Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.03.2001, Qupperneq 9

Víkurfréttir - 29.03.2001, Qupperneq 9
■ Bæjarstjórn ætlar að styðja íþróttafálögin fjárhagslega: Tímamótamál * segir Skúli Þ. Skúlason forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Vegna þess að íþróttir eru veigamikiil þáttur í tómstunda- starfi barna eru gerðar miklar kröfur til íþróttahreyfingarinn- ar um að leiðtogar (þjálfarar) séu góðar fyrirmyndir, vel menntaðir og hafi skilning á uppeldi- og þroskaferli barna. Greinargerð sem meirihluti bœjarstjómar lagðjfram en þar kemur fram að rannsóknir hafi sýnt að íþróttir hafi jákvœð áhrif á iðkendur þeirra, beeði erþcer uppbyggilegar líkamlega og sálarlega og sameini jafnframtJjölskylduna í leik. ,. Vegna þess að íþróttir eru veigamikill þáttur í tómstundastarfi bama eru gerðar miklar kröfur til íþróttahreyfingarinnar um að leið- togar (þjálfarar) séu góðar fyrinnyndir, vel menntaðir og liqfi skilning á uppeldi- og þroskaferli bama. í samrœmi við skil- greiningar í stefnuyfiriýsingu ISI um bama- og unglingaí- þróttir er hér átt við að böm séu allir til og með 12 ára. Reykjanesbœr vill með þessu efla gildi innra starfs íþrótta- hreyfingarinnar og aðstoða hreyfinguna við vandasamt hlut- verk sitt. Það gerir bœjarstjóm meðal annars með því að gera samninga við deildireða félög sem auðveldar þeim að ráða til þjálfunarstarfa vel menntaða og hafa þjálfara fyriryngstu iðkenduma. A móti tryggi íþróttahreyjingin vel skipulagt og faglegt uppeldisstarffyrir bömin okkar", segir orðrétt í givin- argerð og undir hana rituðu allir fulltrúar meirihlutans. Til- lagan varsamþykkt 11-0. Bæjarstjórn Reykjanes- bæjar samþykkti á fundi sl. þriðjudag til- lögu meirihlutans, um að hefja nú þegar undirhúning að því að aðstoða íþrótta- hreyfinguna í Reykjanesbæ við að grciða laun til þjálfara sem starfa við þjálfun bama. Tómstunda- og íþróttaráð mun undirhúa viðmiðunar- reglur sem taka mið af sjefnumörkun íþrótta- og Olympíusambands Islands varðandi barna- og unglinga- starf. Félagslega hliðin mikilvæg „Stefna meirihlutans hefur ver- ið að aðstoða íþróttahreyfing- una eftir mætti og þetta er einn liður í því“, segir Skúli Þ. Skúlason (B) forseti bæjar- stjómar. „Mikil þróun hefur átt sér stað hjá okkur á undan- fómum ámm; skólar em orðnir heilsdagsskólar og þá eru möguleikar á að færa íþrótta- iðkun yngstu bama inn í skól- ann en það byggist á góðu skipulagi og samstarfi viðkom- andi aðila.“ Skúli telur mikilvægt fyrir íþróttaiðkun yngstu barna að hún sé ekki of sérhæfð. „Til að börn nái eðlilegum líkams- þroska er æskilegt að þau stun- di fieiri en eina íþróttagrein og reyni þá á mismunandi vöðva- hópa. Ég vil einnig benda á að félagslega hliðin tengd iþrótt- um er ekki síður mikilvæg en sú líkamlcga." Markvissari stjórnun Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hefur íþrótthreyf- ingin um allt land verið í fjár- kröggum. A sama tíma er jxitta stærsta og fjölmennasta tóm- stundiðja Islendinga og fær mest áhorf í sjónvarpi. Með þessari tillögu bæjarstjómar er gert ráð fyrir að íþróttafélög í bænum taki mið af stefnu íþrótta- og Olympíusambands íslands um bama og unglinga- starf undir yfirskriftinni, Fyrir- myndarfélag eða Fyrirmyndar- deild. „Það sem felst í því er að félag þarf að fara í ákveðna stefnumótun og skilgreina starf bamaíþróttanna. Að því loknu fær félagið eða deildin, gæða- stimpil frá ÍSÍ. I því felst að foreldrasamstarf sé skilgreint, ákveðnar skuldbindingar gerð- ar í umhverfismálum og jafn- réttismálum, þ.e. að þjálfarar stúlkna og drengja sitji við sama borð í sambandi við launakjör og annað, svo dæmi sé tekið. Þetta gæðaferli tekur á mjög mörgum þáttum og ég tel að með þessu verði stjómun og skipulag félaga mun mark- vissarar og þá skilvirkara", segir Skúli. Auðveldari aðgangur að fjármagni Hvað er áætlað að þetta kosti bæjarfélagið? „I dag liggur ekki ljóst fyrir hversu umfangsmikið verkefn- ið verður. Að sjálfsögðu þarf það að vera innan eðlilegra marka. Bærinn er nú með Af- reks- og styrktarsjóð en hann fær um 4.4 milljónir króna á ári. Sá sjóður hefur m.a. verið notaður til að styrkja bama- og unglingastarf í íþróttafélögun- um. mér finnst ekki óeðlilegt að skilgreina hluta þess fjár- magns í verkefnið til að byrja með.