stað. Þegar afurða- verðið hrynur svona þá hefur það víða áhrif, bæjarfélagið fær minna í sinn hlut í formi afla- gjalda. Það hefur einnig bein áhrif á laun sjómannanna og þar með útsvar til bæjarins“, segir Oskar. Loðnuveiðin brást í sumar „Við höfum verið að taka á móti 60-80 þúsund tonnum í verk- smiðjuna á ári. Eftir síðustu vetrarvertíð vorum við búnir að taka á móti 45 þúsund tonnum þannig að það stefndi í metár." Óskar sagði loðnuveiðin hafa brugðist algerlega í sumar en að þeir hefðu fengið töluvert af síld í haust sem hefði bætt loðnu- missinn að einhverju leiti. í frystihúsinu fer fram frysting á loðnu og loðnuhrognum fyrir Japansmarkað og á síðustu ver- tíð fóm 950 tonn af loðnuhrogn- um í frystingu. Að jafnaði eru um 20 starfsmenn í kringum landvinnsluna og um 10-15 sjó- menn frá Grindavík á skipum sem fyrirtækið gerir út. „Við bætum við um 30 manns yfir vetrarvertíðina í loðnu og hrognafrystinguna, en vertíðin stendur yfir frá febrúar og fram í mars“, segir Óskar. Betri nýting á hráefni „Við höfum verið með stans- lausar endurbætur síðan Sam- herji kom inní reksturinn 1997. Við byrjuðum á að koma fyrir nýjurn eimingartækjum, en með þeim næst mun betri nýting úr hráefninu. Tækin eru notuð til að eima vatn úr soðinu af loðn- unni en í því eru þurrefni sem við nýtum. Þetta er ódýrasta að- ferðin við eimingu á soði. Áður fór soðið að hluta til í sjóinn. Á síðasta ári keyptum við nýja pressu og sjóðara til að auka af- köstin enn frekar“, segir Óskar og bætir við að aukin afköst skapi mikla hagkvæmni. „Af- köstin hafa aukist um 400 tonn á sólarhring. Við vorum með um 600 tonnum á sólarhring áður en við fengum nýju tækin. Nýtingin á hráefninu er líka orðin allt önnur, það fer ekkert frá okkur óunnið. Hvert pró- sentubrot sem hægt er að bæta nýtinguna eru miklir peningar Senda lyktina tll Keflavíkur Bræðslulyktin hefur verið vandamál hingað til, en fyrir- tækið hefur brugðist við því m.a. með því að setja upp lykt- areiðandi kerfi. Kerfið byggir á því að allri gufu sem kernur frá suðu hráefnisins er safnað sam- an og er brennd í olíukötlum. „Við erum að láta reisa hráefn- istanka en áður voru hráefnis- geymslur og þrær opnar og því barst lyktin öll út í umhverfið. Lyktin kom samt aðallega frá gufunni sem kemur frá suðunni. Það vandamál verður fljótlega úr sögunni því við emm einnig að láta reisa 35 metra háan skor- stein sem er ætlað að lyfta lykt- inni yfir byggðina í Grindavík og senda hana til Keflavíkur", segir Óskar dularfullur á svip. Óskar segir það þó vera fyrst og fremst gæði hráefnisins sem skipta máli varðandi lyktina frá verksmiðjunum. „ En oft getur verið erfitt að ráða við það t.d. þegar veiðar ganga illa og skip- in eru marga daga að fá afla, eða yfir sumarið þegar loðnan er sem viðkvæmust og skipin þurfa að sigla langa leið í land. Ekki er hægt að neita að taka á móti skemmdu hráefni, eða láta skipin henda því í sjóinn aftur, það er bannað", segir Óskar. Hafnarframkvæmdir hafa mikið að segja Óskar segir það ekki hafa verið sjálfgefið að Samherji yrði í örindavík til frambúðar. „Þcgar Samherjamenn komu til Grindavíkurl997 var það alltaf stór spuming hvað yrði gert í hafnarmálunum. Þess vegna voru menn tregir til að setja stórfé í fyrirtækið því þeir sáu ekki framá hvenær yrði hægt að nýta fjárfestingarnar að fullu. Það var ekki fyrr en á þessu ári sem að skipin okkar komust hingað með góðu móti, eftir að höfnin opnaðist fyrir stærri skip drekkhlaðin. Þetta hefur gnðar- lega mikið að segja bæði fyrir fyrirtækið okkar og ekki síst höfnina. Eg gat aldrei boðið í skip sem vom að sigla héma hjá eða fengið skipti við aðrar verk- smiðjur þegar þannig stóð á, eins og stundum er gert. Það vildu engin önnur skip en skipin okkar koma héma inn. Eg von- ast til að þessar breytingar hafi það í för með sér að við getum tekið mun meira magn í gegn en áður“, sagði Óskar að lokum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.