Víkurfréttir - 02.03.2000, Side 11
1000 ára afmæli kristnitöku á íslandi
Hefðbundið skólastarf í Njarðvíkurskóla var brotið upp dagana 22.-24. febrúar. Þá unnu nem-
endur þemaverkefni um kristnitökuna á íslandi. Þemadögunum lauk síðan með stórglæsilegri
sýningu á sal skólans. Fjölda gesta mætti á sýninguna og gaman var að sjá hversu mikla vinnu
krakkarnir höfðu lagt í verkefnin sín.
II
Miídii árangur af starfi j
Leitarstöðvarinnar
Nú þegar yfir stendur
leit að krabbameini í leg-
hálsi og brjóstum
kvenna á vegum Leitar-
stöðvar Krabbameinsfé-
lags íslands skal á það
bent að á s.l. árum hefur
árangur af starfmu vakið
heimsathygli. Allt skipu-
lag og stjómun er með
þeim hætti að dánartíðni
vegna leghálskrabbameins
hefur lækkað um 75% og ný-
gengi um 67%.
Af konum sem greinast með
þennan sjúkdóm eru um 70%
á fyrsta stigi og þar af fjórar
af hverjum fimm á svonefndu
hulinstigi þar sem búast má
við fullum bata með einfaldri
aðgerð, keiluskurði, sem ekki
skilur eftir sig varanlegan
skaða. Ef nýgengi væri það
sama og í upphafi leitarstarfs-
ins má ætla að 150 fleiri kon-
ur hefðu látist af völdum sjúk-
dómsins. Tíðni forstiga sjúk-
dómsins fer þó vaxandi, eink-
um meðal yngri kvenna og
virðist þróunarferill þessa
krabbameins mun hraðari en
áður var ætlað.
Sökudólgurinn er í 95% til-
fella talin vera human-
papiloma veira sem verið er
að vinna bóluefni gegn.
Væntanlega munu líða ára-
tugir uns árangurs er að vænta
af því starfi. A meðan er
greining forstiga með legháls-
stroki okkar leið til að spoma
við nýgengi leghálskrabba-
meins.
Brjóstakrabbamein er algeng-
asta krabbamein hjá konum
og nýgengi þess hefur heldur
aukist á síðustu árum, sum-
part vegna betri greininga-
tækni og sumpart vegna raun-
verulegrar aukningar á sjúk-
dóminum. Lífslíkur eru
þeim mum betri því fyrr
sem sjúkdómurinn upp-
götvast. Þess vegna hef-
ur brjóstamyndataka
öðlast stöðugan sess í
því forvamarstarfi sem
beint er að brjósta-
krabbameini. Til þess að
auðvelda konum að
mæta í brabbameinsleit hefur
hún verið færð nær fólkinu á
hverjum stað.
A Heilsugæslunni okkar fer
nú slíkt starf fram og hafa um
1600 konur af svæðinu fengið
bréf send í pósti heim til sín.
Við hvetjum nú ykkur, Suður-
nesjakonur, að bregðast rétt
við og panta ykkur þegar
tíma. Leitinni lýkur þann 15.
mars og þa kann að henda að
einhver hafi orðið of sein. Við
uppgötvum á hverju ári breyt-
ingar sem hægt er að lækna af
því að viðkomandi kom á
réttum tíma.
Vertu ekki of sein!
Kveðja, starfsfólk H.S.S.
íðir eiga heima í TVF
m ísíma 421 4717 eða 898 2222
Maður vikunnar
Hjónarúmið
er uppáhalds
skemmtistaðurinn
Maður vikunnar að þessu sinni er Eggert Lárusson. en hann
hefur staðið í ströngu að undanfömu við að moka snjó fyrir
bæjarbúa Reykjanesbæjar.
Nafn: Eggert Lárusson
Fæddur livar og hvenær: 16. september 1934, Blönduósi
Stjörnumerki: Meyja
Atvinna: Flokksstjóri hjá Reykjanesbæ
Laun: Mættu vera betri
Maki: Hjördís Líndal
Börn: Sigríður, Soffía, Páll, Þröstur, Jónatan
Bifreið: Isuzu Double Cap 1997 *
Besti bfll: Sami
Versti bfll: Skodi
Uppáhaldsmatur: fslenska lambakjötið
Versti matur: söltuð hvalshúð
Besti drykkur: íslenska vatnið
Skemmtilegast: góðar stundir með tjölskyldunni
Leiðinlegast: fá ekki að elda
Gæludýr: engin
Skemmtilegast í vinnunni: þegar allt gengur upp
Leiðinlegast í vinnunni: þegar vinnufélagamir gleyma
brosinu heima
Hvað kanntu best að meta í fari fólks: heiðarleika
En verst: undirferli
Draumastaðurinn: Grímstunguheiði
Uppáhalds líkamshluti á konuni/körlum: allir líkamshlutar
Fallegasta kona/karl fyrir utan niaka: afastelpumar mínar
Spólan í tækinu: Álftagerðisbræður
Bókin á náttborðinu: Hústafla heilbrigðinnar frá 1856
Uppáhalds blað/tímarit: Lifandi vísindi
Besti stjórnmálamaðurinn: allir bestir
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Fréttir
Iþróttafélag: Ekkert sérstakt
Uppáhaldskenimtistaður: hjónarúmið
Þægilegustu fötin: sundskýlan
Framtíðaráform: Njótalífsins
Spakmæli: Farðu hægt svo þú komist áfram
11