Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.04.2003, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 25.04.2003, Blaðsíða 15
Samræmdu prófin hefjast í næstu viku: Stuiningur fbi eld ra mikilv ægur Nú styttist í samræmdu prófin í grunnskólum landsins. Fyrsta prófið verður 2. maí nk. og nemend- ur þegar famir að undirbúa sig. Námsgreinar til sam- ræmds prófs eru íslenska, stærðfræði, náttúrufræði, samfélagsfræði, enska og dan- ska.Víkurfréttir leituðu til Ölmu Vestmann námsráð- gjafa í Myllubakkaskóla og fengu hjá henni ábendingar fyrir nemendur og foreldra varðandi undirbúning undir prófin. Alma segir að eitt af því sem skipti miklu máli við undirbún- ing nemenda fyrir samræmdu prófin sé að ætla sér tíma til undirbúnings, tíma sem þau geti staðið við. „Nemendumir verða að vera raunsæir þegar þeir áætla tíma í undirbúning. Ég segi mínum bömum að reyna að áætla sér tima sem þau geta staðið við. Þau verða ánægðari með sig og sjálfstraust þeirra eykst nái þau settu markmiði. Setji þau sér of há markmið sem þau ná ekki að standa við, verða þau óánægð með stöðu sína og fyllast jafnvel vanmáttarkennd. Þau geta alltaf aukið við tímann, geti þau meira,“ segir Alma og nefnir einnig að það skipti miklu máli að þau fái næði og ákveð- inn stað þar sem þau geta unnið í friði og þar sem þeim líður vel.“ Öll prófin skipta máli Samræmdu prófin samanstanda af 6 námsgreinum og segir Alma að þau skipti öll miklu máli. „Ég get ekki ráðlagt nem- endum að leggja meiri áherslu á eitt fag en annað, það fer í raun effir einstaklingnum hvert hann stefhir í framhaldinu. En per- sónulega finnst mér islensku- prófið vera mjög umfangsmikið og íslenska og stærðlfæði eru grunngreinar í mörgum fram- haldsdeildum," segir Alma og bætir við að útkoma úr sam- ræmdu prófúnum skipti veru- legu máli fyrir nemenduma. „ Utkoma úr samræmdu prófún- um skiptir máli því prófin em ákveðið flokkunarkerfi sem komið hefúr verið á til að flokka nemendur inn í framhaldsskól- anna. Með því að ná sem best- um árangri i öllum greinum þá loka þau engri leið og koma bet- ur undirbúin til ffamhaldsnáms. Falleinkunn á samræmdu prófi er hins vegar enginn dauðadóm- ur því hægt er að fara í fomám og vinna upp það sem miður fór.“ Stuðningur foreldra mlkilvægur Foreldrar geta með ýmsu móti stutt við bakið á bömum sínum við undirbúning undir sam- ræmdu prófin. Alma segir að það skipti máli að foreldramir sýni undirbúningnum áhuga. „Foreldramir geta stutt þau með því að skapa þeim aðstöðu og hvetja þau áfiram. Ef tölva er til á heimilinu skiptir máli að for- eldramir aðstoði þau við að ná í ýmis hjálpargögn á netinu. Hægt er að fara á vef námsmats- stofhunar (www.namsmat.is) og fá þar gömul samræmd próf og æfingarpróf. Það er einnig hægt að fara inn á skólavefinn sem grunnskólar hafa aðgang að, en þar er að finna ýmsar æfingar,“ segir Alma. Kvöldið fyrir próf ætti að vera rólegt Alma segir að það sé mikilvægt fyrir nemenduma að líta á próf- in sem ögrandi verkefni og að foreldramir ræði við þá um und- irbúninginn en gæti þess að gera þá ekki stressaða. „Það skiptir miklu máli að foreldramir gæti þess að þeir hafi næði og setjist niður með þeim og styðji þá já- kvætt. Kvöldið fyrir próf ætti að vera rólegt og það skiptir máli fyrir nemandann að fá góð- an svefn fyrir próf, vakna tíman- lega og borða góðan morgun- verð áður en lagt er í glímu dagsins. Það skiptir miklu máli að vera vel hvíldur og í jafhvægi til að geta tekist á við verkefhin enda hafa nemendur undirbúið sig fyrir prófin síðustu 3 árin.