Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 29.12.2000, Page 11

Víkurfréttir - 29.12.2000, Page 11
Ung Garðkona gerir það gott i Verðbráfi beimlnum Auður Finnbogadóttir, ung kona úr Garðinum er að gera það gott íhöfuðborginni í fjármálaheim- inum og er framkvæmdastjóri hjá hinu virta fjár- málafyrirtæki MP Verðbréfum hf. Hún kann vel við sig í Reykjavík en hefði samt alls ekki viljað missa afþvíað alast upp íGarðinum. Þaðan á hún góðar minningar. Auður er 33 ára, einhleyp og bamlaus. Hún útskrifaðist með B.S. gráðu frá University of Boulder, Colorado, Bandaríkj- unum og kom heim til Islands aftur árið 1993. „Ahugi minn á fjármálaheim- inum vaknaði við viðskipta- nám erlendis," segir Auður, þá sérstaklega bankageiranum, og leiddi það til þess að ég starfaði í 6 mánuði hjá Banc One eftir nám. Þegar ég kom heim árið 1993 þá fannst mér áhugaverð- ast að leita eftir störfum á verð- bréfamarkaði og ég er mjög ánægð með það val.Vinnuum- hverfið í verðbréfageiranum er krefjandi en fjölbreytilegt og skemmtilegt að mér finnst. Þar kemur saman alls konar fólk með mismunandi hæfileika." Við spurðum Auði hvernig staðan væri á markaðnum í dag. Hún segir töluverðar sveiflur hafa verið á hlutabréfa- mörkuðum hér heima og er- lendis á árinu og skuldabréfa- markaður innanlands hefur átt undir högg að sækja. „Olíu- verðs- og launahækkanir auk gengisþróunar gjaldmiðla hafa haft vemleg áhrif á afkomu íyr- irtækja á íslandi og endurspegl- ast það í hlutabréfaverði á markaði'1, segir Auður og mað- ur dáist að því hversu vei hún er inni í lögmálum markaðar- ins. „Framboð og eftirspurn ræður einnig töluverðu um þró- un hlutabréfaverðs og almennt hefur framboð verið meira en eftirspurn undanfarið. Við miklar lækkanir á hlutabréfa- mörkuðum, eins og verið hafa í október og nóvember, skapast þó oft góð kauptækifæri fyrir langtímafjárfesta þegar þeir setjast niður og greina virði fyr- irtækja og meta rekstrarhorfur næstu ára. Aðstæður í Banda- ríkjunum virðast ráða tölu- verðu um þróun hlutabréfa- markaða í heiminum og nýleg dæmi eru forsetakosningar, umfjöllun Greenspan seðla- bankastjóra Bandaríkjanna um efnahagslífið og tilraunir fjár- festa til að rýna í hvort hann muni lækka vexti á næstunni eða ekki. Hafa íslendingar auðgast á verðbréfakaupum? „Islendingar hafa aukið mjög verðbréfakaup á hverju ári frá árinu 1993“, svarar Auður og bætir við „bæði með iðgjöldum sínum í lífeyrissjóði og eigin spamaði. Töluvert var um það á árunum 1994-1997 að menn væru að taka þátt í útboðum fyrirtækja sem hækkuðu nánast undantekningarlaust í verði um minnst 25% á mjög skömmum tíma og innleystu þá myndar- legan hagnað. Þannig náðu ófá- ir að byggja upp viðbótarspam- að og sumir myndu kannski segja „auð“. Fleiri spákaup- menn urðu til sem kaupa og selja hiutabréf á skömmum tíma og þeir eru alla jafna að taka meiri áhættu með við- skiptum sínum en langtímafjár- festar sem hafa biðlund. Hluta- bréf eru ekki áhættulaus en þeim fylgja þess vegna meiri væntingar um ávöxtun. Ef ég ætti milljón! Til gamans spurðum við Auði hvemig best væri að verja einni milljón ef mig langaði