“ Munu félögin verða skyldug til að fara í gcgnum þetta stefnumótunarferli eða er þeim í sjálfsvald sett hvort þau sækist eftir gæðastimpl- inum? „Það mun velta á félögunum sjálfum hversu dugleg þau verða við að ná sér í þennan gæðastimpil en vilji þau fá að- stoð við að greiða laun þjálfara bama. Þá miðar tillagan við að þau hafi þennan gæðastimpil frá ISI. Félögin okkar eru nú þegar með mjög margt af því, sem þar er tilgreint í mjög góðu ásigkomulagi. Það má geta [jess að eitt af skilyrðum hjá ÍSÍ er að búið sé að aðgreina fjár- magn í unglingastarfi frá rekstri meistaraflokka, öll þekkjum við jjessa gagnrýni að allir pen- ingar fari til meistaraflokkanna. Þetta er vonandi ein leið til þess að auðvelda íþróttafélög- unum að ráða til sín vel menntaða og hæfa leiðbeinend- ur því að þeir eru fyrirmyndir og verða að vera heilsteyptar og þroskaðar manneskjur sem kunna að umgangast böm“, segir Skúli. Dregur úr brottfalli Brottfall úr íþróttum er um- hugsunarmál og sérstaklega hefur verið rætt um brottfall stúlkna úr íþróttum. Er þetta liður í að draga úr brottafalli stúlkna? „Já, það hljóta að vera minni líkur á brottfalli ef bömin okkar fá góða leiðsögn fyrstu árin. Þá má kannski segja að þetta sé liður í að draga úr brottafalli stúlkna því félögin þurfa að huga að jafnréttismálum, sem þýðir að þjálfarar stúlkna og drengja sitji t.d við sama borð í launamálum. Það hlýtur að auðvelda og styrkja starf stúlknaíþrótta en vissulega er þetta bara einn lið- ur af mörgum sem þarf að huga að til að minna brottfall verði úr íþróttum.“ Af stað í haust Að sögn Skúla hefur Tóm- stunda- og íþróttaráð Reykja- nesbæjar þegar fengið það verkefni að undirbúa viðmið- unarreglur en hann gerir ráð fyrir að sú vinna sé þcgar hafin. „Þeir hafa sumarið til að vinna að jjessum reglum og því vona ég að verkefnið gæti farið af stað strax í haust. Ég minni samt á að æskilegt er að fara hægt og rólega í svona lagað þannig að við höldum vel utan- um verkefnið. Þá er hægt að þróa það í rólegheitunum og meiri líkur á að það verði var- anlegt." Skúli telur að verkefnið eigi eftir að styrkja samstarf bæjar- yfirvalda og íþróttahreyfingar- innar verulega. „Ég geri mér vonir um að þetta auðveldi íþróttahreyfingunni að ein- hverju leiti þann erfiða rekstur sem að þau eru í. Þetta eru vissulega tímamót en Reykja- nesbær er fyrsta bæjarfélagið sem gerir þetta með þessum hætti. „Mér kæmi ekki á óvart að þessi stefnumótun ISÍ, „Fyrirmyndarfélag - Fyrir- myndardeild", fengi aukna at- hygli í kjölfarið víða um land, enda mjög nauðsynleg vilji fé- lög hafa skýra uppeldisstefnu í sínu starfi“, segir Skúli. Gospelhátið Kvennahóps Suðurnesja Vortónleikar Kvenna- kórs Suðurnesja verða þann 2. og 4. aprfl næstkomandi í Ytri- Njarðvíkurkirkju kl: 20:30 og í Hátcigskirkju 7. apríl kl:2ö:30. Kórinn hefur í vetur verið undir stjórn Estherar Helgu Guðmundsdóttur og hefur mikil áhersla verið liigð á gospelmúsík í |ressu sam- starfi. Tónleikamir verða |jví að miklu leyti helgaðir sígildu gospel og einnig verða fiutt lögin úr kvikmyndinni Sister Act. Kórinn mun flytja tvö verk eftir Hreiðar Inga Þor- steinsson sem eru lileinkuð Esther Helgu og er |xtð kóm- um mikill heiður að fá að frumfiytja annað þeirra. Þar fær kórinn til liðs við okkur hörpuleikara Sinfóníuhljóm- sveitar Islands Moniku Abendroth. Píanóundirleik annast Helgi Már Hannesson, þassl Þórólfur Þórsson, trommur Gestur Pálmason. Laufey Helga Geirsdóttir og Sigrún Osk Ingadóttir munu syngja einsöng. Ohætt er að lofa hressum og skemmtileg- um tónleikum þar sem allir fara syngjandi út og hvetjum við Suðumesjabúa til uð Ijöl- mennu. Miðasala við inn- ganginn. Miðaverð I2(K) Shýr leiiar- vísir um menntabrautina Mennt er ináttur, það vita allir en ungt l'ólk getur orðið ansi áttav illt |)egar kemur að |ivf að velja sér námslcið þar sem valmögtileikarnir í dag eru fjölmargir. Ólali Kjart- anssyni, framkvæmda- stjóra MOA liefur verið falið að láta úhúa vegg- s|)jöld, sem sýna hvaða leið- ir þarf að fara í gcgntim skólakerfið að ákveðnu mark, s.s. iðnmcniitun og háskólamcnntun. Kjartan Már Kjartansson (B) lagði frarn þessa tillögu á fundi Markaðs- og atvinnu- ráðs Reykjanesbæjars l'yrir skömmu. Spjöldin verða sett upp í grunnskólum og eiga að vera einföld og auðskiljanleg og vinnast í samráði við Skólaskrifstofu, námsráð- gjalá og fleiri aðila. FRÉTTAVAKT 898 2222 690 2222 Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is 9

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.