Víkurfréttir - 21.09.2000, Side 14
■ Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
Kír fyrir börn og unglinga
í vetur eins og í fyrra, verður
starfandi kór við Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar. Öllum
nemendum í 3. til 10. bekk í
grunnskólum Reykjanesbæjar
er velkomið að koma í kórinn.
Æfingar verða á fimmtudögum
kl.17 - 18.30 á sal tónlist-
arskólans við Austurgötu.
Innritun verður á skrifstofu
skólans til og með
miðvikudeginum 27. septem-
ber. Skrifstofan er opin alla
virka daga nema miðvikudaga
frá kl.13-17 en miðvikudaga
frákl.9-13.
Kórgjaldið fyrir veturinn er kr.
4000 og greiðist við innritun,
en þeir sem eru nemendur við
tónlistarskólann greiða ekki
kórgjald. Kór Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar tók þátt í nor-
rænu kóramóti s.l. vor, NOR-
BUSANG, sem haldið var í
Reykjavík. Þar var sungið víðs
vegar um borgina, en hápunk-
tur mótsins voru tónleikar í
Laugardalshöll þar sem allir
kórarnir sungu sameiginlega
við undirleik Sinfóníu-
hljómsveitar Islands.
Stjómandi kórs TR er Hjördís
Einarsdóttir. Kórstarf er mjög
skemmtilegt og þroskandi og
eru börn og unglingar í
Reykjanesbæ eindregið hvattir
til að taka þátt í kór
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Haraldur Árni Haraldsson,
skólastjóri
Sigmundur Eyþórsson slökkviliðsstjóri B.S, Harry Birgersson
aðalvarðstjóri í Lindesberg, Zamo Kristjensson slökkviliös-
stjóri og Jón Guðlaugsson, varaslökkviliðsstjóri BS.
Tveir slökkviliðsmenn frá
Lindesberg í Svíþjóð heimsóttu
Brunavamir Suðumesja í síð-
ustu viku. Markmið heimsókn-
arinnar var að auka samskipti
og samstarf slökkviliðanna,
meðal annars m.t.t. þjálfunar-
mála.
Mennirnir tveir dvöldu á ís-
landi í þrjá daga og notuðu
tímann til að kynna sér starf-
semi slökkviliða víða um land,
m.a. á Akureyri, í Vestnranna-
eyjum og Reykjavík. Þeir
skoðuðu m.a. útkallsstyrk,
vinnufyrirkomulag og þjálfun-
armál.
Jón Guðlaugsson, varaslökkvi-
liðsstjóri Brunavarna Suður-
nesja, vonar að þessi heimsókn
sé upphaf á frekara samstarfi
liðanna. í Lindesberg er rekinn
skóli, sem vel er útbúinn til
verklegra æfinga, en slökkvi-
liðsmenn víða úr heiminum
sækja hann. „Við vonumst til
að geta sent strákana okkar í
skólann til þeirra í þjálfun og
við sömuleiðis tekið á móti
þeirra mönnum. Þetta er mjög
spennandi verkefni sem býður
upp á ýmsa möguleika", sagði
Jón.
Plúsferðir/Úrval Útsýn, Hafnargötu 15,Keflavík - Sími: 585 4250 - Fax: 585 4260
j Fv. Jón Gröndal, umferöaröryggis
j fulltrúi Suðurnesj«, Ragnheiður
Davíðsdóltir frá VÍS og Skúli Þ.
Skúlason, fuíltrúi kaupfélagsstjóra
hjá Kaupfélagi Suðurnesja.
og kvenna!
Frábært tækifæri fyrir
saumaklúbbana/karla
Vikuferðir til Mallorca
4., 11eða 18. október.
Verð frá kr: 41.350.- á mann,
m.v. 2 í studeo íbúð m. flugv.sköttum.
Nánari upplýsingar á söluskrifstofu
Plúsferða í Keflavík.
Ungbarnaeftirlit Suðurnesja
fékk þrjá bamabílstóla afhenta
sl. þriðjudag. Stólana á að nota
til að sýna foreldrum tökin við
að koma ungbami fyrir í fjöl-
skyldubílnum. Ný könnun um-
ferðaröryggisfulltrúa við sex
leikskóla á Suðumesjum sýnir
að 12-23% foreldra gæta ekki
öryggis bama sinna á fullnægj-
andi hátt.
Vátryggingafélag íslands gaf
ungbamaeftirlitsdeild Heilsu-
gæslu Suðurnesja þrjá ung-
barnastóla og Samkaup gaf
deildinni dúkkur til að nota í
sýnikennslu. Stólunum verður
komið fyrir í Reykjanesbæ og í
Grindavík en einn þeirra verð-
ur notaður til sýniskennslu í
öðrum byggðalögum á Suður-
nesjum.
Að sögn Jóns Gröndals er mis-
brestur á að böm séu í bílstól
en hann leggur áherslu á að
fólk gæti fyllsta öryggis bama
sinna. Samkvæmt nýrri reglu-
gerð er nú 10 þús. kr. sekt við
að hafa böm laus í bílnum.
EIGNAMIDLUN SUDURNESJA
Sigurdur Ragnarsson, fasteignasali-Bódvar Jónsson, sölumaóur
Hafnargötu 17, Keflavík - Simi 421 1700
Fax 421 1790 - Vefsíða www.es.is
Til sölu er rekstur sólbaðsstofu í kjallara
Flughótels í Keflavík. Mjög góð aðstaða er á
staðnum s.s. líkamsræktartæki, nuddpottur,
gufubað, 2 nýir 10 mín. sólbekkir og fleira.
Verð 2.900.000.-
Allar nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu
Eignamiðlunar Suðurnesja.
NÝTT TVF KEMUR ÚT í KVULDN
FERÐIR
14