Víkurfréttir - 21.12.2000, Blaðsíða 2
Ljósahús
Reykjanesbæjar
valið á morgun!
U<jtt - U<jtt - tí^tt
Nú bakftí) br»MÍ 09 s^l^l
SS^kT
I
09 ^ott.
LOPEi
okkdr.
Hífcíð árvn!
nf ý*favörv{M. *g*J*
■ fT..fÆi
% öpíJ 09.30-
tl «)U
til jóU
PIZZA
LOPEZ
ARSOL
Heiðartúni 2c • Garði
Sími 422 7935
£e*uhun uukhlpÁwúwun ohkan,
íedu óJti/i um (jleáilecf, jól
Oý. jjCMœld á uýju ÓAi.
tPöhliwn IftuílceAal máttöhu>i.
StaAji{ólk 10-11 Kejlcuuk
Munið að skila inn svörum
í jólaleik Víkurírétta og BT
f síðasta lagi annað kvöld
Vinningar afhentir á Porláksmessu!
A morgun, föstudag 22. des. kl. 16 verður greint frá vali á
„Ljósahúsi" Reykjanesbæjar. Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu
bæjarins hefur borist fjöldi ábendingaenda hafa jólaskreytingar
aldrei fyrr verið svo veglegar í Reykjanesbæ. Úrslitin í samkepp-
ninni verða kunngjörð í húsakynnum MOA í Kjarna.
Þingmenn vilja flýta lagningu
Suðurstrandarvegar:
Tvöföldun Brautapinnan
er forgangsatriði
segir Hjálmar Árnason
Hægt er að hefja frain-
kvæmdir við Suður-
strandarveg, á milli
Þorlákshafnar og Grindavík-
ur, árið 2003 til 2004 en áður
hafði verið rætt um tímabilið
frá 2007 til 2010.
Þetta var meðal þess sem fram
kom á kynningarfundum sem
framsóknarþingmennirnir
Hjálmar Arnason, Guðni
Ágústsson og ísólfur Gylfi
Pálmason héldu nýverið í
Grindavík og Þorlákshöfn um
fyrirhugaðan Suðurstrandar-
veg. Samkvæmt vegaáætlun er
kostnaður við lagningu vegar-
ins talinn verða á bilinu 1000-
1100 milljónir króna og mun
hann tengja saman hið nýja
Suðurkjördæmi.
Ymsir hafa þó bent á að brýnna
sé að tvöfalda Reykjanesbraut-
ina og tryggja umferðaröryggi í
Þrengslunum og á Hellisheiði,
t.d. með lýsingu.
Hjálmar Ámason segir að verið
sé að skoða ýmsar leiðir varð-
andi framkvæmdir við Suður-
strandarveg og meðal þess er
að hefja framkvæmdir árið
2003.
„Megináherslan er hins vegar á
að tvöfalda Reykjanesbrautina
af öryggissjónarmiðum og það
er forgangsatriði", sagði
Hjálmar í samtali við visi.is.
Hann segir að urn tvö aðskilin
mál sé að ræða og Suður-
strandavegur tengist kjör-
dæmabreytingunum þar sem
hann tengi nýja kjördæmið
saman.
Áhugahópurinn um málefni
Reykjanesbraut mun efna til
borgarafundar fljótlega í janúar
á nýju ári. Undirbúningur að
honum er hafin og hefur verið
haft samráð við helstu aðila
sem tengjast málinu.
Dæmdun í
18 ára
fangelsi
fyrip mopð
og nauðgun
Rúnar Bjarki Rík-
harðsson var í dag
dæmdur í 18 ára fang-
elsi fyrir manndráp og nauð-
gun í Kellavík í vor. Hann var
cinnig dæmdur til að greiða á
fimrntu milljón króna í
skaðabætur og launa verjanda
síns og réttargæslumanna að-
standenda stúlkunnar sem
hann myrti.
Rúnar var dæmdur til að greiða
sambýlismanni stúlkunnar sem
hann myrti 2,5 milljónir króna í
skaðabætur og foreldrum hennar
hálfa milljón hvoru um sig. Enn
fremur er honum gert að greiða
laun verjanda síns og réttar-
gæslumanna foreldra og sam-
býlismanns stúlkunnar, sú
upphæð nemur á aðra milljón
króna.
Samkaup hf.
og Staðarborg
í Grindavíh
sameinast
Staðarborg ehf. sem
rekið hefur verslunina
Samkaup í Grindavík
(áður Staðarkaup) og versl-
unina Miðbæ í Keflavík
hefur nú sameinað rekstur
sinn rekstri Samkaupa ehf.
Samkaup hf. er nú 100%
eigandi þessara verslana en
fyrrum eigendur Staðarborgar
ehf. Omar Jónsson og fjöl-
skylda starfa áfram við rekst-
urinn og eru nú hluthafar í
Samkaupum hf.
I ffétt frá Samkaupum segir að
sameining þessi sé gerð með
það fyrir augum að ná fram
hagræðingu í rekstri og betri
nýtingu kostnaðar.
Iftgefandi: Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 260 Niarðvik, sími 421 4717, fax 421 2777
- Jmmmu Ritstjóri: Páll Ketilsson, sími 893 3717 pket@vf.is * Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, simi 898 222.2. hbb@vf.is
|| ||yU|% Blaðamenn: Silja Dögg Gunnarsdóttir silja@vf.is • Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir kristin@vf.is,
PRÉTTIR J°nas Franz Sigurjónsson, franz@vf.is Auglýsingagerð: Bragi Einarsson bragi@vf.is • Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is
Útlit, umbrot, litgreining og prentvisttm: Víkurfréttir ehf. • Prentvinnsla: Dddi hf. Dagleg stafræn Útgáfai WWW.vf.ÍS
2
GLEEILEGA
H Á T í Ð