Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.01.2001, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 25.01.2001, Qupperneq 22
VÍKURFRÉTTAVERÐLAUNIN 2000 AFHENT í HÓFI Á RÁNNI ■ RÚNAR JÚLÍUSSON FÉKK MENNING- ARVERÐLAUN VÍKURFRÉTTA Enginn toppar prennu Rúnars Jull! i ivmimi^^nRivsraiiiiiMn /ííit FflTm'liiTUH'm'TilBi Menning og listir hafa stundum verið í skugga góðra íþróttaafreka á Suðumesj- um. Einn liðsmaður menn- ingarinnar á tónlistarsviðinu hefur verið í eldlínunni á báðum sviðum og verið gangandi auglýsing fyrir Suðurnesin. Hér er að sjálf- sögðu átt við Rúnar Júlíus- son sem í tæp fjörtíu ár hefur sungið og spilað Keflavík og Suðurnesjum til heilla. Hann var í liðum sem innbyrtu tvo fyrstu íslandsmeistaratitla Keflavíkur íknattspymu 1959 í 4. tlokki og 1964 í meistaraflokki cn árið á undan hóf hann farsælan tónlistarferil sem stendur enn. Til gamans má geta að þetta ár, 1964, var Rúnar í vinsælustu hljómsveit lands- ins, Hljómum og íslands- meistari með Keflavík í 1. deild. Örfáum árum bættist við í safn hans Fegurðar- drottning Islands en það var að sjálfsögðu kona hans, María Baldursdóttir sem sá um að innbyrða þann titil. Þrenna sem sennilega engin getur státað af nema Rúnar. Ekki verður langur og farsæll ferill Rúnars rakin hér enda þekkja hann flestir. Hann var í vinsælustu hljómsveitum aldarinnar eins og Hljómum, Trúbroti, Lónlý blú boys og GCD. í lok aldarinnar var valin hljómplata aldarinnar og það var engin önnur en breiðskífa Trúbrots, Lifun sem hlaut þá vegsemd en í sveitinni voru Rúnar og fleiri þekktir Suður- nesjamenn. A síðasta ári gaf hann út tvöfaldan hljómdisk sem hann gaf nafnið Reykja- nesbrautin. Diskurinn fékk mjög góða dóma sem sýnir að lengi lifir í gömlum glæðum. Nafnið kom á góðum tíma sem sýnir enn betur útsjónarsemi tónlistarmannsins sem með þessu gaf átaki bæjarbúa hér fyrir tvöföldun brautarinnar aukna athygli. Rúnar hefur gefið út í nafni Geimsteins yfir eitthundrað hljómplötur og ekki er ólíklegt að hann hafi tekið þátt í næmi tvöhundruð plötum því áður en hann hóf útgáfu sjálfur var hann búinn að spila inn á margar plötur á annan áratug. Geimsteins- útgáfan fagnar aldarfjórðungs- afmæli síðar á árinu. Rúnar vinnur nú að tvöfóldum hljóm- disk sem mun geyma fimmtíu af lögum útgefnum af Geim- steini. í starfi sínu hjá Geimsteini hefur Rúnar aðstoðað marga unga tónlistarmenn og hafa margir þeirra nefnt það hvað það hafi verið gott að sækja í garð hans. Rúnar hefur verið liðlegur og duglegur að leggja þeim lið. Rúnar Júlíusson hefur verið nokkurs konar bæjarmerki Keflavíkur og Suðumesja í tugi ára og hlýtur Víkurfrétta- verðlaunin 2000 fyrir ffamlag sitt sem seint verður full- þakkað. ■ BLÁA LÓNIÐ FÉKK ATVINNULÍFSVERÐLAUN VÍKURFRÉTTA 2000 Nær 70% útlendinga koma í Blúa lúnið s utvinnulíli Suðumesja hefur eitt fyrirtæki vaxið hratt á undanfömum árum og er í dag orðið þekktasti og er mest sótti ferðamannastaður á Islandi, Bláa lónið þekkja allir og vel flestir útlendingar sem koma til landsins spyrja um staðinn og flestir þeirra heimsækja hann sömuleiðis. Upphafið að þessum vægast sagt einstaka stað má rekja til áttunda áratugarins þegar nokkrir einstaklingar byrjuðu að baða sig í affallsvatni ÍTá orkuveri Hitaveitu Suðumesja. Bláa Lónið hf. var stofnað árið 1992 og er meginmarkmiðið með stofnun félagsins að vera í forystu um varanlega uppbygg- ingu heilsu- og ferðaþjónustu við Bláa lónið. A undanfömum ámm hefur félaginu vaxið fiskur um hrygg og er starfsemi þess nú á þremur sviðum. Öll starfsemi félagsins byggir á einstakleika og eiginleikum jarðsjávar Bláa lónsins sem inniheldur sölt, kísil og blá- grænþörunga. Nýr og glæsilegur baðstaður opnaði við Bláa lónið í júlí 1999 og er hann vinsælasti áfangastaður erlendra ferða- manna er sækja Island heim, en á síðasta ári heimsóttu 64% þeirra Bláa lónið en gestir vom alls 318.000. Til samanburðar má geta þess að á árinu 1998 sem var síðasta heila rekstr- arárið á gamla baðstaðnum var heildargestafjöldi 172.000. Fyrirtækið framleiðir einnig og markaðssetur húðvemdarvömr undir vömmerkinu Blue Lagoon Iceland. Vömmar em gmndvallaðar á virkum hráefnum úr heilsulindinni Bláa lóninu og komu fyrstu vömmar á markað árið 1995. Fleiri vömr bættust við þremur ámm síðar. Ný Blue Lagoon geothermal spa lína leit dagsins ljós um mitt árið 2000. Bláa lónið hefur einnig rekið göngudeild við Bláa lónið ffá árinu 1993 fyrir psoriasis og exemsjúklinga. Meðferðin hefur hlotið viðurkenningu íslenskra heilbrigðisyfirvalda og greiðir Tryggingastofnun Ríkisins hlut íslenskra sjúkl- inga. Frá árinu 1997 hafa heil- brigðisyfirvöld einnig greitt fyrir hlut sjúklinga á sjúkrahótelinu við Bláa lónið til að auðvelda sjúklingum af landsbyggðinni að stunda meðferðina. Hjá fyrirtækinu starfa nú á milli 80 og 90 starf- smenn þegar mest er. Bláa lónið hf. fær Víkurfréttaverðlaunin árið 2000 fyrir framlag sitt í atvinnulífi Suðumesja. Forráðamenn BláíTlónsins með verðlaunin. F.v. Júlíus Jónsson Maður ársins 1994 ogJorstjóri Hitaveitu Suðurnesja, Björg Jónsdóttir eiginkona Gríms Sæmundsen, framkvæmdastjóra Bláa lónsins, á milli þeirra er Magnea Guðmundsdóttir, markaðsstjóri og lengst til hægri Eðvald Júlíusson stjórnarformaður Bláa lónsins hf. 22

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.