Víkurfréttir - 29.12.2000, Page 2
Vilja Ijúka tvöföldun 2004
Bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar vill flýta tvö-
földun Reykjanes-
brautar, á milli Reykjanes-
bæjar og Hafnarfjarðar, og
að tryggt verði fjármagn í
vegaáætlun 2001-2004 til að
ljúka þeim framkvæmdum.
Þetta kom fram á fundi bæj-
arstjórnar sl. þriðjudag.
Alyktun þess efnis var einnig
lögð fram á aðalafundi Sam-
bands sveitarfélaga á Suður-
nesjum sem fram fór í október.
I ályktun SSS segir m.a.: „Að-
alfundurinn harmar að enn er
gert ráð fyrir 5 ára fram-
kvæmdatíma og að verktími
verði á ámnum 2002 til 2007.
Aðalfundur SSS bendir á sí-
vaxandi umferð á Suðumesj-
um, ekki síst í tengslum við
flugstarfsemina, sem kallar á
brýna þörf á að fjármagn verði
tryggt til að hrinda vegaáætlun-
um í framkvæmd."
Stálu lyftara
og fóru á rúntinn
Tveir ungir menn tóku
lyftara ófrjálsri hendi
á lokaðri lóð verslun-
arinnar BYKO í Keflavík á
aðfaranótt sl. þriðjudags.
Oku þeir honum í gegnum lok-
að hlið að vömporti og héldu á
vit ævintýranna. Fóm þeir m.a.
bryggjurúnt en fljótlega sást til
þeirra og var lögregla látin vita.
Hún náði þó ekki í skottið á
þeim því drengirnir komust
undan á hlaupum. Málið er í
rannsókn.
U<jtt - tiytt - lijtt
M bdkdS brtivti o«)
' a- ii .. j - -: ■■ ía
j<rtdbr<l<'9iMM
j 'c-y
keítt o<5 ^ott.
n|77A LOPEZ
yrwfib jóUfiz-^vutíi okkar.
f
Híkið úrvnl
xf ýaftivonAwi.
öpii 0MD-
íí nlU (*«<)«
tíl jóU
PIZZA
LOPEZ
ARSOL
Heiðartúni 2c • Garði
Sími 422 7935
Jólaskreytingar í Reykjanesbæ verölaunaöar:
Fallegustu Ijosahiisin í bænum
Borgarvegur 25 var valið
Ljósahús Reykjanesbæjar
2000 af dómnefnd Markaðs-
og atvinnumálaskrifstofu
Reykjanesbæjar en þetta er í
fyrsta sinn sem þetta val fer
fram.
Jólaskreytingar í Reykjanesbæ
eru svo stórfenglegar að
Markaðs- og atvinnumálaskrif-
stofa bæjarins ákvað að nýta
sér það í ferðaþjónustu og hve-
tur aðra landsmenn að koma og
líta á jólaljósin.Efnt var til
samkeppni um Ljósahús
Reykjanesbæjar og bámst yfir
30 tilnefningar.
Hamragarður 9 í Keflavík fékk
2. verðlaun en síðan fengu
fjögur önnur hús viðurkenn-
ingar. Langholt 16 í Keflavík
fyrir skemmtilega skreytingu,
Freyjuvellir 13 fyrir glæsileika
og Túngata 14 í Keflavík fékk
titilinn Jólahúsið. Eigandi
Týsvalla 1 fékk frumkvöðla-
verðlaunin en þetta hús hefur
þótt skara framúr í skreytingum
undanfarin ár.
Markaðsskrifstofan hefur dreift
götukorti á bensínstöðvar á
Suðumesjum þar sem hægt er
að ftnna jólahúsin sem em svo
fagurlega skreytt í Reykjanes-
bæ. „Við vonumst til að sjá
aðra landsmenn taka rúnt til
Reykjanesbæjar og líta á dýrði-
na. Skreytingamar eru glæsi-
legar og sennilega hvergi eins
veglegar og hér“, sagði Helga
Sigrún Harðardóttir á Markaðs-
og atvinnumálaskrifstofu
Reykjanesbæjar.
r
n
Mest fjölgun á Suðurnesjum
Samkvæmt nýjum mannfjöldatölum
frá Hagstofu íslands fjölgaði lands-
byggðarfólki mest á Suðurnesjum árið
2000, eða um 2,7% en landsmeðaltalið er
hins vegar 1,48%.
Heildarfjöldi íbúa á Suðumesjum er samkvæmt
þessu nú 16.491 en var 16.053 fyrir ári síðan,
sem er fjölgun upp á 2,7%. I Grindavík eru
i__________________________________________
samkvæmt þessum bráðabirgðatölum nú bú-
settir 2.314 einstaklingar en voru 2.227 fyrir ári
síðan og fjölgunin er því 3,9%. Fjölgun í
Reykjanesbæ er 2,1%.
Þann 1. desember 2000 vom samkvæmt þjóð-
skrá 282.845 einstaklingar búsettir á Islandi, en
vom 278.717 fyrir réttu ári síðan og er fjölgun-
in því 1,48%.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 4717, fax 421 2777
_ Jmmmm Ritstjóri: Páll Ketilsson, sími 893 3717 pket@vf.is • Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222. hbb@vf.is
y ||YU|\ Blaðamenn: Silja Dögg Gunnarsdóttir silja@vf.is • Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir kristin@vf.is,
FRÉTTIR J°nas F^3112 Sigurjónsson, franz@vf.is Auglýsingagerð: Bragi Einarsson bragi@vf.is • Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is
Útlit, umbrot, Utgreining og prentvistun: Víkurfréttir ehf. • Prentvinnsla: Dddi hf. DagletJ stafræn Útgfáfa: WWW.vf.ÍS
2
GLEÐILEGT
N Ý T T