Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.01.2001, Síða 17

Víkurfréttir - 25.01.2001, Síða 17
Dómsmál um vörumerki Bláa lónsins hf. og Vetingahússins við Biáa lónið: Höfum átt þetta nafn í ellefu ár segir Jenný Jónsdóttir Aðstandendur veitingahúss Jennýar annars vegar og rekstraraðilar Bláa lónsins hf. og Hitaveitu Suðurnesja hins vegar hafa stefnt hver öðrum þar sem báðir krefjast þess að hinn fái ekki að nota nafn Bláa lónsins. Héraðsdómur Reykjaness tók máiið fyrir í síðustu viku en dómur verður felldur í mál- inu 2. febrúar nk. Að undanförnu hafa birst greinar um málið á síðum VF þar sem grein er gerð fyrir mál- inu og einnig hefur birst fréttatil- kvnning frá Bláa lóninu hf. I dag ger- ir Jenný Jónsdóttir, rekstraraðili veit- ingahúss Jennýar, grein fyrir sinni hlið málsins en henni flnnst forsvars- menn Bláa lónsins hf. og Hitaveitu Suðurnesja hafa sýnt sér ótrúlegan yfirgang að undanförnu. Sama nafn í 11 ár Frá 23. mars 1990 hefur „Veitingahúsið við Bláa Lónið”/„Restaurant Blue Lagoon” verið rekið í grennd við Bláa Lónið. Árið 1998 var nafninu Jenný skeytt við nafn veitingastaðarins til að persónugera staðinn meira og auka að- sókn að honum og er það nú notað sam- hliða fyrrgreindum nöfnum. Veitinga- húsið hefur aldrei hætt að kynna sig undir vörumerkinu Bláa Lónið í þau nærri 11 ár sem hefur veitingastaðurinn verið rekinn. Meðal góðra viðskiptavina veitingastaðarins í gegnum tíðina hafa m.a. verið fyrirsvarsmenn bæði Hita- veitu Suðurnesja og Baðhússins við Bláa Lónið og voru starfsmenn bað- hússins í mánaðarreikningi á veitinga- húsinu um langt skeið. Eina veitingahúsið Um árabil átti veitingastaðurinn í góðu samstarfi við Hótel Bláa Lónið og Bað- húsið við Bláa Lónið um kynningu á þeirri ferðaþjónustu sem boðið hefur verið upp á við Bláa Lónið. Var þessi kynning og markaðssetning m.a. styrkt af Hitaveitu Suðumesja. Á grundvelli 11 ára notkunar er Veitingahúsið við Bláa Lónið - Jenný eigandi að vöru- merkjunum „Bláa Lónið” og „Blue Lagoon” í flokki veitingaþjónustu. Hvorki Hitaveita Suðurnesja né Bláa Lónið hf. hafa rekið veitingahús. 1 dag er rekinn í hinum nýja baðstað veitinga- staðurinn Lónið Veitingar. Sjoppurekst- ur Bláa Lónsins hf. í anddyri í gamla baðhúsinu flokkast ekki undir veitinga- stað (restaurant). Hótað fangelsisvist Eftir að Bláa Lónið hf. flutti í baðhúsið í hin nýju húsakynni sín hafa fyrirsvars- menn Bláa Lónsins hf. sýnt aðstandend- um veitingahússins ótrúlegan yfirgang. Hefur þeim verið hótað með lögbanni og fangelsisvist afsali þeir sér ekki nafni veitingastaðarins og hætti að kenna hann við Bláa Lónið. Er það ástæða þess að fyrirsvarsmenn veitingahússins sáu sér ekki annað fært en að höfða mál á hendur Bláa Lóninu hf. og Hitaveitu Suðumesja til að geta verið í friði með nafn veitingastaðarins. í málinu krefst veitingahúsið ógildingar á vömmerkjaskráningu þessara aðila á vömmerkinu Bláa Lónið (Blue Lagoon) í flokki veitingaþjónustu og að þeim verið óheimilt nota það í tengslum við veitingaþjónustu. Að undirlagi fyrir- svarsmanna Bláa Lónsins