“ Góð ráð hér að neðan! Ætlaðu þér ákvcóinn tíma fyrir hvert fag. Leggðu áherslu á að standa við tímamörkin og bæta frekar við þau. Yfirfarðu glósur og námscfni. Skrifaðu markmiðin þín fyrir undirbúninginn niður á blað og þegar þú ert búinn að lesa fyrir eitt fag, strikaðu þá yfir það markmið. Með þessu sérðu áþrcifanlegan árangur af lestrinum og þér líður vel þegar þú sérð hvað þér gengur vel. Finndu þér stað þar sem þú getur veriö í algjöru næði við að læra og best er að vera þar sem þér líður vel. Æfðu þig á gönilum prófum, þau gefa vísbendiugu um mikilvægi atriða, livernig prófi þú átt von á og hverskonar spiirningar konia. Taktu þér livíld á niilli en vertu búiun að ákveða tímalcngd þeirra fyrirfram. Muna að líta upp, lireyfa sig og nærast. Þú skalt slaka vel á kvöldið fyrir próf og fara snemma að sofa. Það skiptir niiklu máli að vcra í jafnvægi í prófinu. Ef þú kannt að gera slökunaræfuigar fyrir prófiö ættirðu að gera slíkar æfingar. Líttu á prófið sem spcnnandi verkefni sem þú ætlar að spreyta þig á. I Segðu satt Hjálmar! Mikið er þreytandi að þurfa alltaf að vera að leiðrétta alþingis- manninn Hjálmar Árna- son, sem virðist hafa ákveðið að beita heldur óvönduðum meðulum í baráttu sinni fyrir því að halda þingsæti sínu. Það hlýtur þó að vera lág- markskrafa til þeirra, sem bjóða sig fram til starfa á hinu háa Alþingi að þeir virði amk. leikreglur í siðaöra manna samfélagi og falli ekki í þá freistni að leggja nafngreind- um mönnum orð í munn og gagnrýna svo hina sömu fyrir ummæii sem aldrei féllu. Ástæða þessara skrifa minna núna er grein Hjálmars inn á vef- síðu Framsóknarflokksins þar sem hann er að skrifa um sjávar- útvegsmál. Þar segir hann að undirritaður hafi á íramboðs- fúndi á Ránni lýst því yfir að út- gerðarmenn innan ESB ættu að hafa fullt leyfi til að bjóða í afla- heimildir á Islandsmiðum eftir innköllun veiðiheimilda sam- kvæmt tillögum Samfylkingar- innar. Honum finnst í sömu grein, byggt á sinni eigin rang- færslu, það vera umhugsunarefni að Samfylkingin vilji hleypa út- lendingum inn í landhelgi okkar. Það sem Hjálmar heldur þama ffam er fjarri öllum sannleika og í raun óskiljanlegt hvemig hann snýr hlutum upp í andhverfú sína. Á umræddum fúndi sagði ég að í óbreyttu fiskveiðistjóm- unarkerfi, þar sem útgerðir end- uðu sem eigendur kvótans, gæti verið hætta á því að erlendir aðil- ar eignuðust varanlegar afla- heimildimar á Islandsmiðum með kaupum á hlutabréfúm í út- gerðarfyrirtækjunum. Aldrei var minnst á að útlendingar ættu að eiga möguleika á að bjóða í leiguheimildir, enda er það alls ekki á stefnuskrá Samfylkingar- innar að þannig verði búið um hnútana. Ég taldi Hjálmar Ámason grand- varan og gætinn einstakling og hefði ekki að óreyndu trúað upp á hann slíkum ódrengskap og hann verður ber að í grein sinni. Þó kosningabaráttan sé á tíðum hörð og þeir sem í framboði em þurfi að koma sér upp nokkuð hörðum skráp, þá er ekki hægt að láta hreinum ósannindum ósvar- að. Stjóm fiskveiða hefúr mistekist í öllum meginatriðum. Núverandi kerfi hefúr ekki byggt upp helstu nytjastofha á íslandsmiðum þó það hafi verið yfirlýst markmið kerfisins númer eitt. Byggðimar hafa veikst en ekki styrkst, nýlið- un er nánast ómöguleg, mun meira er veitt og drepið en í land kemur og hin mikla hagkvæmni sem fylgismenn kerfisins tala um er hagkvæmni til handa fáum á kostnað hinna mörgu. Fylgis- menn kerfisins gripa nú í aukn- um mæli til hræðsluáróðurs og hreinna rangfærslna þegar þeir standa frammi fyrir ábyrgum til- lögum Samfylkingarinnar um af- nám forréttinda í greininni, for- réttinda sem ganga þvert gegn öllu því sem Samfylkingin stend- ur fyrir. Heyjum kosningabaráttuna á málefhalegum nótum, flokkar og ffiambjóðendur verða að sjást fyr- ir í þeim aðferðum sem þeir beita í slag um atkvæði kjósenda. Jón Gunnarsson Skipar 4. sætið á framboöslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Víklrfréttifl á IVetinu Auglýsingasíminn er 42í 0000 • fax 42í 0020 lársbamtapaði gleraugimum sínum Eiiis ársgömnl stúlka tapaði sjóngleraugmn með bleikri umgjörð, hugsanlega í Bónus. heirscm kunna að hafa glerauguu er bent á að hringja í 661 7108,692 5608 og421 7108 fyrir flest tryggingafélög Notum eingöngu, gœöalökl Alhliða bilasprautun og réttingar BÍLASPRAUTUN MAGGA JÓNS löavöllum II • Sfml 421 6909 Gsm 898 6909 bilasprautun@slmnet.ls VlKURFRÉTTIR 17.TÖLUBLAÐ FÖSTUDAGUR 25. APRlL 2003 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.