Víkurfréttir - 21.12.2000, Blaðsíða 23
að útbúa jurtafæði til þess að fá
öll þau bætiefni og næringar-
efni sem líkaminn þarf á að
halda.
Gullu líður vel af jurtafæðinu
og vill alls ekki skipta á því og
kjöti. Hún kann listina að elda
þennan mat og jólamaturinn er
gimilegur hjá henni.
Fjölbreyttur matseðill
á jólum
Gulla þarf ekki að vakna
snemma á aðfangadag til að
undirbúa matinn. Hún er svo
skipulögð að maturinn er löngu
tilbúinn og bíður í frystinum
þar til á aðfangadag. Hún ber
þá fram glutensteik með
sveppasósu, fylltar bakaðar
kartöflur, grænmetissalat og
gestasalat. „Eg vakna seint á
aðfangadag, reyni að sofa eins
lengi og ég get!'1, segir Gulla
hressilega. „Dagurinn líður
þannig að við hringjum í ætt-
ingja og heimsækjum þá sem
eiga heima nálægt okkur. Svo
tökum við okkur til í rólegheit-
um og förum alltaf í kirkju
seinnipartinn, ómissandi þáttur
af jólunum. Þegar við komum
heim þá borðum við nieð for-
eldrum mínum, bróður og
langömmu drengja minna.
Gestimir komu alltaf einu sinni
með kjöt með sér því þeir em
ekki jurtaætur eins og við. En
svo spurðu þau eitt sinn hvort
þau mættu ekki líka borða mat-
inn minn á jólum. Auðvitað!
Nú elda ég allan veislumatinn
en pabbi kemur með grænmet-
issalatið því hann ræktar gul-
rætur og býr til einstaklega gott
salat. Langamma Rósa kemur
alltaf með heimabakað laufa-
brauð úr rúgi. Þegar við emm
öll búin að borða þá er gengið
frá og stóra stundin rennur upp
þegar pakkarnir eru opnaðir.
Það er alltaf einn sem fær það
hlutverk að lesa og afhenda
pakkana. Skemmtilegt og vin-
sælt hlutverk á hverjum jólum.
Vanalega eru allir svo saddir
eftir kvöldmat að eftirrétturinn
verður að bíða þar til búið er að
opna pakkana, þá emm við til-
búin að borða hann.“
Handunnar jólagjafir
Gulla er þekkt fyrir annað en
góða matargerð en það eru
jólagjafirnar hennar. Hún er
ekkert blávatn þegar kemur að
þeim. Hún býr þær allar til sjálf
og em þær hverri annarri fall-
egri. Hún bæði sker út í tré og
saumar litlar bútasaumsmyndir.
Hún býr einnig til öll jólakortin
sín. Henni finnst svo gaman að
föndra. „I júní um leið og skól-
inn er kominn í sumarfrí þá
byrja ég að undirbúa jólagjaf-
irnar. Eg fæ alltaf nýja hug-
mynd á hverju ári til þess að
búa til og þetta tekur sinn tfma
en ég er venjulega búin með
allar jólagjafimar í byrjun sept-
ember nema fyrir strákana
mína. Eg bíð venjulega með
þær þar til í desember," segir
Gulla, leyndardómsfull á svip.
'• Sendum Suðurnesjamönnum
bestu óskir um
Gleðileg jól og farsælt komandi ór.
Þökkum viðskiptin ó órinu sem er að líða.
BLUE LAGOON
ICELAND
www.bluelagoon.is
Sími 420 8800
Næsta blað föstudaginn 29. desember
Auglýsingasíminn er421 4717
ttspyrtfjj/jJ jj jJjJ jjjj Kefíavikur
- ' ^ f s tf/? ■ I s s
verajuirfiK YdjJjjm,
Opriutn 28. desember
% kl. io:oo - 22:00
Aííar vörur eru nýjar þ.e.a.s
EKKI frá KR, við seljum oUkar
eigin vörur með okkar merkí.
Opið alla daga frá kí. 10:00 • 22:0
Gamlársdag frá kí. 10:00 • 16:0
M: \ '7|V . ' 1 m v Afgreíðsíusímí
E; fi | Á íK v 1 847 7903
PawtMmxKíi s-ctsbioc
®*UV«Ecrcu!K;;
FACTDfi/
Ps. Örn Árnason íeíkarí
verður við afgreiðslu á
föstudag kl 16:00 ■ 18:00
GLEEILEGA
H Á T í D
23