Víkurfréttir - 14.08.2003, Side 4
Keflavíkurverktakar hf.
auglýsa eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
Ferskasta blaðiö á Suðurncsjum í sumar!
Fimmtán ný stðrf við rækju-
vinnslu í Reykjanesbæ
Saltver í Reykjanesbæ
hefur fest kaup á um 700
tonnum af iðnaðarrækju
frá Kanada og er að hefja
rækjuvinnslu að nýju eftir
framlciðslustöðvun frá nóvem-
ber á síðasta ári. Við rækju-
vinnsluna skapast 15 ný störf
hjá fyrirtækinu og leitar fyrir-
tækið nú að starfsfólki. Fyrir
starfa fimm menn hjá fyrir-
tækinu og að sögn Asgeirs Þor-
varðarsonar, framleiðslustjóra,
er ætlunin að halda uppi
rækjuvinnslu þar til Ioðnu-
frysting hefst hjá Saltveri um
miðjan febrúar á næsta ári.
Kanadíska iðnaðarrækjan fer á
markaði í Englandi og sagði As-
geir stöðu Islendinga vera góða
þetta árið í sölu á afurðum. Það
skýrist m.a. að því að verkföll í
Kanada, bæði til sjós og lands,
hafa valdið því að kanadíska
rækjuvinnslan er eingöngu rekin
með 30% afköstum. Rækjuveiði
hér heima hefur einnig verið góð,
að hans sögn.
Þeir sem hafa áhuga á að komast
í rækjuvinnslu eru hvattir til að
gefa sig fram í Saltveri við
Brekkustíg í Njarðvík.
Farþegum um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar fjölgar enn
Farþegum um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar fjölg-
aði um tæplega 11% í
júlímánuði miðað við sama
tíma í fyrra, úr tæplega 175
þúsund farþegunt árið 2002 í
tæplega 194 þúsund farþega
nú. Mest vegur fjölgun farþega
til og frá íslandi sem er 14%
milli ára. Á sama tíma hefur
farþegum sem millilenda hér á
landi á Ieið yfir Norður-Atl-
antshafið fækkað um 7%.
AIls hefur farþegum um Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar því fjölg-
aði um tæplega 9% það sem af er
árinu miðað við sama tíma árið
2002, eða úr rúmlega 711 þús-
und farþegum í rúmlega 773 þús-
und farþega.
Karnival stemning á
opnunarhátíð Kaskó
Það var sannkölluö
„karnival” stemning fyr-
ir ungu kynslóðina fyrir
utan Kaskó á IðavöIIum sl.
föstudag þegar verslunin var
með opnunarhátíö eftir breyt-
ingar. Langar raðir barna
mynduðust við leiktækin,
hoppukastala og trambólín, á
meðan aðrir krakkarnir
gæddu sér á grilluðum
kjúklingavængjum og candy-
floss, allt í boði Kaskó. Ekki
var fulloröna fólkið skilið út
undan þar sem ýmis góð tilboð
voru í tilefni dagsins en versl-
unin hefur tekið miklum breyt-
ingum ásamt því að vöruúrval
er stóraukið.
Það er óhætt að segja að þessi
opnunarhátið hafi tekist vel. Veð-
urguðimir voru rólegir þennan
daginn þó aðeins hefði rignt með
köflum.
Að sögn Stefáns Guðjónssonar
verslunarstjóra þá voru mót-
tökumar hreint út sagt frábærar.
„Fólk var mjög jákvætt í garð
þeirra breytinga sem ffamkvæm-
dar hafa verið á búðinni. Við
hræðumst ekki risann og ætlum
okkur stóra hluti. Fólk þekkir
söguna um Davíð og Golíat."
Verkamenn vana byggingarvinnu.
Aldurstakmark 20 ára og eldri.
Starfsfólk í ræstideild.
Aldurstakmark 18 ára og eldri.
Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu fyrirtækisins
www.kv.is og á skrifstofu þess byggingu 551,
235 Keflavíkurflugvelli.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins
25. ágúst 2003.
Frekari upplýsingar veittar
í síma 420 6400.
KEFLAVIKURVERKTAKAR hf.
Pósthólf 16, 235 Keflavíkurflugvöllur • Sími: 420 6400 • Bréfsími: 420 6499
stuttar
FRÉTTIR
Skar sundur
slagæð með
dúkahnffi
Snemma á miðviku-
dagsmorgun í síöustu
viku var lögregla og
sjúkrabfll sent að íbúðarhúsi
í Keflavík cn þar hafði iðnað-
armaður rekið dúkahnífs-
blað í handlegg sinn og skor-
ið í sundur slagæð.
Gert var að sárum mannsins á
sjúkrahúsinu í Keflavík.
MUNDI
Spurning hvort þessi
iðnaðarmaður skelli
sérekki baraírækjuna
hjá Steina Erlings!
4
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I mww.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!