hf. var nafn veitingahússins ekki lengur kennt við Bláa Lónið í símaskránni, líkt og verið hafði frá upphafi eða í nærri 11 ár. Var þetta gert án allra tilkynninga til veiting- hússins, sem er rétthafi símanúmersins. Nýtt hús hefur áhrif Það skýtur óneitanlega nokkuð skökku við eftir að hafa unnið að uppbyggingu og markaðskynningu á ferðaþjónustu við Bláa Lónið og á Suðumesjum, allt frá frumbýlingsárum hennar, að þurfa nú að standa í því að verja nafn veit- ingastaðar síns. Það hefur greinilega mikil áhrif að flytja í nýtt húsnæði. Jenný Jónsdóttir m HEKLA -i fonjstu á níjrri öhl. www.hekla.is Söluumboð Njarðarbraut 13 • 260 Njarðvík Sími 420 5000 • Fax 421 5946 VERBLÆKKUN Bílar á réttu veröi! Útborgun aðeins kr. 5.000.- Lán tíl 48mán. meö 2 ábyrgðarmönnum. MMC GALANT F.skr 93 Ekinn 135.000km Dyr4, Sjálfs. Vél 2000 VERÐ 630.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48mán. Meðalgreiðsla 18.600.krámán TOYOTA HILUX X-CAB F.skr 08.91 Ekinn 187.000km Dyr2, 5 gíra Vél2400 VERÐ 570.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 16.800.krámán OPELCORSA F.skr 06.98 Ekinn 37.000km Dyr 3, 5 gíra Vél 1400 VERÐ 770.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 22.700.kr á mán. VWGOLF GL Variant F.skr 07.96 Ekinn 67.000km Dyr 5, 5 gíra Vél 1800 VERÐ 730.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 21.500.kr á mán FORD ESCORT F.skr 03.97 Ekinn 35.000km Dyr4, 5gíraVél 1400 VERÐ 660.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48mán. Meðalgreiðsla 19.500.krámán VWGOLFGL F.skr 03.96 Ekinn 103.000km Dyr5, 5gíra Vél 1400 VERÐ 610.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 18.100.kr á mán TOYOTACOROLLAXLI F.skr 08.96 Ekinn 76.000km Dyr5, 5gíra Vél 1600 VERÐ 780.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 23.000.kr á mán MMC LANCER GLX F.skr 04.97 Ekinn 77.000km Dyr4, 5gíraVéI 1300 VERÐ 770.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 22.700.kr á mán TOYOTA COROLLA XLI F.skr 02.95 Ekinn 150.000km Dyr5, 5 gíra Vél 1300 VERÐ 460.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 13.700.krámán VW VENTO GL F.skr 11.93 Ekinn 99.000 km Dyr4 Sjálfsk. Vél 2000 VERÐ 690.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 20.400.kr á mán SUZUKISWIFTGL F.skr 02.99 Ekinn 26.000 km Dyr5 5 gíra Vél 1300 VERÐ 790.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 23.300.kr á mán TOYOTA CARINA E F.skr 06.96 Ekinn 106.000km Dyr4, Sjálfsk.Vél 1800 VERÐ 740.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 21,800.kr á mán HYUNDAISONATA F.skr 05.95 Ekinn 95.000 km Dyr4 Sjálfsk. Vél2000 VERÐ 570.000.- Útborgun 5000.kr rest í 48mán. Meðalgreiðsla 16.900.krámán MAZDA 626 GLX F.skr07.92 Ekinn lOl.OOOkm Dyr4 Sjálfsk. Vél2000 VERÐ 590.(MM).- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 17.400.krámán NISSAN MICRALX F.skr 04.97 Ekinn 52.000 km Dyr5 Sjálfsk. Vél 1300 VERÐ 760.IMM).- Útborgun 5000.kr rest í 48 mán. Meðalgreiðsla 22.400.kr á mán Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is 17

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.