Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 29.12.2000, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 29.12.2000, Qupperneq 8
■ Gott veður hafði góð áhrif á verslun í desember: Líf og fjör við Hafnargötuna að kvöldi Þorláksmessu. VF-myndir: Páll Ketilsson Kaupmenn ánægðir með jolaverslunina Kaupmenn á Suð- urnesjum eru sam- mála um að jóla- verslun hafi gengið betur í ár, en í fyrra. Góða veðrið á þar sennilega hlut að máli en mikil stemning var í miðbæ Keflavíkur fyrir jólin. „Verslun gekk mjög vel og við emm alsæl með söluna", segir Þorsteinn Marteinsson, í Penn- anum-Bókabúð Keflavíkur. „Eg sé að það hefur orðið tölu- verð aukning í bóksölu en ná- kvæmar tölur liggja ekki fyrir. Það er ekki eins áberandi aukn- ing í öðrum vörum en samt nokkur enda leggjum við aðal áherslu á bækumar." Guðrún Hákonardóttir í Stapa- felli segist vera ánægð með jólaverslunina sem gekk mjög vel. „Það var mikil stemning í bænum og salan fór ágætlega af stað og dreifðist vel yfir mánuðinn. Ég myndi segja að salan sé svipuð og í fyrra.“ Samkeppni á matvörumarkað- inum hefur aukist töluvert með tilkomu tveggja nýrra verslana í Keflavík, Nóatúns og 10-11. Guðjón Stefánsson fram- kvæmdastjóri hjá Samkaupum segir að þrátt fyrir þetta hafi jólaverslun í ár verið góð og í heildina sé fyrirtækið í góðu gengi. „Okkur gekk vel á Vest- fjörðum og ágætlega í Hafnar- firði. Hér suðurfrá gekk mis- jafnlega á milli verslana okkar en við erum sáttir í Samkaup.“ Sigurður Björgvinsson, í K- sport segir að verslun hafi verið nokkuð jöfn yfir mánuðinn og telur að góða veðrið haft haft áhrif á það. „Salan hjá okkur gekk rosalega vel en ég verð var við að fólk versli meira heima nú en áður. Salan var þó nokkuð betri en í fyrra og ég er alveg í skýjunum. Ég er eigin- lega ekki búin að jafna mig eft- ir þessa miklu vinnu, en við kvörtum ekki í K-sport“, segir Sigurður. Kollegi hans, Oskar Færseth var einnig mjög ánægður með jólaverslunina og sagði hana meiri en í fyrra. Agústa Jónsdóttir í versluninni Persónu segir að salan haft ver- ið mun meiri nú en í fyrra. „Verslunin fór fyrra af stað en hún hófst strax í byrjun nóvem- ber, sem er óvenju snemmt. Við tvöfölduðum nóvember- mánuð miðað við árinu áður, sem verður að teljast nokkuð gott og emm mjög ánægð.“ Guðlaug Þorsteinsdóttir, versl- unarstjóri í Rúbín, er einnig mjög sátt við söluna í ár. „Það er aukning síðan í fyrra og ég verð vör við að fólk versli meira heima og geft persónu- legri gjaftr." VOGA ÍDÝFUR Góður félagsshpur á góðri stund yOGA IDÝFA o í o 1 o VOGABÆR 190 Vogar Sími: 424 6525 Á R 8 GLEBILEGT N Ý T T

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.