Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.02.2001, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 15.02.2001, Qupperneq 10
Kirkjustarfið Keflavíkurkirkja Fimmtud. 15. fcb. Fermingar- undirbúningur kl. 14:50-16:15 í Kirkjulundi. Fræðslufundur um sorg og sorgarviðbrögð í Kirkjulundi kl. 20:30 um Sr. Sigurður Pálsson, sóknarprestur í Hallgrímssókn, flytur erindi sem hann nefnir, Líf í sorg, líf í von. Hann skrifaði á sínum tíma bókina Böm og sorg og situr fyrir svörum ásamt konu sinni Jóhönnu Möller. Sunnud. 18. feb. 2. s. í Níuviknaföstu. Biblíudagurinn. Messa og aldursskiptur sunnuda- gaskóli kl. 11. (altarisganga) Textaröð B: Jes. 40:6-8, 1. Kor. 3:16-23, Mark. 4:26-32. Guðspjall: Sæðið sem grær og vex. Prestur: sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti: EinarÖm Einarsson. Undirleikari í sunnudagaskóla: Helgi Már Hannesson. Þríðjud. 20,fcb. Kirkjulundur opinn kl. 13-16 með aðgengi í kirkjuna og Kapcllu vonarinnar eins og virka daga vikunnar. Gengið inn frá Kirkjuteig. Starfsfólk verður á sama tíma í Kirkjulundi. Fermingarundir- búningurkl. 14:10-16:25 í Kirkjulundi. Miðvikud. 21.fcb. Kirkjan opnuð kl. 12:00. Kyrrðar- og fyrirbænas- tund íkirkjunni kl. 12:10. Samvemstund í Kirkjulundi kl. 12:25 - súpa, salat og brauð á vægu verði - allir aldurshópar. Umsjón: Astríður Helga Sigurðardóttir, cand theol. Alfanámskeið í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur f kirkjunni um kl. 22. Starísfólk Kcllavikurkirkju. Ytri-Njarðvíkurkirkja Fimmtud. 15. fcb. Fyrirbæna- samvera kl. 18.30. Fyrirbænar- efnum er hægt að koma áleiðis fyrir hádegið virka daga milli kl.10-12. ísíma 421 5013. Spilakvöld aldraðra kl.20. Biblíulestrar kl.20. í umsjá Astríðar Helgu Sigurðardóttur. Sunnud. 18. fcb. Sunnudagaskóli kl.ll. íumsjá sr. Kristínar Þómnnar Tómasdóttur og Vilborgar Jónsdóttur. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Kristín Þómnn Tómasdóttir héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Nemendur úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar koma fram. Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir stjóm Steinars Guðmundssonar organista. Þriðjud. 20.fcb.TTT-starfkl.17. í umsjá Astríðar Helgu Sigurðardóttur og undirleikari er Tune Solbakke. Starfið er ætlað bömum lOtil I2ára. Miðvikud. 21. fcb. STN -starf. kl. 16.30 í umsjá Vilborgar Jónsdóttur og er ætlað bömum 6 til 9. ára. Njarðvíkurkirkja (Innri- Njarðvík) Sunnud. 18. fcb. Sunnudagaskóli kl. 11. Astríður Helga Sigurðardóttir leiðir skólann og undirleikari er Tune Solbakk. Baldur Rafn Sigurðsson. Kálfatjamarkirkja Laugard. 17. feb. Kirkjuskólinn kl. 11. í Stóm-Vogaskóla. Sunnud. 18. fcb. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur Séra Hans Markús Hafsteinsson. Kirkjukórinn syngur undir stjóm Frank Herlufsen. Snknarncfnd. Hvalsneskirkja Laugard. 17. fcb. Safnaðar- heimilið í Sandgerði. Kirkju- skólinn kl. 11 Sunnud. 18. feb. 2.sd. í níu- viknaföstu. Guðsþjónusta kl. 11. Biblíudagurinn. Kór Hvalsneskirkju syngur. Organisti Hrönn Helgadóttir Fimmtud. 22. feb. Kyrrðar- og bænastund í Miðhúsum kl. 12 á hádegi. Boðið er upp á léttan málsverð gegn vægu gjaldi. Allir velkomnir. Utskálakirkja Laugard. 17. fcb. Safnaðar- heimilið Sæborg Kirkjuskólinn kl. 14. Sunnud. 