til að eyða henni í verðbréf fyrir ára- mót sem bundin væm í þrjú ár. „Ef ég sjálf, á mínum góða aldri, ætti eina milljón í dag og það væri eini spamaður minn umfram lífeyrisspamað, með bindingu í þrjú ár, þá myndi ég fjárfesta eingöngu í hlutabréf- um,“ svarar Auður ákveðið. „Eg myndi skipta fjárhæðinni í þrennt og setja 1/3 hluta í MP BIO hf. Það er félag sem fjár- festir í óskráðum og skráðum líftækni-, erfðatækni- og lyfja- fyrirtækjum og yerður skráð á Verðbréfaþing íslands á milli jóla og nýars. Þennan hluta lít ég á sem aðeins áhættumeiri en ella þar sem fjárfestingarstefn- an er eingöngu bundin við of- angreinda geira og fjárfest er að hluta í óskráðum félögum, Ég hefði ekki viljað missa af því að alast upp „úti á landi“ eins og sumir skólafélagar í Versló sögðu um Suðurnesin á sínum tíma. Ég á góðar minningar úr Garðinum, af heim- sóknum til ömmu og afa í Grindavík og af ferð- um til Keflavíkur m.a. í tónlistarskólann og í 9. bekk í Holtaskóla en þarna liggja líka mestu væntingar um ávöxtun á næstu árum skv. mörgum erlendum og innlendum sérfræðingum. Eg er sammála þeim. 1/3 hluti færi í Eimskip sem hefur sýnt sig að vera góð lang- tímafjárfesting og ég tel ekki líkur á því að það breytist þó auðvitað sveiflist verð á þeim bréfum sem öðrum. Síðasti hlutinn færi í erlent fjarskipta- fyrirtæki s.s. Nokia þar sem flest okkar munu sennilega nota símann í miklu meira mæli en nú er í náinni framtíð, sumir segja að hann verði stjómtæki heimilisins." Yfiríallt annað Okkur langaði að vita hvemig höfuðborgarlífið legðist í Auði og hvort hún væri alflutt af Suðumesjum? „Ég hefði ekki viljað missa af því að alast upp „úti á landi“ eins og sumir skólafélagar í Versló sögðu um Suðumesin á sínum tíma. Ég á góðar minningar úr Garðinum, af heimsóknum til ömmu og afa í Grindavík og af ferðum til Keflavíkur m.a. í tónlistarskól- ann og í 9. bekk í Holtaskóla. Frístundum ver ég í góðum hópi vina og vandamanna, reyni að fara í einhverja lík- amsrækt eftir árstíðum eða les. Foreldrar mínir, Edda Karls- dóttir og Finnbogi Bjömsson, búa ennþá í Garðinum og mér finnst alltaf gaman að kíkja á heimaslóðir en það gerist því miður alltof sjaldan. En ég hefði heldur ekki viljað missa af því að víkka aðeins sjóndeildarhringinn og fá að kynnast stórborginni Reykjavík á yngri árum og eignast góða vini þar. Ég kann mjög vel við mig á höfuðborgarsvæðinu. Vera mín þar átti ábyggilega mikinn þátt í því að ég ákvað að víkka sjóndeildarhringinn enn frekar og fara í nám er- lendis. Sú reynsla að kynnast fólki alls staðar að úr heimin- um er ómetanleg". svarar Auð- ur og sendum við henni bestu þakkir fyrir spjallið. Útnefning á íþróttamanni Reykjanesbæjar veröur í íþróttahúsi Njarövíkur, gamlársdag, 31. desember kl. 13. Dagskrá 1. íslandsmeistarar heiðraðir. 2. Viðurkenning fyrir störf í þágu hreyfingarinnar. 3. íþróttamaður Reykjanesbæjar valin. ÍRB óskar öllum íbúum Reykjanesbæjar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. /jr \ W íþróttabandalag Reykjanesbœjar REYKJANESBÆR Á R GLEBILEGT N Ý T T 11

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.