Víkurfréttir - 29.12.2000, Síða 10
Það eru alltaf einhverjir sem verða að
Vinna um hátíðir
Yfirstandandi hátíðir eru í hugum flestra tími fjöl-
skyldunnar. Sá tími árs þegar fólk kemur saman,
borðar góðan mat og nýtur ljóss og friðar. Svo er þó
ekki um alla. Sumir þurfa að vinna þegar aðrir fá
kærkomið frí. Læknar, slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamenn og lögregla eru dæmi um starfsstéttir sem
aldrei fá frí. Hjá þeim er vakt allan sólarhringinn,
allan ársins hring.
VIII vera í faðmi fjölshyldunnar
Helst af öllu vildi ég eiga frí þessa nótt og vera með fjöl-
skyldu og vinum“, segir Guðmundur Sæmundsson
lögreglumaður í Keflavík. Hann hefur starfað sem
lögreglumaður síðan 1983 og af og til þurft að vinna um jól og
áramót.
„Mér finnst gamlárskvöld hafa verið frekar rólegt hin síðari ár og
ölvun minni en áður fyrr. Eg kann reyndar engar skýringar á því.
Það eru auðvitað alls konar útköll sem koma upp, þá helst sem
tengjast ölvun og árekstrum á milli manna“, segir Guðmundur.
Viltu segja eitthvað að lokum? „Ég óska öllum gleðilegs árs og
ánægjulegra áramóta og vona að fólk fari varlega um áramótin og
verði gott livort við annað.“
Er hættur að djamma
Gylfi Armannsson hefur verið í slökkviliðinu í Keflavík
síðan 1969. Hann segist ekki kvíða því að vinna um
áramótin. Hann var fíka á vaktinni á sama tíma í
fyrra en sl. átta ár þar á undan, hefur hann farið með fjöl-
skyldunni í frí til Kanaríeyja.
„Mér finnst ekki skipta neinu máli hvort ég sé að vinna um ára-
mót, eða aðra daga, þetta er bara vinnan mín. Yfirleitt hafa þessi
kvöld verið róleg. í fyrra var eitt brunaútkall og það hafa komið
gamlárskvöld þar sem ekkert hefur verið að gera.“
Magnús á sjálfur uppkomin böm og segir það því ekki trufla sig
lengur að vera fjarri fjölskyldunni á þessurn tíma en yngri strák-
amir í slökkvililiðinu vilja síður missa af djamminu. „Ég er hættur
og djamma og tek því bara rólega þegar ég á frí hvort sem er“,
segir Magnús yftrvegaður að vanda.
Epilsamasta
nótt ápsins
Nýársnótt er að sögn
Konráðs Lúðvíks-
sonar læknis á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja,
erilsamasta og erfiðasta nótt
ársins. Þá er áberandi að
fólk komi í heimsókn vegna
brunasára og áverka eftir
pústra.
„Því miður getur maður kviðið
því að menn eigi óuppgerð
mál sem þeir telja sig þurfa að
gera upp þessa nótt. Þá eru
einstaka brunaslys fyrir
„Skaup“ en þegar dansleikjum
lýkur hefst líftð fyrir alvöm og
menn halda gjarnan áfram
frameftir morgni. Ég býst því
við að vera hér á stofnuninni
jressa nótt til kl. 6 um moigun-
inn a.m.k., en það þarf víst að
standa þessa vakt eins og aðrar
vaktir“, segir Konráð og bætir
við að hann haft tekið eftir að
veðrið hafi merkjanleg áhrif á
hegðun fólks. „Ef veður er
gott er oft eins og fólki líði
betur og þurfi minna að láta til
sín taka með handalögmálum
og ég vona að svo verði nú.“
■ Björgunarsveitin Suöurnes:_____________________________
Tekup í notkun fullkominn fyrstuhjálpargám
Björgunarsveitin Suð-
urnes og Brunavarnir
Suðurnesja hafa kom-
ið á fót fyrstuhjálparhóp og í
honuni eru 30 manns. Björg-
unarsveitin hefur einnig fest
kaup á fullkomnum fyrstu-
hjálpargámi sem verður full-
búinn tækjum og öðrum
nauðsynlegum búnaði í febr-
úar á næsta ári. Gámurinn
kostar 3,5 millj. kr. en kaupin
eru að mestu fjármögnuð
með flugeldasölu. Suður-
nesjamenn eru því hvattir til
að versla flugelda af Björg-
unarsveitinni Suðurnes og
styrkja gott málefni.
Bregðast við stórslysum
Hlutverk fyrstuhjálparhópsins
er að bregðast við hópslysum
sem hin almenna neyðarþjón-
usta ræður ekki við, s.s. rútu-
slys, flugslys, náttúruhamfarir,
stórbrunar o.fl. Fyrstuhjálpar-
hópurinn þjónar öllu landinu
og jafnvel getur hann farið er-
lendis sé þess óskað. I fyrstu-
hjálparhópnum eru reyndustu
einstaklingamir bæði úr björg-
unarsveitinni og frá Bruna-
vömum Suðumesja.
Fullkomin tjöld
Fyrstuhjálparbúnaður Björgun-
arsveitarinnar Suðumes er með
öllum búnaði fyrir 24 manna
fyrstuhjálparhóp til að takast á
við ýmis konar stórslys. Bún-
aðurinn verður í færanlegum
gámi sem hægt verður að hífa
m.a. af þyrlu eða um borð í bát.
I þessum gámi verður m.a. tvö
fyrstuhjálpartjöld sem í er sér-
hæfður fyrstuhjálparbúnaður,
s.s. vinnustöðvar fyrir grein-
ingasveit, þyrlulendingarbún-
aður, vökvar og súrefni, raf-
stöðvar, sigbúnaður o.fl.
Hvort tjald fyrir sig er um 37
fermetrar en þau eru þannig
hönnuð að hægt er að taka á
móti sjúklingum innan fimmt-
án mjnútna frá komu á slys-
stað. I þeim verða 3-4 vinnu-
stöðvar fyrir fyrstuhjálpannenn
eða greiningarsveit lækna til að
athafna sig við greiningu,
hjúkrun og forgangsröðun.
Þessi tjöld em sömu gerðar og
margar erlendar björgunar-
sveitir em með og því hægt að
tengjast þeim á auðveldan hátt.
Upphitunarbúnaður fylgir
tjöldunum.
Styrkjum gott málefni
Ragnar Sigurðsson, formaður
Björgunarsveitarinnar Suður-
nes, segir að hópurinn hafi
upphaflega verið stofnaður
vegna nálægðar við flugvöllinn
og mikillar umferðar hópflutn-
ingabifreiða um Reykjanes-
brautina.
„Við létum sérsmíða gáminn
og erum nú að kaupa í hann
nauðsynlegan búnað en
gámurinn ætti að vera fullklár-
aður um miðjan febrúar 2001.“
Gámurinn kostar fullbúinn 3,5
milljónir króna og að sögn
Ragnars er hann fjármagnaður
með styrktarfé frá fyrirtækjum
og félagasamtökum og flug-
eldasölu. „Við emm byrjuð að
selja flugelda og erum með
sölustaði í bjöigunarsveitarhús-
inu Holtsgötu 51 í Njarðvík,
söluskúr við Tjamagötutorg í
Keflavík og söluskúr við Hita-
veitu Suðurnesja Brekkustíg í
Njarðvík. Ég hvet Suðumesja-
menn til að kaupa af okkur
flugelda og fagna aldamótun-
um og styrkja um leið gott
ntálefni.“
10
GLEBILEGT
N Ý T T Á R