18. fcb. 2.sd. í níu- viknaföstu. Guðsþjónusta kl. 14. Biblíudagurinn. Ylfingavígsla. Kór Utskálakirkju syngur. Organisti Hrönn Helgadóttir Sóknarprestur Bjöm Sveinn Bjömsson. Byrgið, Rockwille Lofgjörðarsamkoma mánudags og miðvikudagskvöld kl. 20. Allir velkomnir. Skoðið www.vf.is daglega! Framsýni og kraftur Frétt af samruna Hita- veitu Suðurnesja og Rafveitu Hafnarfjarð- ar er afskaplega ánægjuleg og framganga sveitarstjórn- anna og stjórnar Hitaveit- unnar í þessu máli er tví- mælalaust mikið gæfuspor fyrir Suðurnesjamenn. Aðgerðin hefur verið nokkurn tíma í undirbúningi enda snertir hún öll sveitarfélögin og alla íbúa þeirra. Samruninn stækkar ekki aðeins orkuveitumarkað Hitaveitu Suðurnesja yfir 100% heldur verður fyrirtækið eitt af öflugri orkuframleið- endunt landsins. Það gerir stöðu okkar mjög sterka þegar kemur að þvf að keppa á orku- markaði framtíðarinnar þar sem þeir stærstu og sterkustu munu einir eiga þess kost að virkja og berjast um orkufram- leiðslu og orkusölu á landinu öllu og jafnvel víðar. Virkjun- arsvæði Hitaveitunnar verður einnig stórum víðáttumeira þar sem land allra þessara sveitar- félaga er í húfi. Með samn- ingnum við Hafnfirðingana fylgir ákveðinn aðgangur að Kristján Pálsson landi þeirra sem innifelur meðal annars Krísuvíkursvæðið sem er eitt orkuríkasta jarðgufusvæði landsins. Það hefur vakið athygli að nokkur andstaða var við jtenn- an samruna innan stjórnar Hitaveitunnar. Sú andstaða réði þó ekki niðurstöðunni enda miklir hagsmunir í húfi þegar til lengri tíma er litið. Þessir miklu hagsmunir gerðu málið enn viðkvæmara en ella og ábyrgð jreirra sem fara með almannavald meiri. Það var farsæl niðurstaða að öll sveitar- félögin á Suðurnesjum sam- þykktu sammnaáætlun stjómar Hitaveitunnar að lokum. Eg tel fulla ástæðu til að þakka þeirn forystumönnum sérstak- lega sem bám hitann og þung- an af þessari samþykkt og tel ekki á neinn hallað þó for- manni stjórnar Hitaveitunnar Ingólfi Bárðarsyni og forstjóra Júlíusi Jónssyni sé þakkað sérstaklega. Einnig er þáttur Ellerts Eiríkssonar bæjarstjóra Reykjanesbæjar í þessu máli ómetanlegur en hann leiddi sveitarstjómarmenn saman á loka sprettinum. Eg tel einnig ástæðu til að lofa framgöngu Hafnfirðinga í málinu. Þessi ákvörðun þeirra á eftir að sanna sig sem ein sú mikilvægasta sem bæjartstjómin hefur tekið undir forystu Magnúsar Gunn- arssonar bæjarstjóra. Það er svo sannarlega ánægjulegt til þess að vita að samvinna Suðurnesjamanna og Hafn- firðinga er tryggð með jressum samningi um langa framtíð. Betri samstarfsmenn getum við Suðumesjamenn ekki fengið. Til hamingju Suðurnesjamenn. Kristján Pálsson alþingismaður. Sumarleikur í febrúar! MUNDI Lýst er eftir rallhálfum bílskúrsköllum með jólaskraut í poka... Ætlar þú til útlanda í sumar? Grétar Már Garðarsson: Já, kannski til Spánar Dagný Jónasdóttir: Það er aldrei að vita. Spánn heillar mjög. Vilhelmína Oskarsdóttir: Nei, ég ætla að vera heima í sumar. Laufey Helga Geirsdóttir: Nei, ég hugsa að ég fari ekki neitt. Eyði sumaríríinu bara heima. Kristján Friðjónsson: Nei, en ég hef hugsað mér að ferðast innanlands. Ingi Vestmann: Nei, ég ætla að vera heima. Eg fer samt örugglega norður á Akureyri í sumarírí'inu. 10

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.