Víkurfréttir - 29.12.2000, Side 22
íþróttamaður
Reykjanesbæjar
2000 kynntur á
Gamlársdag
Kjör á Iþróttamanni Reykja-
nesbæjar verður tilkynnt í
Iþróttahúsi Njarðvíkur á
gamlársdag kl. 13.
Auk kjörsins verða
Islandsmeistarar heiðraðir
og veittar viðurkenningar til
þeirra sem starfað hafa
mikið fyrir íþróttahreyfingu-
na í Reykjanesbæ.
íþróttamaður Reykjanes-
bæjar í fyrra var Órn Ævar
Hjartarson, kylfingur í
Golfklúbbi Suðurnesja.
MM SlJílHJjir í
þessum strákum
-Haukur Ingi, Jóhann Guðmunds og Ómar Jóhannsson markvörður komnir „heim“
Keflvíkingar hafa
fengið þrjá nýja leik-
menn til liðsins en
það eru allt fyrrverandi liðs-
menn sem hafa verið að
reyna fyrir sér í atvinnu-
mennsku að undaniörnu.
Þetta eru þeir Haukur Ingi
Guðnason sem kemur frá
Liverpool, Jóhann B.
Guðmundsson frá Watford og
Omar Jóhannsson sem hefur
verið á mála hjá sænska liðinu
Malmö.
Haukur Ingi og Jóhann léku
síðast með Keflavík fyrir 3
árum síðan þegar liðið varð
bikarmeistari. Allir þessir
kappar hafa leikið í yngri
landsliðum Islands og eru því
kunnir nýja þjálfaranum Gústaf
Bjömssyni.
Þetta er mikill fengur fyrir
okkur“, sagði Rúnar Amarson,
formaður Knattspyrnuráðs
Keflavíkur á blaðamannafundi
sem haldinn var í dag.
Strákarnir voru ánægðir og
sögðust hlakka til að leika á ný
með sínu gamla félagi. Haukur
hefur átt við meiðsl að stríða
síðan í surnar en er orðinn
góður af þeim. Hann átti aðeins
eftir um sex mánuði af samn-
ingi sínum við Liverpool og
kemur til landsins alkominn
heim nú fljótlega eftir
áramótin. „Ég stefni að því að
fara í háskólann þannig að það
ýtti líka á að ég kæmi heim“,
sagði Haukur og bætti því við
að hann væri bjartsýnn á
komandi tímabil fyrir Keflavík.
„Þetta er búinn að vera erfiður
tími en lærdómsríkur. Það
hefur bæst mikið við
leikmannahóp Watford og ég
hef ekki verið í náðinni hjá
framkvæmdastjóranum. Ég leit
því á málið þannig að það væri
gott að koma heim til að fá að
spila en draumurinn er síðan að
komast aftur í atvinnu-
mennskuna", sagði Jóhann og
undir það tók Haukur.
Omar Jóhannsson er uppalinn í
Keflavík og lék með öllum
yngri flokkum félagsins. Hann
er markvörður og þykir mikið
efni. Omar mun keppa við
Gunnleif Gunnleifsson sem þó
hefur verið að reyna að
komast í atvinnumennsku.
Hann er á leið til Bretlands nú
strax eftir áramótin og því allt
opið hjá honum.
„Þetta er mikill styrkur fyrir
liðið og starfið leggst vel í
mig“, sagði Gústaf Bjömsson,
nýráðinn þjálfari Kefla-
víkurliðsins í knattspymu.
Halli
til Hibs
Haraldur Guðmundsson,
miðvallarleikur úr
Keflavík heldur á vit
atvinnumanna-ævintýra
til Skotlands fljótlega eftir
áramótin. Honum hefur
verið boðið aftur til
Hibernian en Haraldur
var hjá liðinu sl. haust.
Gert er ráð fyrir að
Haraldur verði hjá skoska
liðinu fram á vor og komi
þá til Keflavíkur.
dcf/finn /
Til hamingju með
40 árin elsku Oli,
Helga og stelpurnar.
Elsku stóri bróðir.
Til hamingju með 40 ára
afmælið þann 29. desember.
Systkinin.
Elsku Rakel Rós til hamingju
með 1 árs afmælið 27.
desember. Mamrna, pabbi og
Birta Rós stóra systir.
Elsku vinkona, til hamingju
með daginn í dag. Hvenær er
mæting? Afmæliskveðja,
Harpa, íris og Kolla.
22
GLEÐILEGT
N Ý T T Á R